Fréttablaðið - 05.12.2013, Page 10

Fréttablaðið - 05.12.2013, Page 10
5. desember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 Suðurlandsbraut 20, 108 Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is ENA MICRO 9 ONE TOUCH Líttu við hjá Eirvík og kynntu þér ENA 1 eða ENA 9 OneTouch með Aroma+ og við bjóðum þér í kaffi. Fékk hæstu einkun hjá þýsku neytendasamtökunum en 14 vélar voru prófaðar. Hægt að velja um kaffi, espresso, latte macchiato, cappuccino eða heitt vatn í te með því að þrýsta á einn hnapp. ÞINN STUÐNINGUR GERIR KRAFTAVERK Aðgangur að hreinu vatni er ekki sjálfgefinn. Hjálparstarf kirkjunnar gerir fólki kleift að byggja brunna í Afríku – og þitt framlag skiptir sköpum. Þú getur hjálpað núna með því að greiða valgreiðslu í heimabanka. EINNIG: Frjálst framlag á framlag.is Gjafabréf á g jofsemgefur.is Styrktarsími: 907 2003 (2.500 kr.) Söfnunarreikningur: 0334-26-50886, kt. 450670-0499 HREINT VATN BJARGAR MANNSLÍFUM PI PA R \ TB W A SÍ A KÍNA, AP Bandarískir fréttamenn segja að Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna, hafi komið svolít- ið beygður út af fundi með Xi Jin- ping, forseta Kína. Fundurinn varð töluvert lengri en til stóð og Biden vildi ekki svara neinum spurningum fjölmiðla að honum loknum. Þess í stað tók hann að ræða um samskipti Kína og Bandaríkjanna, sagði þau þurfa að byggja á gagnkvæmu trausti og að bæði ríkin geri ráð fyrir að hinu gangi gott eitt til í samskiptunum. Hvorki Biden né Xi minntust á deilur Kína við Japan og fleiri nágrannaríki um yfirráð yfir nokkrum eyjum og auðlindum í hafi. Ríkisfjölmiðlar í Kína hafa hins vegar gagnrýnt Bandaríkin fyrir að taka málstað Japana í þessum deilum og segja Bandaríkjastjórn hafa kosið að líta fram hjá ögrun- um Japana, eins og það er orðað í leiðara China Daily, dagblaði kín- versku stjórnarinnar, sem gefið er út á ensku. Í leiðaranum segir að ögran- ir Japana séu rót deilunnar, en Bandaríkin hafi ranglega ásakað Kína fyrir að hafa einhliða breytt ríkjandi ástandi í Austur-Kínahafi. Bandaríkin hafa á síðustu vikum, rétt eins og Japan og fleiri ríki við Austur-Kínahafið, gagn- rýnt nýlega ákvörðun Kínverja um að stækka lofthelgi sína, þannig að hún nái yfir hinar umdeildu eyjar, en þetta gerðu Kínverjar án sam- ráðs við nágrannaríkin. Vafalítið er að þessi mál hafi borið á góma á fundi þeirra Bidens og Xis, en Biden sagði að loknum fundinum að hreinskilni Xis hefði haft töluverð áhrif á sig. „Hreinskilni skapar traust,“ sagði Biden. Þeir áttu annan fund síðar í gær ásamt ráðgjafarnefndum sínum, og svo snæddu þeir kvöldverð þar sem unnið var að málum er varða samstarf ríkjanna. Fyrr um daginn vakti athygli þegar Biden vék sér að ungum Kínverjum, sem biðu í röð í banda- ríska sendiráðinu í Peking eftir afgreiðslu vegabréfsáritana. Hann notaði tækifærið til að hvetja unga fólkið til að fara eigin leiðir og óhlýðnast yfirvöldum, ef svo ber undir: „Börn í Bandaríkjunum eru verðlaunuð fyrir að draga ríkjandi ástand í efa, ekki refsað fyrir,“ sagði hann. gudsteinn@frettabladid.is Biden kom beygður út af fundi með Xi Varaforseti Bandaríkjanna segir hreinskilni Kínaforseta hafa haft áhrif á sig. Bandaríkin hafa undanfarið gagnrýnt einhliða ákvörðun Kínverja um útfærslu lofthelgi sinnar. Biden segir nú mestu skipta að gagnkvæmt traust myndist. SUÐUR-AFRÍKA, AP „Í hvert skipti sem ég get verið hjá honum fyllist ég undrun,“ segir Makaziwe Man- dela, dóttir Nelsons Mandela. Mandela hefur verið lífshættu- lega veikur frá því snemma sum- ars, en ættingjar hans segja hann sýna undraverðan baráttuhug á dánarbeðinum. „Tata er enn með okkur, sterkur og hugrakkur,“ segir dóttir hans, en Tata er gælunafn hans meðal ættingja. „Jafnvel á dánarbeði, ef ég má nota það orð, þá er hann að kenna okkur ýmislegt um þolin- mæði, kærleika og umburðar- lyndi.“ - gb Dóttir Mandela undrast styrk hans á dánarbeði: Sagður í baráttuhug ÞÝSKALAND Niðurstaða hinnar árlegu mælingar um útbreiðslu spillingar í heiminum liggur nú fyrir. Samtökin Transparency International segja Danmörku og Nýja-Sjáland vera minnst spilltu ríki heims, en ástandið er verst í Sómalíu, Afganistan og Norður- Kóreu. Ísland lendir 12. sæti ásamt Þýskalandi, en sem fyrr standa Vesturlönd sig almennt einna best í því að forðast spillingu. Athygli vekur að í löndum „arab- íska vorsins“ hefur spillingin auk- ist, og munar þar mest um átökin og óstöðugleikann í Jemen, Sýr- landi og Líbíu. Niðurstöðurnar eru byggðar á skoðanakönnun meðal fyrirtækja og stofnana í hverju landi fyrir sig, þar sem spurt er ýmissa spurn- inga um það hversu spillt mönn- um finnst hið opinbera í viðkom- andi landi vera. Útkoman er færð inn á kvarða frá núll til hundrað, en niðurstaðan þetta árið varð sú að tveir þriðju allra þeirra 177 landa, sem tóku þátt, fengu innan við 50 stig. - gb Spilling hefur aukist í ríkjum „arabíska vorsins“: Spilling er landlæg í flestum ríkjum JOE BIDEN Í KÍNA Sagður hafa komið nokkuð beygður út af fundi með Xi Jinping, forseta Kína. FRÉTTABLAÐIÐ/AP EDDA MÜLLER Yfirmaður Transparency International í Þýskalandi kynnir niður- stöðurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA NELSON MANDELA Hefur verið lífs- hættulega veikur frá því í sumar. NORDICPHOTOS/AFP
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.