Fréttablaðið - 08.01.2014, Síða 2
8. janúar 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2
UMHVERFISMÁL „Við höfum ákveð-
ið að láta sandbera göngustíga við
Gullfoss, annað er ekki forsvaran-
legt,“ segir Ólafur Arnar Jónsson,
sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun.
Gríðarleg hálka hefur verið á neðra
bílaplaninu og á göngustígum í
grennd við fossinn síðustu vikur.
Fjöldi ferðamanna hefur dottið í
hálkunni og nokkrir slasast.
Ólafur Arnar segir að Umhverfis-
stofnun og sveitarfélagið Bláskóga-
byggð ætli að hafa samvinnu um
hálkuvarnirnar. Sveitarfélagið ætli
að leggja sitt af mörkum svo vegir
verði mokaðir. Umhverfisstofn-
un ætli að sjá um að láta sandbera
göngustíga. „Það verður farið í að
hálkuverja á næstu dögum,“ segir
Ólafur Arnar. Hann segir að ekki
sé ljóst hvað hálkuvarnirnar komi
til með að kosta en segir að þetta
séu ekki aðstæður sem hægt sé að
bjóða upp á lengur. Landeigendafé-
lagið við Geysi sér um að hálkuverja
stíga á hverasvæðinu.
Ólafur Örn Haraldsson, þjóð-
garðsvörður á Þingvöllum, segir að
innan þjóðgarðsins hafi stígar verið
sandbornir. „Um leið og við fengum
ábendingar um að stígarnir væru
orðnir hálir, ákváðum við að bregð-
ast við og sandbera þá. Við erum að
sandbera mun meira en við höfum
gert undanfarin ár,“ segir Ólafur.
„Ég ákvað fyrir þremur árum að
kaupa mannbrodda til að hafa til
taks í bílunum hjá mér, til að tryggja
öryggi farþega minna,“ segir Ómar
Djermoun, framkvæmdastjóri Ice-
limo Luxury Travel.
Það hefur verið mikil hálka í
vetur og mannbroddarnir hafa
komið að góðum notum.
„Margir þeirra sem ferðast með
okkur hafa aldrei stigið á svell í líf-
inu áður, því skiptir miklu máli að
hafa svona búnað,“ segir Ómar.
Hann segist oft vera spurður að
því hvers vegna hann sé að eyða
peningum í mannbrodda.
„Ég svara alltaf að ég sé að eyða í
öryggi. Maður græðir á því að fólki
líði vel,“ bætir hann við. Hann segir
að það sé oft gaman að sjá svipinn
á hans farþegum þegar þeir ganga
hála stíga styrkum fótum á meðan
aðrir séu stöðugt að renna til.
Ómar segir að mannbroddar kosti
sitt, góðir broddar kosti 16 þúsund
parið en það sé hægt að fá afslátt ef
maður kaupir þá í einhverju magni.
johanna@frettabladid.is
Með mannbroddana
til taks í bílunum
Framkvæmdastjóri ferðaskrifstofu segist hafa ákveðið að kaupa mannbrodda til
að forða fólki frá hálkuslysum. Umhverfisstofnun ætlar að láta sandbera stíga við
Gullfoss á allra næstu dögum. Á Þingvöllum er búið að sandbera stíga.
Á MANNBRODDUM „Ég ákvað fyrir þremur árum að kaupa mannbrodda og hafa
til taks til að tryggja öryggi farþega minna“, segir Ómar Djermoun MYND/ÓMAR
Maður
græðir á því að
fólki líði vel
Ómar Djermoun
DÓMSMÁL Sigurjón Þ. Árnason,
fyrrverandi bankastjóri Lands-
bankans, hefur verið beittur and-
legum pyntingum, eða í það minnsta
ómannúðlegri meðferð, segir Sig-
urður G. Guðjónsson, lögmaður
Sigurjóns, í grein sem birtist á
Vísi.is í dag. Hann segir að Sigur-
jóni hafi verið „haldið föngnum í
réttarstöðu sakbornings“ um árabil
á meðan stjórnvöld reyni að „hanna
á hann refsiverða háttsemi“.
Tilefni skrifanna er að í dag
mun Sigurður láta reyna á fyrir
héraðsdómi hvort ákæru á hendur
Sigurjóni verði vísað frá dómi. Sig-
urjón er ákærður, ásamt sautján
öðrum fyrrverandi starfsmönnum
Landsbankans, fyrir markaðsmis-
notkun með hlutabréf í Landsbank-
anum á árunum 2003 til 2008.
Kröfuna um frávísun byggir
Sigurður á því að við rannsókn
málsins hjá embætti sérstaks sak-
sóknara hafi Sigurjón ekki notið
réttlátrar málsmeðferðar.
Sigurður segir að ákæran eigi
rót sína að rekja til rannsóknar
og kæru Fjármálaeftirlitsins, sem
hafi verið vanhæft til meðferðar
málsins frá upphafi.
„Rannsókn sakargifta á hend-
ur Sigurjóni Þ. Árnasyni ber þess
vott að Ísland eftir hrunið í októ-
ber 2008 geti vart talist réttarríki,
nema dómstólar vísi ákæru á hend-
ur honum frá dómi,“ segir Sigurð-
ur í greininni.
Þar kemur og fram að Sigurður
hafi fengið nafnlausar hótanir um
limlestingar þegar hann hafi tjáð
sig um hrunmál. - kh
Sigurður G. Guðjónsson vill að ákæru á hendur Sigurjóni Þ. Árnasyni verði vísað frá héraðsdómi:
Sakar stjórnvöld um að beita pyntingum
UMSETINN Lögmaður Sigurjóns Árna-
sonar krefst þess að ákæru á hendur
honum verði vísað frá.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Marteinn, verður þetta
kannski mynd um ekki neitt?
„Ef við náum því að vera jafngóðir
og Seinfeld-þættirnir væri ég bara
kátur.“
Marteinn Þórsson gerir kvikmyndina Á
morgun verðum við eitt, sem kostar ekki
neitt og er án handrits.
REYKJAVÍK Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að
Höfðatorgi um klukkan 14 í gær þar sem tilkynnt var um eld á efstu
hæð byggingarinnar.
Allt húsið var rýmt og nærliggjandi götum var lokað en eldurinn,
sem sagður var afmarkaður á 20. hæð hússins, reyndist enginn vera.
Um var að ræða mótor í loftræstingu sem brann yfir og gaf frá sér
reyk. - hva
Allsherjarútkall Slökkviliðsins á höfðuborgarsvæðinu:
Enginn eldur á Höfðatorgi
ÚTKALL Allt tiltækt lið Slökkviðliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað að Höfða-
torgi í gær. Enginn eldur var en reykur hafði borist frá mótor í loftræstikerfi hússins.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
REYKJAVÍK „Okkur sást yfir að taka þessa hækkun með
og ég tek á mig ábyrgðina á því sem formaður bíla-
stæðanefndar sjóðsins. Þetta þurfum við að fara betur
yfir í nefndinni,“ segir Karl Sigurðsson, borgarfulltrúi
Reykjavíkurborgar og formaður bílastæðanefndar Bíla-
stæðasjóðs.
Gjaldskrá Bílastæðasjóðs hækkaði um hátt í 200%
í bílastæðahúsum um áramótin og kostar nú hver
klukkutími 150 krónur. Heill dagur, eða átta klukku-
stundir, kostuðu fyrir áramót 430 krónur en nú kostar
dagurinn 1.200 krónur. Er þetta hækkun upp á 179%.
Kolbrún Jónatansdóttir, framkvæmdastjóri Bíla-
stæðasjóðs, varði hækkunina í gær og sagði hana
tímabæra en bílastæðahúsin hafa mörg hver verið
rekin með tapi svo árum skiptir. Gjaldskrárhækkunin
var ákveðin í september í fyrra en borgarráð ákvað að
hætta við áformaðar hækkanir á gjaldskrám í öllum
þjónustuflokkum borgarinnar um miðjan nóvem-
ber. Karl segir að þá hafi hreinlega gleymst að ræða
hækkanir á gjaldskrá Bílastæðasjóðs.
Gjaldskrárhækkunin kom Halldóri Halldórssyni, odd-
vita sjálfstæðismanna í Reykjavík, verulega á óvart.
„Þetta kemur eins og þruma úr heiðskíru lofti. Ég átti
ekki von á þessu. Skýringin er að þetta hafi ekki hækk-
að í mörg ár en þetta er samt sem áður ekki í samræmi
við yfirlýsingar meirihlutans um að halda aftur af
gjaldskrárhækkunum.“ Hann segir að þetta sendi nei-
kvæð skilaboð út í samfélagið og ætlar að taka málið
upp innan borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna.
Spurður að því hvort til greina komi að endurskoða
gjaldskrárhækkunina, segir Karl að þau mál þurfi að
ræða sérstaklega. -ka
Gjaldskrá Bílastæðasjóðs hækkaði um hátt í 200% um áramótin:
Gjöldin hækkuð fyrir mistök
TEKUR ÁBYRGÐINA Á SIG Karl Sigurðsson, borgarfulltrúi og
formaður bílastæðanefndar Bílastæðasjóðs, segir að gjaldskrá
Bílastæðasjóðs hafi verið hækkuð fyrir mistök. Hann tekur
ábyrgðina á sig.
SÝRLAND, AP Fyrstu efnavopn-
in voru í gær flutt frá Sýrlandi
með dönsku flutningaskipi, en
efnunum á að eyða á hafi úti
samkvæmt samkomulagi sem
gert var í haust.
Flutningaskipið mun bíða úti
fyrir höfninni þangað til næsti
skammtur verður tilbúinn til
flutnings frá Sýrlandi, en á end-
anum verða efnin flutt um borð
í bandarískt herskip, Cape Ray,
sem hefur verið útbúið með sér-
stökum búnaði til þess að eyða
efnavopnum. - gb
Fyrstu vopnin flutt á brott:
Efnavopnunum
eytt á hafi úti
UTANRÍKISMÁL Gunnar Bragi
Sveinsson utanríkisráðherra segir
að sögulegt skref verði stigið í nor-
rænu samstarfi með þátttöku Finn-
lands og Svíþjóðar í loftrýmiseftir-
liti á Íslandi í næsta mánuði.
Ráðherra hitti Erkki Tuomioja,
finnskan starfsbróður sinn, á
fundi í Helsinki í gær, en í tilkynn-
ingu segist Gunnar Bragi fagna
auknu samstarfi ríkjanna á sviði
öryggismála. Á fundinum var einn-
ig fjallað um samstarf ríkjanna,
meðal annars á vettvangi Norður-
skautsráðsins. - þj
Ráðherra um loftrýmismál:
Sögulegt skref
að fá Finna með
SPURNING DAGSINS
Alveg mátulegur
Heimilis
GRJÓNAGRAUTUR
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA