Fréttablaðið - 05.12.2013, Page 85
Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir er annar
stjórnenda þáttarins Á fullu gazi á Stöð 2 á
þriðjudagskvöldum. Hún er sjálf vön því að
vera á fullu gazi um jólin.
„Ég er óskipulagðasta manneskja í heimi og vakna
yfirleitt alltof seint á aðfangadag eða ríf mig upp
grútsyfjuð klukkan átta því ég hef ekki keypt eina
einustu jólagjöf. Svo tekur við stefnulaust ráf í óðagoti
um miðbæinn sem færist yfir í verslunarmiðstöðvarnar
þegar búið er að loka á Laugaveginum og þetta er
alltaf svona, sama hvað ég ætla að vera tímanlega,“
segir Sigríður Elva.
Sigríður á minningu um sig hlaupandi í Hagkaupum
sem síðastri búða var lokað á aðfangadag og með allt
í fári.
„Svo húrra ég mér heim eftir búðarápið, klæði mig í
jólaföt og elda eitthvað, því sem grænmetisæta kem
ég með eigin mat í jólamat til mömmu og pabba.“
Alltaf geitaostur á jólunum
Þegar haustar byrjar Sigríður Elva að lesa sér til um
jólamat og leita sér hugmynda. „Ég hef enn ekki náð
að skapa mér matarhefð um jólin en geitaostur kemur
þó alltaf við sögu. Síðast gerði ég geitaostaköku og
langar að gera hana aftur núna fyrir jólin á meðan
aðalrétturinn kemur á óvart. Margar grænmetisætur
líta á hnetusteik sem hinn eina sanna jólamat en
mér finnst á henni of mikill hippaheilsubragur og
hnetusteik álíka hátíðleg og kjöthleifur á virkum degi,“
segir Sigríður Elva sem á aðventunni bakar í gríð og
erg og segir að jólin séu besta afsökunin til að baka
sætabrauð.
„Ilmur af jólabakstri er hluti af jólastemningunni. Ég
er mikið jólabarn þótt mig skorti trúarlega tengingu
við hátíðina og þykir notalegt þegar hraður taktur
þjóðfélagsins hægist og kyrrðin tekur við. Eftir
stresskast aðfangadags upplifi ég því verðskuldað
spennufall og get verið slök í náttfötum að éta konfekt
næstu daga.“
Fram undan eru fyrstu jól Sigríðar Elvu sem móður.
„Dóttirin er enn svo lítil að hún mun varla hafa gaman
af því að taka upp jólapakka og ég er mun spenntari
fyrir pökkunum hennar en hún. Mér þykja jólin
spennandi með augum barnsins og hlakka til þegar
hún fer að hafa vit á þessu öllu. Móðurhlutverkið
breytir öllu og nú get ég sennilega ekki leyft mér að
hlaupa um búðir á taugum með litla viðhengið með
mér.“
VERÐSKULDAÐ
SPENNUFALL
Á FULLU GAZI
ÞRIÐJUDAGA KL. 20.10