Fréttablaðið - 05.12.2013, Síða 18

Fréttablaðið - 05.12.2013, Síða 18
5. desember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | Það verður að gera grunnskólanám markvissara og nýta skólatímann til að þjálfa börn í þeim grunnþátt- um náms sem eru þeim mikilvæg- astir – lestri og stærðfræði. Allt sem til þarf er vilji ráðamanna og ekki síður skólafólks um að breyta skipulagi skóladagsins fyrstu ár skólagöngunnar. Nemendurnir eiga að vera miðpunktur skólastarfs- ins og það á að taka mið af þörf- um þeirra. Á þessu er misbrestur í íslensku skólakerfi. Þetta segir Hermundur Sig- mundsson, prófessor í lífeðlislegri sálarfræði við Háskólann í Þránd- heimi. Hann hefur um árabil unnið að rannsóknum á færniþróun og skipulagi skólastarfs og kynnt hugmyndir sínar sem hafa fengið góðan hljómgrunn, meðal annars í Noregi. Eins og alþjóð veit voru niður- stöður úr PISA-rannsókn OECD fyrir árið 2012 kynntar á þriðjudag. Niðurstaðan er mikið áhyggjuefni fyrir íslenskt samfélag; 30% 15 ára pilta lesa sér ekki til gagns og staða krakkanna á landsbyggðinni er í frjálsu falli víðast hvar. Í heild versnar frammistaða íslenskra nemenda mikið þegar litið er aftur um áratug. Heimanámið í skólann „Það er ekki sami tími til að fylgja börnum eftir heima eins og áður var. Það eru auk þess spennandi verkefni sem glepja börnin og krefjast tíma, og á ég þá við tölv- una og alla þá möguleika sem henni fylgja. Mér varð líka hugsað til krepp- unnar þegar ég sá þessi gröf, og hún hefur senni- lega kostað sitt varðandi námið,“ segir Hermundur. Hermundur spyr hvort verið sé að nota réttar kennslu- aðferðir, þær sem alþjóðlegar rannsóknir sannarlega sýna að virka betur en aðrar í lestrar- kennslu. „Svo er þetta líka spurn- ing um þjálfunina. Við vitum að 3-5% barna hafa lífeðlisfræðilega ástæðu fyrir lestrarerfiðleikum. En ef á 30% hópsins lesa sér ekki til gagns á sama tíma, þá má full- yrða að 25 til 27% þeirra hafi ekki fengið nægilega þjálfun. Það er það sem við verðum að bæta og fjölmargir krakkar fá hana ekki heima hjá sér, af ýmsum ástæðum. Getum við haft skólakerfið þann- ig að við forgangsröðum með þeim hætti fyrstu 4-5 skólaárin, að allir nái tökum á lestri?“ spyr Hermund- ur og bætir við að þjálfunin eigi að fara fram á skólatíma undir hand- leiðslu kennara sem getur metið hvar skórinn kreppir hjá hverj- um og einum nemanda – og hann efast ekki um að kennararnir valdi starfi sínu. Þeim sé hins vegar gert að dreifa kröftunum um of – og þar sé gallaðri námsskrá um að kenna. „Þjálfunin á að vera í skólan- um en ekki heima. Verkefnin eru allt of flókin og álagið of mikið á kennar ann, þess vegna. Krakkarnir eiga að læra alls konar hluti mjög snemma í stað þess að leggja áherslu á það sem skiptir máli – að lesa, skrifa og reikna sem er mikilvægast þangað til þau verða 10 ára gömul. Þá eru þau tilbúin til að kynna sér allt hitt – enda ráða þau þá við lestur sem er grundvöllur alls annars náms.“ Fókusinn á börnin! Hermundur segir það misskilning að málið sé flókið. „Það verður að taka á vandanum með sameigin- legum aðgerðum og frumkvæðið á að koma frá menntamálaráðherra. Þá má bæta við að lengri skóladag- ur er engin lausn, og það er lengra nám kennara ekki heldur. Við þurf- um styttri skóladag og meiri fókus. Börn þurfa líka að fá að hreyfa sig – að fá útrás. Rannsóknir sýna svart á hvítu að hreyfing í byrjun skóla- dags skapar ró næstu fjóra tíma á eftir fyrir þá sem eru virkastir, svo dæmi sé tekið.“ Það er skoðun Hermundar að nemendurnir eigi að vera mið- punktur skólastarfsins og það á að taka mið af þörfum þeirra. Á þessu sé misbrestur í íslensku skólakerfi. „Við látum börnin sitja í á annan klukkutíma án þess að hreyfa sig. Fullorðið fólk getur þetta ekki hvað þá sex eða sjö ára gamalt barn. Það sama á við um opin rými. Vinnandi fólki hentar þetta illa sem kemur fram í veikindum og fleiru. Opin rými eru ekki góð fyrir börn sem eiga við vanda að stríða, t.d. varð- andi einbeitingu og ofvirkni. Svo eru sífellt fleiri skólar byggðir án þess að taka tillit til þessa. Við verðum að hanna skólana, jafnt sem skólastarfið, með tilliti til þess sem hentar börnum, en ekki þeim fullorðnu eins og nú er. Við setjum fókus á börnin og unglinganna. Við getum ekki – og megum ekki hafa einhvern annan fókus en það.“ Skóli án aðgreiningar Á Íslandi starfa grunnskólar eftir hugmyndafræðinni um skóla án aðgreiningar. Hugmyndafræðin á að búa nemendur með sérþarfir betur undir frekari menntun og þátttöku í samfélaginu, fremur en þeir séu eingöngu að umgang- ast aðra sem glíma sem við sömu vandamál. „Það má skoða þessa stefnu og hvort hún sé að skila því sem að var stefnt. Það er erfitt að brjóta þetta upp vegna hagsmunatengsla. Margir foreldrar barna með sér- þarfir biðja um að komast í sér- skóla með sín börn, en hafa ekki möguleika á því. Því segi ég að við verðum að setja börnin og þarfir þeirra í forgang. Það er ekki erfitt að leysa þetta en það þarf vilja til,“ segir Hermundur að lokum. Heimanámið á heima í skólanum Fyrstu skólaárin eiga að snúast um lestur, skrift og stærðfræði. Gölluð námsskrá veldur því að yngstu börnin glíma við of flókin verkefni sem kemur niður á grunnþekkingu þeirra síðar. Það þarf að forgangsraða í íslensku skólakerfi börnunum í vil – öfugt við það sem nú er. VIÐ MELASKÓLA Yngstu börnin þurfa að glíma við of flókin verkefni á fyrstu árum skólagöngu sinnar. Þau eiga að ljúka skóladeginum í skólanum, en ekki heima að kvöldlagi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HERMUNDUR SIGMUNDSSON ASKÝRING | 18 Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.