Fréttablaðið - 05.12.2013, Síða 50
5. desember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 50
HVAÐ?
HVENÆR? HVAR?
FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2013
Tónleikar
19.30 Rokkhljómsveitin Nykur verður
með hörkutónleika á Bar 11. Mun
sveitin flytja lög af samnefndri plötu
sveitarinnar sem kom út fyrir nokkru.
22.00 Magnús R. Einarsson heldur tón-
leika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8.
Leiklist
17.00 Bernd Ogrodnik sýnir brúðu-
leikritið Pönnukakan hennar Grýlu í
Sólheimasafni. Allir velkomnir meðan
húsrúm leyfir!
Sýningar
16.00 Opnuð verður Aðventusýning
félagsmanna SÍM í sal SÍM-hússins að
Hafnarstræti 16. Rúmlega 70 félags-
menn taka þátt í sýningunni og eru
verkin unnin í alls kyns miðla.
Upplestur
15.00 Sigurður Ingólfsson ljóðskáld
mun lesa upp úr bók sinni Ég þakka
í Flóru, Hafnarstræti 90 á Akureyri.
Sigurður Ingólfsson er bókmenntafræð-
ingur og ljóðskáld, fæddur og uppalinn
á Akureyri. Ljóðabókin Ég þakka kom út
fyrr á þessu ári og inniheldur fimmtíu
og tvær þakkarbænir og er sjöunda
ljóðabók Sigurðar.
20.00 Bókakvöld ReykjavíkurAkademí-
unnar, Sögufélags, Sagnfræðingafélags
Íslands og Bókasafns Dagsbrúnar í sal
ReykjavíkurAkademíunnar Hringbraut
121, 4. hæð. Upplestur, kynningar og
sala á bókum.
20.00 Bókaspjall í Bókasafni Kópavogs,
Hamraborg 6a. Vigdís Gríms, Stefán
Máni og Guðmundur Andri lesa upp og
bókmenntafræðingarir Arndís Þórarins-
dóttir og Maríanna Clara Lúthersdóttir
stjórna bókmenntaumræðum. Allir
velkomnir, enginn aðgangseyrir. Léttar
veitingar.
Markaðir
13.00 Jólamarkaður Kompunnar verður
haldinn við Smiðjuvelli í Reykjanesbæ.
Boðið verður upp á kakó og piparkökur
og lifandi tónlist auk þess sem hið
árlega uppboð Kompunnar á ýmsum
merkilegum hlutum fer fram, en ágóði
er nýttur til að styrkja við starfsemi
Fjölsmiðjunnar á Suðurnesjum.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is og einnig er hægt að skrá
þá inni á visir.is.
„Vínylplötusalan hefur vissu-
lega aukist á síðustu árum, enda
er alltaf að verða meira framboð
af honum,“ segir Haraldur Leví
Gunnarsson, eigandi hljómplötu-
útgáfunnar Record Records.
Á þessu ári hafa sjö af tólf
útgáfum fyrirtækisins verið
gefnar út á vínyl. „Við höfum gefið
út mikið af vínyl undanfarin ár.
Hann er mun eigulegri en geisla-
diskurinn og sjaldgæfari í seinni
tíð.“
Yfirleitt eru ekki framleidd
nema um fimm hundruð eintök af
vínylplötum en eitt til fimm þús-
und eintök af geisladiskum.
Hljómsveitin Moses High-
tower gaf út plötuna Mixtúrur úr
Mósebók eingöngu á vínyl en þó
fylgdi geisladiskur með vínylnum.
„Ég kaupi frekar vínyl en geisla-
diska. Nokkrar vínylútgáfur eru
líka uppseldar hjá okkur,“ bætir
Haraldur Leví við. Þó er talsvert
dýrara að framleiða vínylplötur
en geisladiska.
Nýjasta plata Retro Stefson,
plata Tilbury, Exorcise og plat-
an Önnur Mósebók með Moses
Hightower eru allar uppseldir á
vínyl.
Hið árlega Jólaplögg Record
Records fer fram 21. desember á
Gamla Gauknum og Harlem. - glp
Vínylplöturnar
vinsælar í ár
VINUR VÍNYLSINS Haraldur Leví Gunn-
arsson, eigandi Record Records, gefur út
talsvert af vínylplötum. MYND/ERNIR
Nú hefur skemmtistaðurinn
Park verið opnaður við Hverfis-
götu, þar sem áður var Mánabar.
Staðurinn er helgaður elektrón-
ískri danstónlist. Á föstudag
mun Arnar Freyr Símonarson
úr Hugarástandi stjórna tónlist-
inni og á laugardaginn verða DJ
Casanova og Rix við stjórnvölinn.
Nýtt hljóðkerfi er á staðnum af
gerðinni Function One. - kak
Danstónlist
fær að óma
NÝR SKEMMTISTAÐUR Park er þar
sem Mánabar og Hverfisbarinn voru
áður til húsa.
Hönnunar- og sprotafyrirtækið As
We Grow ætlar að láta ágóðann af
sölu á húfum og treflum renna til
Barnaspítala Hringsins í tilefni
þess að eitt ár er liðið frá því vörur
fyrirtækisins fóru á markað. Salan
fer fram í Spark Design Space á
Klapparstíg 33 í dag klukkan 17
til 20.
Hugmyndin að As We Grow varð
til út frá peysu sem ferðaðist á
milli margra barna í níu ár, varð
uppáhaldsflík þeirra allra og er
enn í notkun. Hönnunin hefur skír-
skotun í nýtingu fyrri kynslóða þar
sem horft er til þess að fatnaður
sem endist lengi fái áhugaverða
sögu og verði verðmætari.
As We Grow var stofnað 2012
af þeim Grétu Hlöðversdóttur
framkvæmdastjóra og hönnuð-
unum Guðrúnu Rögnu Sigurjóns-
dóttur og Maríu Th. Ólafsdóttur.
Að undangenginni vöruþróun sem
hófst 2010 voru fyrstu vörurnar
settar á markað fyrir einu ári og
eru nú seldar í fimm löndum ásamt
Íslandi. - lkg
Láta gott af
sér leiða