Fréttablaðið - 05.12.2013, Side 101
TU JÓLIN
Á FLÓRÍDA
ÞRIÐJUDAGSKVÖLD MEÐ FRIKKA DÓR
Þriðjudaga kl. 21.10
DJÓKAÍN
27. DESEMBER KL. 21.25
HUGLEIKUR
LÆTUR ALLT FLAKKA
Grínistinn og skop-
teiknarinn Hugleikur
Dagsson hefur ferðast
víða með uppistandið
Djókaín og fengið
frábærar viðtökur. Á milli
jóla og nýárs sýnir Stöð
3 upptöku frá frábæru
uppi standi Hugleiks í
Háskólabíói á dögunum.
„Þetta er efni sem ég hef
samið síðustu þrjú ár eða svo.
Í ár hef ég ferðast um landið
með það, í þeim tilgangi að
fullkomna flutninginn,“ segir
Hugleikur. „Viðfangsefni mín
eru af öllum toga. Ég velti
vöngum yfir klámvæðingu,
barneignum, Star Wars,
Svíþjóð, Gillzenegger,
þjóðmenningu, slangri og
Brúðubílnum. Það er rétt
að taka fram að sýningin
er ekki fyrir lítil börn. Ég
er hugsanlega dónalegasti
grínisti landsins. Svo er mér
allavega tjáð. Persónulega
veit ég ekki alveg hvað
dónaskapur er. Mér finnst ég
bara vera einlægur,“ segir
Hugleikur.
Sú þáttaröð sem hefur
komið mest á óvart í
banda rísku sjónvarpi
í haust er Sleepy
Hollow sem hefur náð
feiknalegum vinsældum
á stuttum tíma. Þættirnir
hófu göngu sína á
Stöð 3 í nóvember.
Þættirnir eru byggðir á sígildri
smásögu frá 1820 en núna er
aðalsöguhetjan Ichabod Crane
kominn til nútímans og berst
við hauslausan riddara, nornir
og önnur skrímsli. Enginn bjóst
við að þættirnir yrðu eins vin-
sælir og raun ber vitni en þökk
sé góðum húmor og vandaðri
handritsgerð hafa þeir slegið
í gegn. Meira að segja fram-
leiðandi þáttanna er steinhissa.
„Satt best að segja er ég alveg
gáttaður á þessu en að sama
skapi himinlifandi,“ segir Alex
Kurtzman, aðalframleiðandi
Sleepy Hollow.
SLEEPY HOLLOW
MIÐVIKUDAGA KL. 21.45
SLÆR Í GEGN
SLEEPY HOLLOW