Fréttablaðið - 16.12.2013, Page 22
FÓLK|HEIMILI
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn
Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
NOTAR MIKIÐ
„Núorðið nota ég spjald-
tölvuna miklu meira en
hefðbundna tölvu. Ég er
miklu fljótari að skipta
milli forrita og fara úr
einu í annað,“ segir Örn
Ingimundarson.
MYND/STEFÁN
Spjaldtölvur hafa náð mikilli út-breiðslu um allan heim og er Ísland þar engin undantekning.
Börn, unglingar og foreldrar þeirra hafa
notað þær undanfarin ár og nú eru afar
og ömmur að stíga sín fyrstu skref í
notkun þessara skemmtilegu tækja.
Spjaldtölvan er sérstaklega heppileg-
ur kostur fyrir þennan aldurshóp enda
afar einföld og þægileg í notkun. Það er
einnig hægt er að nota hana hvar sem
er á heimilinu eða kippa henni með þeg-
ar farið er út úr húsi. Einn úr þessum
aldurshópi sem á spjaldtölvu og er að
fikra sig áfram í notkun hennar er Örn
Ingimundarson, fyrrverandi skipstjóri,
en eiginkona hans, Erla Hallgrímsdóttir,
gaf honum iPad spjaldtölvu í jólagjöf á
síðasta ári. „Ég kunni auðvitað ekkert á
gripinn í upphafi. Síðan þegar styttist í
brottför okkar til Kanaríeyja langaði mig
nú að vita betur hvað ég hafði í höndun-
um svo ég hefði gagn af spjaldtölvunni.
Ég vildi læra t.d. hvernig ég gæti hlust-
að á útvarpið í henni og lesið Moggann
minn og auðvitað ýmislegt fleira.“
FÉKK EINKAKENNSLU
Örn lagði leið sína í Árskóga í neðra
Breiðholti þar sem félagsstarf eldri
borgara fer fram. Þar hugðist hann leita
sér aðstoðar vegna spjaldtölvunnar og
var svo heppinn að fá einkakennslu. „Ég
var svo heppinn að hitta á ungan mann
sem starfaði þar tímabundið
við ýmis tölvu- og
tæknimál. Þetta
var mikið tölvu-
gúrú sem tók
mig í einkatíma
og kenndi mér
margt gagnlegt.
Þessi kennsla
hjálpaði mér að
komast af stað og
nú vill maður bara
læra meira og meira.
Reyndar segja blessuð
barnabörnin mín að
maður eigi bara að fikta nógu mikið en
á þessum aldri er maður kannski ekki
alveg tilbúinn til þess,“ segir Örn sem
er 75 ára gamall.
Í dag notar Örn spjaldtölvuna til
ýmissa hluta. Hann les dagblöðin og
tölvupóstinn og notar hana í banka-
viðskiptum. „Svo er dóttursonur minn
flugmaður og ég hef sett inn flugradar-
inn inn á spjaldtölvuna. Þannig get ég
fylgst með honum, séð hvenær hann er
í loftinu og hvar hann er staddur hverju
sinni. Auk þess fylgist ég með skipaum-
ferð enda gamall skipstjóri. Núorðið
nota ég spjaldtölvuna miklu meira en
hefðbundna tölvu. Ég er miklu fljótari
að skipta milli forrita og fara úr einu í
annað. Enn sem komið er horfi ég ekki
á bíómyndir og spila ekki heldur tölvu-
leiki. Svo nota ég ekki Facebook, það
eru alveg hreinar línur.“
HÁLFGERÐ HEBRESKA
Hann segir misjafnt hvar jafnaldrar hans
eru staddir þegar kemur að notkun
spjaldtölva. „Ég fer í sund daglega. Þegar
við spjöllum saman í pottinum og ég seg-
ist hafa lesið eitthvað í spjaldtölvunni
skilja sumir hvað ég á við en fyrir öðrum
er þetta eins og hebreska.“
Örn stefnir á að læra enn frekar á
spjaldtölvuna sína á næstunni og segist
fara á fyrsta námskeið sem verður aug-
lýst hjá Árskógi. „Mig langar alltaf að
læra eitthvað nýtt og meira enda
finnst mér tækið prýðis góð af-
þreying. Það er líka mikill munur
fyrir mann eins og mig sem var
hálf sambandslaus í 40 ár úti á
sjó að vera alltaf tengdur. Sér-
staklega er það gott í útlönd-
um en við hjónin ferðumst
mikið og þykir gott að vera í
reglulegu sambandi við fjöl-
skyldu okkar og vini.“
ALLTAF TIL Í AÐ LÆRA
EITTHVAÐ NÝTT
LÆRDÓMSFÚS AFI Það er ekki eingöngu unga fólkið sem notar spjaldtölvur.
Nú eru afar og ömmur farin að fikra sig áfram með notkun hennar enda er
hún auðveld og þægileg í notkun.
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot
á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum
25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar
þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex
daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu.
Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða
þjónustu beint inn á heimilin.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
JÓLAGJÖF Örn fékk iPad í
jólagjöf í fyrra frá eiginkonu
sinni.