Fréttablaðið - 08.01.2014, Blaðsíða 20
| 2 8. janúar 2014 | miðvikudagur
Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á
Fimmtudagur 9. janúar
➜ ÍMARK spáin 2014
➜ Gistinætur á hótelum í nóvember
2013
➜ Efnahagslegar skammtímatölur í
janúar 2014
Föstudagur 10. janúar
➜ Hagar – Uppgjör 3. ársfjórðungs
➜ Skattadagur Deloitte
Þriðjudagur 14. janúar
➜ Atvinnuleysi í desember 2013
Miðvikudagur 15. janúar
➜ Fjármál ríkissjóðs á greiðslugrunni
og peningalegar eignir og skuldir
ríkissjóðs – stöðutölur í nóvember
2013.
Fimmtudagur 16. janúar
➜ Fiskafli í desember 2013
Dagatal viðskiptalífsins
dagatal viðskiptalífsinsl i i lí i
Gengi félaga í Kauphöll Íslands
Á UPPLEIÐ
Félög sem hækkuðu
í verði
Á NIÐURLEIÐ
Félög sem lækkuðu
í verði
STÓÐU Í STAÐ
Félög sem stóðu
í stað
MESTA HÆKKUN
ICELANDAIR
5,5% frá áramótum
ICELANDAIR
5,5% í síðustu viku
MESTA LÆKKUN
N1
-1,1% frá áramótum
N1
1,1% í síðustu viku
8
2
4
Aðallisti Kauphallarinnar | Nasdaq OMX Iceland
Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting
Atlantic Airways (DKK) 153,00 0,0% 0,0%
Atlantic Petroleum (DKK) 145,00 0,0% 0,0%
Bank Nordic (DKK) 130,00 0,0% 0,0%
Eimskipafélag Íslands 262,00 1,0% 1,0%
Fjarskipti (Vodafone) 28,40 4,2% 4,2%
Hagar 40,00 4,2% 4,2%
Icelandair Group 19,20 5,5% 5,5%
Marel 136,00 2,3% 2,3%
N1 18,65 -1,3% -1,3%
Nýherji 3,65 0,0% 0,0%
Reginn 15,55 1,3% 1,3%
Tryggingamiðstöðin 31,90 -0,5% -0,5%
Vátryggingafélag Íslands 10,80 0,1% 0,1%
Össur 231,00 0,9% 0,9%
Úrvalsvísitalan OMXI6 1.303,07 3,5% 3,5%
First North Iceland
Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting
Century Aluminum 1150,00 0,0% 0,0%
Hampiðjan 13,25 0,0% 0,0%
HB Grandi 22,00 0,0% 0,0%
Sláturfélag Suðurlands 1,22 0,0% 0,0%
Gengi íslensku krónunnar í árs-
byrjun er umtalsvert lægra en
á sama tíma í fyrra. Þá er verð-
bólguþrýstingur minni um þessar
mundir. Þetta kemur fram í morg-
unkorni Íslandsbanka. Þróunin
eykur trú á getu Seðlabankans til
að halda gengissveiflum í skefjum,
auk þess sem bankinn hefur náð
að afla sér töluverðs gjaldeyris
síðustu mánuði. Þá hefur þróunin
dregið úr verðbólguvæntingum.
Gengisþróun krónunnar hefur
verið ólík í vetur því sem var árin
á undan. Frá nóvemberbyrjun
2013 hefur krónan styrkst um ríf-
lega fjögur prósent gagnvart körfu
helstu gjaldmiðla og hefur hún
ekki verið sterkari á þennan mæli-
kvarða síðan í maí síðastliðnum.
Íslandsbanki nefnir ýmsar
ástæður fyrir þessari þróun,
afborganir erlendra lána fyrir-
tækja og opinberra aðila eru tals-
vert smærri í sniðum þennan
veturinn en áður. Þá hefur gjald-
eyrisstaða Landsbankans breyst
mikið og endurspeglast sterk
lausafjárstaða bankans í gjald-
eyri, meðal annars í 50 milljarða
króna fyrirframgreiðslu hans
inn á skuldabréf gagnvart þrota-
búi gamla Landsbankans. Að auki
hefur gjaldeyrisinnflæði vegna
ferðamanna og vöruviðskipta auk-
ist milli ára og ferðamannastraum-
ur utan háannatíma hefur vaxið
umtalsvert.
Þróunin hefur verið jákvæð
fyrir stefnu Seðlabankans varð-
andi gjaldeyrisviðskipti á mark-
aði sem kynnt var síðastliðið vor,
þar sem bankinn hagar kaupum
og sölu á markaði í samræmi við
markmið um að lágmarka geng-
issveiflur. Frá því Seðlabankinn
kynnti nýja gjaldeyrisstefnu í maí
síðastliðnum hefur dregið talsvert
úr gengissveiflum, hvort sem litið
er á daglegar gengisbreytingar
eða hreyfingar milli mánaða, þó
fleira komi þar til.
Í morgunkorninu segir að
stundum hafi verið haft á orði að
afskipti Seðlabankans af gjald-
eyrismarkaði væru ósamhverf
á þá leið að hann væri fljótari til
að selja gjaldeyri úr forða sínum
þegar krónan veiktist en svifa-
seinni við gjaldeyriskaup þegar
krónan væri í styrkingarfasa.
Gjaldeyriskaup síðustu mánaða
sýna þó að gjaldeyrisstefnunni
er framfylgt bæði þegar kemur
að kaupum og sölu. Það er mikil-
vægt þar sem það myndi reynast
skammgóður vermir að nota skuld-
settan gjaldeyrisforðann til þess
að halda aftur af gengisveikingu,
án þess að gjaldeyris væri aflað í
forðann að nýju þegar betur stend-
ur á.
Krónan er óvenju
sterk í ársbyrjun
Gengið er talsvert lægra en það var á sama tíma í fyrra. Greiningardeild Íslands-
banka segir þróunina jákvæða fyrir nýja gjaldeyrisstefnu Seðlabankans sem hefur
verið samkvæmur stefnunni bæði í kaupum og sölu síðan hún var kynnt í maí.
GENGISÞRÓUN krónunnar hefur í vetur verið ólík því sem verið hefur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot
á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum
25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar
þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga
vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu.
Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða
þjónustu beint inn á heimilin.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
Tekjur tæknifyrirtækisins Face-
book af auglýsingum í snjall-
tækjum jukust um 429 prósent
á þriðja ársfjórðungi 2013, sam-
anborið við sama fjórðung árs-
ins 2012.
Fyrirtækið byrjaði illa á hluta-
bréfamarkaði í maí 2012 en
blaðinu hefur verið snúið við og
síðan verð hlutabréfa þess náði
lágmarki árið 2012 hefur það
hækkað aftur um 208 prósent.
Greinendur reikna með að
Face book tilkynni á næstunni um
að heildartekjur fyrirtækisins
hafi aukist um meira en fjörutíu
prósent milli ára. Þannig koma
um þrír milljarðar Bandaríkja-
dala af tekjum fyrirtæksins, eða
ríflega þriðjungur, frá auglýsing-
um í gegnum snjallsíma.
Árið 2012 hóf fyrirtækið að
selja fleiri auglýsingar í frétta-
dálk síðunnar „News feed“, sem
staðsett er fyrir miðju skjásins
þar sem uppfærslurnar birtast og
um 1,2 milljarður notenda Face-
book eyðir tíma sínum. - fbj
Tæknifyrirtækið Facebook hagnast gríðarlega á auglýsingum í snjalltækjum:
Snjalltækjatekjur hjá Facebook
Eignastýringarþjónusta Íslands-
banka, VÍB, hefur undirritað
samstarfssamning við Black-
Rock, stærsta eignastýringar-
aðila heims.
BlackRock er með um 3.800
milljarða Bandaríkjadala í stýr-
ingu og starfsemi í 30 löndum.
Starfsmenn BlackRock eru yfir
tíu þúsund talsins og margir af
stærstu lífeyrissjóðum og trygg-
ingafélögum heims nýta eigna-
stýringarþjónustu BlackRock.
Í tilkynningu frá Íslandsbanka
er haft eftir Stefáni Sigurðssyni,
framkvæmdastjóra VÍB, þar sem
hann segist mjög stoltur af því að
BlackRock hafi valið þau til sam-
starfs á Íslandi.
„Samkvæmt könnun Capacent
myndu flestir velja að leita til
VÍB og Íslandsbanka eftir eigna-
stýringarþjónustu eða 31% og er
samstarfið við BlackRock liður í
því að halda áfram að vera leið-
andi í þjónustu til viðskiptavina.
Við vonum svo sannarlega að
þess sé ekki langt að bíða að ís-
lenskir sparifjáreigendur og fag-
fjárfestar geti nýtt sér þjónustu
BlackRock og VÍB erlendis í
auknum mæli,“ segir Stefán í til-
kynningunni.
Vegna fjármagnshafta gefst
einungis viðskiptavinum sem
eiga erlendar eignir eða hafa
heimild til endurfjárfestingar í
erlendum verðbréfum kostur á
að fjárfesta í vörum BlackRock.
- fbj
Semja við stærsta eignastýringarfyrirtæki heims:
VÍB í samstarf við BlackRock
ÍSLANDSBANKI Samstarfið er liður í stefnu
VÍB að bjóða viðskiptavinum sterkt vöru-
og þjónustuframboð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MARK ZUCKERBERG Stofnandi og
framkvæmdastjóri Facebook. MYND/AFP
EFNAHAGSMÁL
Fanney Birna Jónsdóttir | fanney@frettabladid.is