Fréttablaðið - 05.12.2013, Side 80

Fréttablaðið - 05.12.2013, Side 80
HELLISBÚINN JÓHANNES HAUKUR Sunnudaginn 29. desember sýnir Stöð 2 upptöku af hinum bráðfyndna einleik Hellisbúanum sem sló eftirminnilega í gegn hjá íslenskum leikhúsgestum. Jóhannes Haukur Jóhannesson fer á kostum í þessum frábæra einleik. Þetta er bráðfyndin sýn á nútíma femínisma, mjúka manninn og kynhvötina sem, ásamt túlkun á hversdagslegum staðreyndum í samböndum, gerir það að verkum að Hellisbúinn kitlar hláturtaugarnar og smýgur inn í hjartað. Hellisbúinn er eftir Bandaríkja manninn Rob Becker og var verkið frumsýnt í San Francisco árið 1991. Verkið hefur verið sýnt víða um heim við miklar vinsældir. Þessi uppfærsla er í þýðingu Sigurjóns Kjartanssonar og Rúnar Freyr Gíslason leikstýrir. HELLISBÚINN 29. DESEMBER KL. 19.10 Laddi, eða Þórhallur Sigurðsson eins og hann heitir í þjóðskránni, var raunar einn af stofnendum Spaugstofunnar árið 1986. „Þá voru framleiddir fjórir þættir undir heitinu Spaugstofan. Svo hætti ég, fór í Gríniðjuna með Gísla Rúnari og fór að gera Heilsubælið. Spaugstofan hélt áfram án mín og fór að gera fasta vikulega þætti með góðum árangri,“ segir Laddi. Í upphafi var Pálmi Gestsson ekki í hópnum en hann gekk til liðs við Spaug stofuna árið 1989. Spaug stofumenn hafa átt óvið jafnanlegu gengi að fagna enda hefur þáttur þeirra verið í gangi í Sjónvarpinu og síðan á Stöð 2 með hléum frá því í janúar 1989, þegar hann hóf göngu sína undir nafninu ’89 á stöðinni. Árið eftir hét hún ’90 af stöðinni og enn síðar Enn ein stöðin. Laddi hefur eins og aðrir landsmenn fylgst með þeim félögum á skjánum í gegnum árin en fékk nú í haust loks að ganga til liðs við þá á ný. „Það er alveg frábært að vinna með Spaugstofumönnum. Stemningin á tökustað er alltaf góð. Það er rosalega gaman hjá okkur enda mikið grínað og hlegið,“ segir Laddi og bætir við að oft kvikni nýjar hugmyndir á tökustað sem þróist jafnvel í glænýja sketsa. En urðu einhverjar breytingar á Spaugstofunni við komu Ladda? „Auðvitað breytist alltaf eitthvað þegar nýr maður kemur inn. Það koma fleiri hugmyndir fram og fleiri karakterar bætast í hópinn,“ segir Laddi og segist smellpassa inn í hópinn. „Enda erum við með mjög svipaðan húmor,“ segir hann glettinn. Spaugstofan verður á sínum stað nk. laugardag á Stöð 2. Ladda þykir líklegt að þeir verði á jólalegum nótum líkt og þjóðfélagið enda endurspegla þættirnir oftar en ekki það sem er að gerast í samfélaginu á hverjum tíma. En er alltaf úr nægu að moða? „Það er misjafnt. Stundum er eitthvað lítið að gerast og þá er þetta erfiðara. Þá erum við bara með eitthvað léttara inni á milli.“ Milli jóla og nýárs, laugardaginn 28. desember, verður sérstakur hátíðarþáttur af Spaugstofunni þar sem birt verður brot af því besta með Spaugstofunni í vetur. „Ég get lofað því að hann verður góður,“ segir Laddi. LADDIÁFRAM ÍSPAUGSTOFUNNI SPAUGSTOFAN LAUGARDAG KL. 19.35 ÓUPPLÝST LÖGREGLUMÁL SUNNUDAGA KL. 20.30 Hinn ástsæli grínisti Laddi gekk til liðs við Spaugstofuna í haust og hefur lyft gríninu upp í nýjar hæðir á laugar dagskvöldum á Stöð 2. Laddi kann svo vel við sig með Spaugstofumönnum að hann verður með þeim áfram á nýju ári. Á meðgöngunni vann Helga að gerð þáttanna Óupplýst lögreglumál, sem sýndir eru á Stöð 2, og var því með hugann nokkuð fjarri fæðingar- og ungbarnastússi. Nú sér dóttirin hins vegar til þess að Helga hugsar ekki um nokkuð annað og nýtur tímans í botn. „Hún er að taka vaxtar- kipp núna og hangir bókstaflega á mér. Ég er farin að líta á það sem stórkostleg forréttindi að komast í sturtu og kann orðið dagskrána á FoodNetwork utan að,“ segir Helga. Hún ætlar að verja aðfangadegi með móður sinni, Margréti Ákadóttur, og sambýlismanninum, Reyni Erni Þrastarsyni. „Á mínu heimili hefur alltaf verið elduð gæs og hefur Reynir, sem er matreiðslu- maður, glaður gengið inn í þá hefð. Hann skaut sína bráð í haust og mun elda hana eftir kúnst- arinnar reglum. Í forrétt erum við með humar í UMKRIN LISTAKO Frétta- og dagskrárgerðar maðurinn Helga Arnardóttir heldur í fyrsta skipti jól með lítinn hvítvoðung upp á arminn en dóttir hennar, Margrét Júlía Reynisdóttir, kom í heiminn 13. nóvember síðastliðinn. Jólin í ár verða því frábrugðin fyrri jólum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.