Fréttablaðið - 05.12.2013, Qupperneq 78
REDDA JÓLASVEINUNUM TIL BYGGÐA
SVEPPI OG VILLI
Félagarnir Sveppi og Villi standa í
ströngu á aðventunni enda fá þeir
það ábyrgðarfulla hlutverk að koma
jólasveinunum til byggða í tæka
tíð svo þeir geti stungið einhverju
skemmtilegu í skóinn hjá góðu
börnunum.
Sveppi og Villi leita að jólasvein unum er
skemmtileg þáttaröð fyrir krakka sem hefur
göngu sína 11. desember, daginn áður en fyrsti
jólasveinninn, Stekkjastaur, kemur til byggða.
„Þetta verða stuttir jólaþættir sem ganga út
á það að reyna að koma jólasveinunum til
byggða á réttum tíma svo þeir nái að gefa
börnum þjóðarinnar í skóinn. Þáttur um
viðkomandi jólasvein verður sýndur daginn
áður en hann kemur til byggða,“ segir Sverrir
Þór Sverrisson, eða Sveppi, en í þáttunum
þurfa þeir Sveppi og Villi vinur hans að leysa
úr ýmsum vandamálum sem koma upp. „Til
dæmis hefur Skyrgámur verið erfiður því
hann hefur verið með svo mikið mjólkuróþol.
Bjúgnakrækir situr saklaus í fangelsi fyrir
bjúgnaþjófnað,“ útskýrir Sveppi en svo eru
aðrir sveinar sem gleyma sér alveg. „Við
þurfum til dæmis að sækja einn áður enn
hann flýgur til Tenerife í sólina,“ segir hann
glaðlega. En af hverju eru þeir valdir til
starfans? „Það er pínu leyndó sem kemur í
ljós í síðasta þættinum. En það snýst um að
maður þarf að trúa.“
Sveppi segist aðeins vera farinn að huga að
jólunum en þó ekkert af viti. Helsta verkefni
hans fyrir jólin er að skreyta húsið að utan.
„Mér finnst það reyndar dálítið ójafnt. Konan
mín skreytir inni og ég er settur í að skreyta
úti sem er mikið flóknara. Það eru miklu fleiri
sem sjá skreytingarnar og því þarf það að
vera vel gert og maður þarf að vanda sig,“
segir Sveppi sem leggur metnað í að hafa
húsið fallega skreytt fyrir jólin.
Meðfram þáttagerð og jólaskreytingum
reynir Sveppi að sinna bókinni sinni, Stuðbók
Sveppa, sem er nýkomin út. „Þetta er bók
fyrir krakka á aldrinum fimm til tólf ára sem
hafa gaman af því að leika og skemmta sér.
Fyrir krakka sem vilja prófa öðruvísi hluti
og fara aðeins út fyrir boxið,“ lýsir Sveppi.
Villi vinur hans stendur líka í bókaútgáfu
og hefur gefið út bókina Vísindabók Villa.
Sveppi segir enga samkeppni ríkja milli
þeirra vinanna. „Við lítum frekar á þetta
sem samvinnu. Þetta eru mjög ólíkar
bækur. Vísindabókin er uppfull af alls
konar fróðleik sem Villi hefur mikla þörf
fyrir að koma út í kosmósið, svipað og Villi í
þáttunum mínum. Mín bók er hinn anginn af
þessu. Þar er bull og vitleysa, brandarar, grín
og leikir,“ segir Sveppi og telur þetta
afar fína blöndu.
Þeir Sveppi og Villi verða
einhverja daga fram að
jólum í Hagkaup að
árita bækur sínar. „Þar
hittum við krakkana
og þá fyrst kemst
maður í stuð og
jóla skap,“
segir
Sveppi
glaður í
SVEPPI OG VILLI LEITA AÐ JÓLASVEINUNUM
HEFST 11. DESEMBER KL. 18.00
Stórskemmtileg mynd fyrir alla
fjölskylduna um félagana Sveppa,
Villa og Góa sem lenda í sínu stærsta
ævintýri til þessa. Óprúttnir náungar
stela skápnum úr herberginu hans
ALGJÖR SVEPPI OG TÖFRASKÁPURINN
JÓLADAG KL. 18.55
STÓRKOSTLEGT ÆVINTÝRI
Á JÓLADAG Sveppa en þeir vita ekki að vinkona hans, Ilmur, er föst í skápnum, sem sannarlega er
töfraskápur. Sveppi, Villi og Gói leggja allt í
sölurnar til að bjarga Ilmi úr klóm ræningjanna
og endurheimta töfraskápinn.