Fréttablaðið - 05.12.2013, Page 97
RÓMANTÍSKAR STUNDIR
Á BÍÓSTÖÐINNI Í DESEMBER
DROTTNING
RÓMANTÍSKU MYNDANNA
Rómantíkin svífur yfir vötnum á Bíóstöðinni yfir hátíðirnar. Áhorfendur geta átt
notalegar stundir yfir nokkrum rómantískustu myndum síðari ára. Meðal þeirra
rómantísku mynda sem eru á dagskrá í desember eru The Notebook, Notting Hill,
Dear John, 27 Dresses, Love Happens, The Holiday, Bridges of Madison County,
One Fine Day, Rumor Has It, The Vow, The Lucky One, Two Weeks Notice, The Story
of Us, The Object of My Affection og You‘ve Got Mail.
Leikkonan Rachel McAdams sló
eftirminnilega í gegn í myndinni
The Notebook árið 2004 en myndin
er almennt talin ein rómantískasta
mynd síðari ára. Í dag er McAdams
óumdeild drottning rómantísku
myndanna. Hún lék á móti Eric Bana
í myndinni The Time Traveler‘s Wife
árið 2009 og í fyrra fóru vasaklútarnir
aftur á loft þegar hún lék í myndinni
The Vow á móti Channing Tatum.
Þess á milli lék hún m.a. í rómantísku
gamanmyndinni Wedding Crashers,
jólamyndinni The Family Stone,
ævintýra myndunum um Sherlock
Holmes og mynd Woody Allen, To
Rome With Love.
Fyrir skömmu kom síðan
rómantíska myndin About Time
í kvikmyndahús en hún er úr
smiðju þeirra sömu og gerðu
myndirnar Love Actually, Notting
Hill og Four Weddings and a
Funeral.
Býr í Kanada
Rachel Anne McAdams er kanadísk
og þrátt fyrir að hafa slegið í gegn í
Hollywood hefur hún engan áhuga
á að búa meðal stjarnanna í Los
Angeles. Hún býr í Toronto og deilir
íbúð með yngri bróður sínum. „Það
er liðin tíð að flestar myndir séu
teknar upp í Hollywood þannig að
það þjónar engum tilgangi að búa
þar,“ segir Rachel sem stundar
kundalini jóga og hefur gaman
af garðyrkju og matreiðslu. Hún
hefur sagt frá því að ef hún væri
ekki leikkona þá myndi hún opna
veitingastað.
Heima um jólin
Rachel er mikið jólabarn og segir
að jólahaldið sé alltaf svipað. „Ég
er alltaf í faðmi fjölskyldunnar um
jólin og það er mikið lagt upp úr
jólamatnum,“ segir leikkonan.
„Við skiptumst á að sjá um matinn
og leggja á borð en mér finnst
skemmtilegast að sjá um að brúna
kartöflurnar.“
Hún segir að systkinin haldi fast
í gamlar venjur á jólunum. „Við
hengjum alltaf upp jólasokkana
okkar og fáum eitthvert góðgæti
frá jólasveininum. Mamma sagði
okkur að það væri kominn tími til að
hætta þessu þar sem við systkinin
værum komin yfir þrítugt en við
þvertökum fyrir það. Þetta er það
skemmtilegasta við jólin.“
ÞRJÁR GÓÐAR MEÐ RACHEL McADAMS