Fréttablaðið - 16.12.2013, Page 45
MÁNUDAGUR 16. desember 2013 | MENNING | 29
„Á meðan landið var bundið frost-
böndum föstudaginn síðastliðinn
var haldin fyrsta Skype kennslu-
stund mannkynssögunnar frá
jökli,“ segir Páll Ásgeir Davíðs-
son, framkvæmdastjóri Vox
Naturae, en nemendur í Ohio í
Bandaríkjunum og Newcastle í
Bretlandi áttu kennslustund með
Páli Ásgeiri um mikilvægi jökla
þar sem hann stóð uppi á Gíg-
jökli.
Nemendurnir sem sátu í
kennslustofum báðum megin við
Atlantshafið fengu þannig tæki-
færi til að komast í tengsl við
jökulinn. „Við fórum inn í íshelli,
sáum beljandi jökulár, skoðuð-
um hversu mikið jökullinn hafði
hopað og ræddum af hverju jökl-
ar skipta máli fyrir börn sem búa
langt frá fjöllum og á suðlægari
slóðum,“ bætir Páll við.
Um er að ræða lið í undirbúningi
fyrir Celebrating Glaciers-herferð
Vox Naturae sem verður alþjóðleg
vitundarvakning og menntunar-
átak um jökla, snjó og ís.
„Nemendur, kennarar og jafn-
vel tæknimenn voru gagntekn-
ir af því að upplifa jökulinn og
af þeim skilaboðum sem jökull-
inn færir um hlýnandi loftslag.
Því er spáð að jöklar verði mest-
megnis horfnir af Íslandi á næstu
150-200 árum ef heldur fram sem
horfir,“ segir Páll Ásgeir. - ósk
Kenndi frá jökli í gegnum Skype
Páll Ásgeir Davíðsson stóð á Gígjökli og kenndi nemendum í Bretlandi og í Ameríku.
Á GÍGJÖKLI Páll Ásgeir talaði um mikilvægi jökla í beinni útsendingu.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Hið árlega jólabingó á Bravó
verður haldið á miðvikudags-
kvöldið klukkan 21 en þar er til
mikils að vinna. Meðal vinninga
eru jólabækur frá Forlaginu,
hangikjöt, rauðvín, bjór, konfekt
og ýmislegt annað.
Mikið verður lagt upp úr jóla-
legri stemningu á Bravó og verð-
ur spiluð jólatónlist allt kvöldið.
Bingóspjaldið kostar fimm
hundruð krónur og með því fylgir
ískaldur jólabjór en sérlegir
bingóstjórar eru þeir eiturhressu
Jóhann Alfreð og Jón Mýrdal.
- lkg
Jólabingó
Bravó
BINGÓSTJÓRI Jóhann Alfreð heldur
uppi stuðinu.
Poppdrottningin Beyoncé kom
aðdáendum sínum rækilega á
óvart á föstudaginn þegar hún
gaf út nýjustu plötu sína sem
heitir einfaldlega Beyoncé,
öllum að óvörum.
En hún var ekki eina popp-
stjarnan sem gaf út tónlist á
föstudaginn. Söngkonan Lorde
gaf út lagið No Better ásamt
myndbandi.
Söngkonan Lorde hefur gert
það gríðarlega gott á árinu og
sló í gegn með laginu Royals.
Lorde hins vegar féll í skuggann
af Beyoncé, sem sagðist með
sinni óvæntu útgáfu vera að
„tala beint til aðdáenda sinna“.
Þrátt fyrir allt er lagið No
Better að gera góða hluti á vin-
sældalistum vestanhafs, en
hefði án efa fengið að tróna þar
á toppnum hefði ekki verið fyrir
óvænt útspil Beyoncé. - ósk
Lorde í skugga
Beyoncé
LORDES Söngkonan unga hefur átt
mikilli velgengni að fagna á árinu.
AFP/NORDICPHOTOS
➜ Nemendur, kennarar og
jafnvel tæknimenn voru gagn-
teknir af því að upplifa jökulinn.