Fréttablaðið - 03.04.2014, Side 1

Fréttablaðið - 03.04.2014, Side 1
FRÉTTIR U nnur Pálmarsdóttir MBA, eigandi og framkvæmda-stjóri Fusion Fitness Academy og stöðvarstjóri World Class á Seltjarnarnesi, hefur stundað líkamsrækt um langt skeið með frábærum árangri. Hún hefur kennt heilsurækt, þol-fimi og dansfitness úti um allan heim í yfir 30 löndum og á að baki fjölda Íslandsmeistaratitla. „Ég trúði því varla hvað Magnesíum Sport-spreyið virkaði vel! Eftir þungar líkams-æfingar og mikið svitatap er frábært að taka inn steinefnið magnesíum því við töpum því í gegnum svita og það getur leitt af sér aukna þreytu, harðsperr-ur og vöðvakrampa. Magnesíum Sport-spreyið er sérstaklega áhrifaríkt við orkumyndun og endurheimt vöðva. Með því að spreyja magnesíum beint á húðina skilar það sér hratt og örugglega inn í frumur líkamans og tryggir hámarksupptöku. Mér finnst best að nota það á helstu álagspunkta líkamans fyrir og eftir æfingar og kvölds og morgna þegar ekki er æft tilað tryggja s MAGNESÍUMSPREY – HREINASTA SNILLDGENGUR VEL KYNNIR Unnur Pálmarsdóttir, líkamsræktarfrömuður, hóptíma- kennari og stöðvarstjóri, hugsar vel um heilsuna. Hún kolféll fyrir Magnesíum Sport-spreyinu frá Better You og notar það ávallt fyrir og eftir æfingar enda tryggir það hámarksupptöku. KEMUR Í VEG FYRIR KRAMPA „Ég mæli með að allt íþróttafólksé með M GISELE SYNGURFyrirsætan Gisele Bündchen hefur tekið upp lagið He- art of Glass eftir Blondie fyrir H&M. Þetta er í annað sinn sem hún þenur raddböndin fyrir fatarisann en í fyrra söng hún lagið All Day and All of the Night eftir Kinks í auglýsingaherferð fyrir haust- og vetrarlínu fyrirtækisins. GOTT AÐ SPREYJA FYRIR OG EFTIR ÆFINGAR „Ég mæli eindregið með magnesíumspreyinu frá Better You því það hefur hjálpað mér við endurheimt vöðva og til að koma í veg fyrir krampa og harð-sperrur.“ FRANK LYMAN KJÓLADAGAR Frá fimmtudegi til laugardags 20-30% afsláttu MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Fimmtudagur 24 SÉRBLAÐ Fólk Sími: 512 5000 3. apríl 2014 79. tölublað 14. árgangur Starfsandinn lélegur Formaður Félags flugmálastarfs- manna ríkisins segir litla starfs- ánægju vera á Keflavíkurflugvelli. Hann vonast eftir stefnubreytingu með stjórnarskiptum hjá Isavia. 8 Nýtast tekjuháum betur Stjórnar- andstæðingar segja að skuldalækk- unarfrumvörpin nýtist tekjuháum betur en tekjulágum. 4 Hefur risið 15 sentimetra Sveitar- félagið Hornafjörður stendur 15 sentimetrum hærra er árið 1997. 10 Syfjaður af snúsi Best er að koma sér upp föstum svefnvenjum í stað þess að berjast við vekjaraklukkuna. 18 MENNING Dagbjört Andr- ésdóttir syngur og safnar með því fé til rannsókna. 40 LÍFIÐ Gísli Örn kynnir íslenskt leikhúsfólk fyrir heiminum. 58 SPORT Teitur Örlygsson nálgast 100 sigra í úrslita- keppninni í körfubolta. 54 OPIÐ TIL 21 Í KVÖLD Opið allan sólarhringinn í Engihjalla og Vesturbergi FRUMSTÆÐAR KRAFTLYFTINGAR Fangarnir í Kópavogsfangelsi hafa bundið saman kókfl öskur og nota þær sem lóð til kraft - lyft inga en laus lóð eru bönnuð í fangelsum. Þau æfi ngatæki sem föngum bjóðast eru gömul og úr sér gengin. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SKOÐUN Guðrún Þorgerður skrifar um búsetuúrræði fyrir utangarðsfólk. 28 FANGELSISMÁL Þröng staða í fang- elsismálum á Íslandi veldur því að karlar og konur dvelja saman í Kópavogsfangelsi. Fangels- ið hefur verið starfrækt í 25 ár en húsnæðið er úr sér gengið og býður ekki upp á fullnægjandi aðstæður fyrir fangana. Dæmi eru um að fangar af gagnstæðu kyni hafa dregið sig saman og myndað sambönd en þegar sú staða kemur upp eru karlkyns fangarnir sendir í önnur fangelsi til að ljúka afplán- un. Einar Andrésson, varðstjóri í Kópavogsfangelsi, segir að mörgu í aðstöðu fangelsisins sé ábóta- vant. Hann nefnir læknis aðstöðu fangelsisins sem dæmi en hún er jafnan kölluð kústaskápurinn vegna þess hve lítil hún er. Ný skjólgirðing á útisvæði fanganna kemur í veg fyrir að fangar sjáist inn um girðingu fangelsisins en fangelsið stendur í miðju íbúðahverfi. - ssb Í Kópavogsfangelsi eru bæði konur og karlar. Ekki er hægt að aðskilja kynin: Telja niður dagana í nýtt fangelsi TÍSKA Fyrirsætan Sigrún Eva Jónsdóttir vakti mikla athygli á Reykjavík Fashion Festival um síðustu helgi þar sem hún gekk tískupall- ana fyrir fimm mismunandi hönnuði. „Það var rosalega gaman en líka rosalega mikil vinna,“ segir Sigrún Eva. Fyrirsætuferill hennar hófst óvænt þegar hún var sautján ára og stödd í New York ásamt for- eldrum sínum. „Ég var í H&M þegar það kom einhver kona upp að mér og vildi fá mig á skrá sem fyrirsætu,“ segir hún en konan var útsendari fyrir umboðsskrifstofu Wilhelm- ina Models þar sem Sigrún Eva starfar í dag. - bþ / sjá nánar síðu 58 Módelið Sigrún Eva eftirsótt: Uppgötvuð í verslun H&M SIGRÚN EVA. Bolungarvík 6° A 3 Akureyri 6° SA 4 Egilsstaðir 5° A 5 Kirkjubæjarkl. 6° ASA 8 Reykjavík 7° ASA 9 Bjart með köflum víða um land en hætta á þokubökkum með ströndum. Súld með SA-ströndinni. Strekkingur allra syðst, annars mun hægari vindur. 4 Árin sem Kópa- vogsfangelsi hefur verið starfrækt. 25 MATVÆLI Í dag fer fram málþing um matarleifar í Norræna húsinu. Tilgangurinn er að vekja athygli á þeirri gríðarlegu verðmæta sóun sem á sér stað í matvælafram- leiðslu, smásölu og hjá neytendum. Enda hafi sóunin ekki eingöngu áhrif á matvælaverð heldur sé hún einnig mikið umhverfisvandamál. „Þrjátíu prósentum af mat sem kemur í verslanir hér á landi er hent. Í Evrópu er hent 90 milljónum tonna af mat á ári,“ segir Þuríður Helga Kristjánsdóttir, verkefna- stjóri hjá Norræna húsinu. „Þetta er matur sem hægt er að borða, oft er hann ekki kominn yfir síðasta sölu- dag. Stundum er það tilfellið en mat- urinn er samt alls ekki skemmdur.“ Þuríður segir að mögulega séu stórmarkaðir að rýma fyrir nýjum vörum og því sé eldri vörum hent. „Þetta er mikilvægt málefni út frá umhverfislegum og fjárhagslegum forsendum. Fólk hefur ekki efni á mat en svo er verið að henda honum í tonnatali. Sóunin er gríðarleg. Það er líka fleira í gámunum en matur, til dæmis klósettpappír sem er pínulítið rifinn, hreinsiefni og annað. Öllu er svo hrúgað í sama gáminn og engin flokkun,“ segir Þuríður. Hún segir forgangsmál hjá Nor- rænu ráðherranefndinni að taka á þessum vanda, meðal annars með því að samræma aðgerðir og koma upp matarbönkum. Slík tilraun hefur gefist vel í Noregi. „Þá geta verslanir farið með vörurnar sínar í matarbankann og bankinn dreifir til fátækra og heimilislausra, eða býr til súpu úr afgöngunum og býður upp á mat.“ ebg/ sjá síðu 20 Óskemmdum matvælum fleygt í tonnatali á Íslandi Þrjátíu prósentum af matvörum verslana er hent í ruslið hér á landi. Fjallað verður um áhrifin sem það hefur á málþingi í dag. Hópur fólks á Íslandi stundar þann lífsstíl „að rusla“ en það eru þeir sem fara í gámana og hirða óskemmdan mat til neyslu. Í Evrópu er níutíu milljónum tolla af mat hent á hverju ári. ➜ Ruslarar sem hirða mat úr gámum Björk Hólm Þorsteinsdóttir skrifaði BA-ritgerð um lífsstíl ruslara, eða þeirra sem safna mat úr gámum og neyta. Hún talaði við átta einstak- linga sem annaðhvort lifðu einungis á að rusla, eins og það er kallað, eða höfðu á einhverjum tímapunkti stundað það mikið. „Allir viðmælendur stunduðu þetta af vali og gerðu ekki af neyð. Það voru pólitísk sjónarmið sem létu þau fara þessa leið og þau vildu takmarka sína þátttöku í neyslusamfélaginu,“ segir Björk.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.