Fréttablaðið - 16.12.2013, Side 44
16. desember 2013 MÁNUDAGUR| MENNING | 28
➜ Kanillinn
er svo gott
mótvægi við
hunangið og
það þarf ekki
að bæta sykri í
þennan girni-
lega kakódrykk.
www.postur.is
HVERSU HRATT ÞURFA
A-póstur
Dreifing fyrsta virka dag eftir póst-
lagningu. Síðasti skiladagur fyrir:
A-póst utan Evrópu er 10. des.
A-póst til Evrópu er 16. des.
A-póst innanlands er 19. des.
B-póstur
Dreifing innan 3 virkra daga eftir
póstlagningu. Síðasti skiladagur fyrir:
B-póst utan Evrópu er 3. des.
B-póst til Evrópu er 10. des.
B-póst innanlands er 16. des.
VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA
jólakortin að berast?
Á vefsíðunni heilsutorg.is er að finna
girnilega uppskrift að heitu, heima-
löguðu súkkulaði sem svínvirkar í
skammdeginu á aðventunni. Í upp-
skriftinni eru vanillu-möndlumjólk,
ekta hrátt kakó, hunang og kókosolía.
Innihaldsefnin:
Þetta er miðað við fyrir tvo.
■ 2 bollar af vanillu-möndlumjólk.
■ 1 tsk. af hráu ekta kakói
■ 1 tsk. af lífrænu hunangi
■ 1 tsk. af kókosolíu
■ 1/2 tsk. af kanil
Leiðbeiningar:
Hitið vanillu-möndlumjólkina en
alls ekki láta hana sjóða og bættu
svo restinni af uppskriftinni saman
við. Settu svo allt saman í blandar-
ann og láttu hrærast í um eina mín-
útu.
Kókosolían gefur kakóinu mýkt
og góða fyllingu. Kanillinn er svo
gott mótvægi við hunangið og það
þarf ekki að bæta neinum sykri eða
öðrum sætuefnum í þennan girni-
lega kakódrykk.
- lkg
Ekta heilsusamlegt heimalagað súkkulaði
Uppskrift að heitu súkkulaði sem inniheldur til dæmis möndlumjólk, kókosolíu, kanil og hunang.
GIRNI-
LEGT Það
jafnast
ekkert á
við það
að ylja
sér með
góðum
kakóbolla.
Leikarar í Rómeó og Júlíu á
Broadway buðu upp nokkra
muni tengda sýningunni til
styrktar baráttunni gegn
alnæmi. Þetta gerist árlega og
ákvað leikarinn Orlando Bloom
að bjóða upp sveitta skyrtu sem
hann hafði leikið í.
Idol-stjarnan og meðleikari
hans, Justin Guarini, sá um
uppboðið en á endanum slóg-
ust tveir aðdáendur um skyrt-
una þannig að Orlando reddaði
tveimur. Samkvæmt heimildum
Variety söfnuðust alls 71 þús-
und dollarar fyrir skyrturnar,
rúmlega 8,3 milljónir króna.
Nokkrir hjartaknúsarar hafa
tekið þátt í þessu uppboði í
gegnum árin en leikarinn Hugh
Jackman var upphafsmaður
átaksins árið 2004 þegar hann
seldi sveitt handklæði úr The
Boy from Oz. Þá buðu Hugh og
meðleikari hans, Daniel Craig,
upp skyrtur árið 2009 úr sýn-
ingunni A Steady Rain. Í fyrra
bauð Ricky Martin síðan upp
buxurnar sínar í Evitu.
Leikararnir í Rómeó og Júlíu
komu Justin Guarini á óvart
á einni sýningunni þegar þeir
réttu honum DVD-safn með
American Idol til að bjóða upp
en það fór á aðeins hundrað
dollara, tæplega tólf þúsund
krónur. - lkg
Sveitt
skyrta fyrir
8 milljónir
EFTIRSÓTTUR Orlando náði að safna
helling af peningi.
Bandaríska sjónvarpsstöðin
Starz hefur hætt við að sýna
sjónvarpsseríuna Fortitude sem
verður tekin upp hér á landi
eftir áramót. Kvikmyndafyrir-
tækið Pegasus mun þjónusta
tökuliðið á Íslandi en tökur fara
aðallega fram á Reyðarfirði.
Serían, alls þrettán þættir,
átti að vera samstarfsverkefni
Starz og Sky Atlantic í Bret-
landi en nú mun Sky Atlantic
sjá um alla fjármögnun á verk-
efninu. Lýkur samstarfinu í
góðu og ekki útilokað að sjón-
varpsstöðvarnar muni vinna
meira saman í framtíðinni sam-
kvæmt fréttatilkynningu frá
Starz.
Fortitude fjallar um friðsæl-
an smábæ en allt kemst í upp-
nám þegar morð er framið þar.
Ekki er enn ljóst hvaða leikarar
munu leika aðalhlutverkin. - lkg
Hætt við að
sýna Fortitude
á Starz
BÚIÐ SPIL Starz mun ekki sýna Forti-
tude.