Fréttablaðið - 08.01.2014, Síða 6
8. janúar 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hvað hafa margir erlendir ferða-
menn lent í hálkuslysum í Árnessýslu
frá því í desember?
2. Hvaða íslenski tónlistarmaður fékk
fjórar stjörnur hjá kanadískum fjöl-
miðli fyrir nýjustu plötuna sína?
3. Hversu mikið af fílabeini eyðilögðu
kínversk yfi rvöld í vikunni?
SVÖR:
1. 10. 2. Björn Thoroddsen.
3. Rúmlega 6 tonn.
DAGVISTUN Félagsstofnun stúdenta
(FS) herti reglur um dagvistunar-
pláss fyrir stúdenta Háskóla Íslands
þegar grunur kom upp um misnotk-
un á þjónustu ungbarnaleikskóla
stofnunarinnar. Stúdentar þurfa nú
að sýna fram á lágmarks námsfram-
vindu.
Reykjavíkurborg herti einnig
reglur um námsmannaafslátt vegna
dagvistunar og þurfa nú báðir for-
eldrar að vera í námi en áður nægði
að annað foreldrið væri námsmaður.
Um helmingsfækkun hefur orðið á
umsóknum um námsmannaafslátt í
Reykjavík frá því að breytingarnar
tóku gildi árið 2011.
„Eftir að við heyrðum sögu-
sagnir um að fólk væri að skrá sig
í háskólann til að koma börnum í
leikskólana hertum við skilyrðin
fyrir leikskólavist,“ segir Rebekka
Sigurðardóttir, upplýsingafulltrúi
FS. „Nú er gerð krafa um lágmarks
námsframvindu, svipað og hjá Stúd-
entagörðum, til að tryggja að þetta
séu örugglega stúdentar sem séu
þarna með börnin, en ekki fólk á
vinnumarkaði,“ segir Rebekka, en
hún segir langan biðlista vera eftir
leikskólaplássum.
Hertar reglur tóku gildi um mitt
ár 2012. Þar er gert ráð fyrir því
að foreldri ljúki að minnsta kosti
40 einingum á ári, eða tveimur
þriðju hlutum þess sem viðkom-
andi háskóladeild telur eðlilega
framvindu fyrir eins árs nám, segir
Rebekka, en lágmarkið er átján ein-
ingar á haustönn. Þó eru veittar
undanþágur ef ástæða þykir til.
„Þessar reglur voru teknar upp að
gefnu tilefni, enda viljum við þjóna
stúdentum sem eru í fullu námi,“
bætir Rebekka við.
Námsmenn sem búa í Reykjavík
fá námsmannaafslátt vegna dagvist-
unar, en frá því árið 2011 hafa báðir
foreldrar þurft að vera í fullu námi
til að njóta afsláttarins. Ólíkt leik-
skólum FS þurfa foreldrar barna á
öðrum leikskólum hins vegar ekki
að sýna fram á lágmarks náms-
framvindu og geta því látið nægja
að skrá sig í nám.
Námsmenn greiða rúmar 26.000
krónur á mánuði hjá leikskólum FS,
fái þeir niðurgreiðslu Reykjavíkur-
borgar. Þegar eingöngu annað for-
eldrið er í námi er gjaldið aftur á
móti afar hátt eða rúmar 55.000
krónur á mánuði. Margir foreldr-
ar velja samt sem áður að nýta sér
þjónustu FS, enda önnur dagvistun
einnig kostnaðarsöm og víða skort-
ur á öðrum úrræðum fyrir þennan
aldurshóp barna.
eva@frettabladid.is
Hert á reglum vegna
gruns um svindl
Félagsstofnun stúdenta grunaði að fólk skráði sig í Háskóla Íslands til að koma
börnum sínum að í leikskólum stofnunarinnar. Nýjar reglur gera kröfu um lág-
marks námsframvindu og Reykjavíkurborg hefur einnig hert reglur sínar.
Helmingsfækkun varð á umsóknum um námsmannaafslátt vegna dagvist-
unar eftir að Reykjavíkurborg breytti reglum, samkvæmt upplýsingum frá
skóla- og frístundassviði Reykjavíkurborgar.
Reykjavíkurborg niðurgreiðir dagvistun fyrir námsmenn, jafnt hjá
leikskólum borgarinnar, sjálfstætt starfandi leikskólum og dagforeldrum.
Árið 2010 ákvað borgarstjórn Reykjavíkur að gera breytingar á gjaldskrá
leikskóla og var námsmannaafsláttur sambúðarfólks og hjóna, þar sem
annað var í námi, felldur niður. Nú njóta um 250 námsmenn í Reykjavík
afsláttar, þar af eru hundrað með börn í sjálfstætt starfandi skólum og hjá
dagforeldrum. Námsmenn þurfa að leggja fram námsvottorð, en engin
krafa er gerð um þeir sýni fram á eðlilega námsframvindu, líkt og gert er
hjá Félagsstofnun stúdenta.
Helmingsfækkun hjá Reykjavík
123 pláss Leikskólar FS
133 pláss Ársól, Lundur og Korpukot
Alls eru þetta 256 pláss, þar af nærri helmingur eingöngu
fyrir námsmenn Háskóla Íslands.
➜ Ungbarnaleikskólar í Reykjavík
LEIKSKÓLAR STÚDENTA Ungbarnaleikskólar Félagsstofnunar stúdenta eru
umsetnir og lék grunur á að fólk skráði sig í nám gagngert til þess að fá þar inni
fyrir börn sín. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SAMFÉLAG Janúar er sá mánuð-
ur ársins sem flestir sækja um
skilnað í Stokkhólmi, samkvæmt
könnun sem sænska blaðið Dagens
Nyheter hefur gert. Skilnaðar-
umsóknirnar eru fimm til fimm-
tíu prósentum fleiri í janúar en í
öðrum mánuðum. Í janúar í fyrra
sóttu 877 um skilnað, 682 í júní en
558 í desember.
Dagens Nyheter hefur það eftir
Christinu Hermanrud, sálfræð-
ingi og sérfræðingi í fjölskyldu-
tengslum, að náin samvera um
jólahátíðina kunni að reyna á sam-
bönd sem þegar eru komnir brest-
ir í. Hún segir að samtímis séu
menn oft með sérstakar væntingar
til frísins. Komi þá upp vandamál
sé auðvelt að einblína á vandann
sem var fyrir.
Samkvæmt upplýsingum frá
Sýslumanninum í Reykjavík er
ekki hægt að merkja að fleiri
umsóknir um skilnað berist til
embættisins í janúar en öðrum
mánuðum. Í janúar í fyrra bár-
ust 40 ný skilnaðarmál til Sýslu-
mannsins í Reykjavík. Í júní barst
41 skilnaðarumsókn en 55 í des-
ember. Alls bárust 423 skilnaðar-
umsóknir til embættisins í fyrra.
Í Bretlandi er fyrsti vinnudagur-
inn í janúar kallaður D-dagurinn,
það er Divorce-day eða skilnaðar-
dagur. - ibs
Flestar umsóknir um skilnað berast í janúar í Svíþjóð og Bretlandi:
Janúar er skilnaðarmánuðurinn
BRÚÐHJÓN Ekki berast fleiri umsóknir
um skilnað hér á landi í janúar en í
öðrum mánuðum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
KJARASAMNINGAR Félög fram-
haldsskólakennara og stjórnenda
í framhaldsskólum eiga í viðræð-
um við samninganefnd ríkisins um
endurnýjun kjarasamnings sem
rennur út í lok þessa mánaðar en
hátt í 2.000 ríkisstarfsmenn eru í
Kennarasambandi Íslands.
Fimm samningafundir hafa verið
haldnir, en félögin kynntu ríkinu
hugmyndir sínar í byrjun desem-
ber. Í ljósi mjög slakrar launa- og
kaupmáttarþróunar félagsmanna
KÍ í framhaldsskólum undanfarin
ár má vænta þess að samningar
verði erfiðir.
Grunnlaun nýútskrifaðs fram-
haldsskólakennara með fimm ára
háskólamenntun eru um 300 þús-
und krónur á mánuði.
Samninganefndir kennara og
stjórnenda í framhaldsskólum
leggja áherslu á að í þeirri samn-
ingsgerð sem nú er hafin þurfi að
leiðrétta laun í framhaldsskólum
og gera launakjörin sambærileg
við það sem gerist hjá skyldum
hópum. - jme
Nýútskrifaður framhaldsskólakennari með 300 þúsund krónur í mánaðarlaun:
Erfiðar samningaviðræður
VIÐRÆÐUR HAFNAR Samningar
kennara renna út í lok mánaðarins. Við-
ræður um nýjan samning eru hafnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÞÝSKALAND, AP Náttúruhamfarir
kostuðu um tuttugu þúsund manns
lífið á nýliðnu ári, en eignatjón
er metið á tæplega 15.000 millj-
arða króna. Mest tjón varð vegna
fellibylsins Haiyan, sem reið yfir
í nóvember. Hann kostaði nærri
6.100 manns lífið, flesta í Filipps-
eyjum.
Manntjónið varð um það bil
helmingi meira en árið 2012, en
eignatjónið varð minna. Árið 2012
var eignatjón rúmlega 20.000
milljarðar króna. - gb
Náttúruhamfarir síðasta árs:
Kostuðu nærri
20.000 mannslíf
Svo létt á brauðið
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
57
65
5
Löður er með Rain-X
á allan bílinn
Við erum á sex stöðum á höfuðborgarsvæðinu
www.lodur.is - Sími 544 4540
Rain-X býður upp á fullkomna yfirborðsvörn
Rain-X verndar bílinn, eykur útsýni og öryggi
Hreinn bíll eyðir allt að 7% minna eldsneyti
VEISTU SVARIÐ?