Fréttablaðið - 05.12.2013, Qupperneq 95
SYKURHJÚPAÐUR
HAMBORGARHRYGGUR
MEÐ RAUÐVÍNSSÓSU
1½ kg hamborgarhryggur, soðinn
í potti í eina klst. Látið vatnið fljóta
vel yfir hrygginn. Sjóðið einnig með
saxaðan lauk, gulrœtur og 8 korn af
heilum pipar.
SYKURHJÚPURINN Á
HRYGGINN
200 g tómatsósa
75 g súrt sinnep
1 dós sýrður rjómi
2 dl rauðvín
1dl Coca-Cola.
Allt hrœrt vel saman.
Brúnið 150 g af sykri í smjöri á
pönnu. Þegar sykurinn freyðir er
rauðvínsblandan sett út í.
Hryggurinn settur í ofnskúffu
og penslaður að ofan með
sykurblöndunni, 2–3 sinnum. Hafið
eingöngu yfirhita á ofninum. Þannig
brúnast sykurinn fallega.
RAUÐVÍNSSÓSAN
Soðið af hryggnum sett í pott.
Bragðbœtt með kjötkrafti, þriðja
kryddinu og pipar. Sósan bökuð upp
með smjörbollu:
100 g mjúkt smjör og 100 g hveiti
hrœrt saman. Sett smám saman út
í soðið. Bœtið við hindberjasultu,
rauðvíni, rjóma og afganginum af
sykurhjúpnum.
FRUMKVÖÐLAR Í GÓÐUM MÁLUM
Lóa Pind Aldísardóttir fer
með nýjan þátt í loftið
laugardaginn 9. desember
sem nefnist Eitthvað annað.
Þar er rætt við íslenska
frumkvöðla sem hafa stigið út
fyrir rammann.
„Nafnið á þættinum sæki ég í umræðu
sem var hér fyrir fáeinum árum og
fjallaði um stóriðju eða eitthvað
annað, eins og þá var gjarnan nefnt.
Í venjulegum fréttum fær maður ekki
langan tíma fyrir hverja frétt en nú
gefst mér tækifæri til að fara nánar
í málið. Þúsundir manna eru að
vinna við þetta „eitthvað annað“.
Ég legg áherslu á frumkvöðla
og skoða hvað hefur mótað þá,“
útskýrir Lóa.
„Það eru ekki allir sem þora að
stíga út fyrir þægindaramma
launþegans til að framkvæma
hugmyndir sínar. Þetta
fólk er að gera margt nýtt
og óþekkt, til dæmis í
rafmagnsfræði, fiskiðju,
sjávarútvegi, vínframleiðslu,
útflutningi á kennsluefni, svo eitthvað
sé nefnt. Meðal annars er hópur
kominn á veg með rússibana í
Kömbunum. Það hefur komið mér á
óvart hversu margt er í gangi og að
það er góður stuðningur í boði fyrir
þetta fólk,“ segir hún enn fremur.
Kókakóla í sósunni
Það hefur verið nóg að gera hjá
Lóu sem segist vera mikið jólabarn.
„Skreytingarnar hafa minnkað hjá
mér með árunum en ég er íhaldssöm
á hefðir og siði í kringum jól. Ég er
alltaf með sama jólamatinn. Það væri
ekkert aðfangadagskvöld ef ekki
væri hamborgarhryggur, eldaður eftir
uppskrift sem birtist í Þjóðviljanum
árið 1978. Það var Skúli Hansen
matreiðslumaður sem gaf þessa
uppskrift og ég hef alltaf notað hana.
Skúli gaf uppskrift að bestu sósu sem
ég hef smakkað en í henni er Kók,“
segir Lóa og gefur hér uppskriftina.
„Þegar lyktin af sósunni ilmar um
húsið, þá eru jólin komin.“
EITTHVAÐ ANNAÐ
LAUGARDAG KL. 19.25