Fréttablaðið - 03.04.2014, Side 12

Fréttablaðið - 03.04.2014, Side 12
3. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | Orðsending til fanga í Kópavogsfangelsi Verði áframhald á því að reka þurfi karlfanga út af kvennaklefum eða kvenfanga út af karlaklefum, þá mun það leiða til skriflegra áminninga eða annarra agaviður- laga og síðan til flutnings viðkom- andi karlfanga úr Kópavogsfang- elsi á Litla-Hraun. Það verður ekki liðið áfram að fangar í fangelsinu brjóti ítrekað þessa meginreglu. Útprentað blað með þessum skýru skilaboðum hangir við inngang „kvennagangsins“ í Kópavogs- fangelsi. Við erum stödd á efstu hæð þess húss sem eitt sinn hýsti Unglingaheimili ríkisins en hefur gegnt hlutverki eina kvennafang- elsis Íslands í 25 ár. Gangurinn líkist frekar heimavist en fang- elsi, það eru engar lúgur á ramm- gerðum járnhurðum eins og sjást í kvikmyndum og fangarnir ganga lúnir um með tannburstann sinn í morgunsárið. Mér liði eins og ég væri stödd í sumarbúðum ef ekki væri fyrir það að heimsókn minni í fangelsið er tekið með flóttaleg- um augum og það er engin hress hrokkinhærð kona að vekja fang- ana með kristilegu glamri á gítar. Ég er meðvituð um að ég sé að ryðjast inn á þeirra allra heilag- asta, hnýsast þar sem ég á ekki að vera að hnýsast. Karlar í kvennafangelsi Það er lýsandi fyrir Kvennafang- elsið í Kópavogi að fyrsti fanginn sem við sjáum er húðflúraður karl. Hann er einn af fimm körlum sem dvelja í fangelsinu nú um stundir en sex konur eru í fangelsinu. Hlut- fall kvenna og karla í fangelsinu er breytilegt en oftar en ekki eru karlarnir fleiri en konurnar. Nú er beðið eftir einum fanga til við- bótar. Karlarnir ganga kokhraust- ari um fangelsið. Þeir eru til í að spjalla og hafa ekki áhyggjur af blaðamanni og ljósmyndara sem eru komnir til að skoða fangelsið og allan aðbúnað. Heimsókn okkar hefur engin áhrif á þá. Engir englar í hörðum heimi Einar Andrésson, varðstjóri í Kvennafangelsinu, segir að blönd- un karla og kvenna í fangelsum sé óæskileg. „Hingað koma konur sem hafa upplifað allan fjandann af hendi alls konar karla áður en þær koma í fangelsið. Svo eru þær lokaðar inni með nákvæmlega sömu týpum hér.“ Þeir karlar sem eru sendir til dvalar í kvenna- fangelsið eru valdir sérstaklega. Þeir eiga ekki mjög langt eftir af fangelsisvistinni og hafa ekki verið dæmdir fyrir kynferðisbrot. „En þetta eru engir englar,“ segir Einar. „Þeir hafa hrærst í sama heimi og þessar konur og þar hefur ýmislegt gengið á.“ Enginn aðskilnaður er í fangels- inu enda býður húsnæðið einfald- lega ekki upp á það. Hinn svo- kallaði „kvennagangur“ er ekki bannsvæði fyrir karla en körlum og konum er óheimilt að loka sig af hvorum á klefum annarra. „Þegar fólk er tekið úr harðri neyslu og lokað inni getur það verið mjög til- finningalega opið. Það er eiginlega allt galopið. En við reynum að vera vakandi fyrir samdrætti fanganna og sendum karlana þá burt ef slíkt er að eiga sér stað,“ segir Einar. Nurla saman fyrir tóbaki Karlar og konur vinna saman að þeim verkefnum sem í boði eru en tímakaupið í Kvennafangelsinu er 380 krónur. Laun í öðrum fang- elsum geta verið hærri, eða allt upp að 415 krónum, því þar er í boði fjölbreyttari vinna sem gefur meira í aðra hönd. Þennan morguninn sitja þrír karlar og ein kona við að líma ráð- stefnumöppur fyrir Íslenska erfða- greiningu. „Við erum að gera þetta fyrir hann Kára,“ segir fangi og skellir upp úr. „Við söfnum laun- unum saman til að eiga fyrir sígar- ettum og nammi.“ Hann reykir rúllutóbak og segir að hann hafi kannski efni á einum poka á viku. Verkefni fanganna eru margvís- leg og þau sýna mér sætuefni sem þau hafa verið að sjá um að pakka sem og barmmerkjavélar sem ég ímynda mér að hafi nýst vel í kosn- ingabaráttum síðastliðinna ára. „Við fáum tilboð frá fyrirtækjum um að taka að okkur verkefni,“ segir Einar varðstjóri. „Vinnan verður að vera tiltölulega auðveld og henta okkar aðstöðu.“ Verkfallið hefur víðtæk áhrif Föngum ber skylda til að vinna hálfan vinnudag en þeir geta stundað nám sem kemur þá á móti vinnuskyldunni. Námið fer fram við Menntaskólann í Kópavogi en hefur legið niðri síðastliðnar þrjár vikur vegna verkfalls kennara. Sú staða er uppi í öllum fangelsum landsins. „Námið er gríðarlega mikilvægt. Ekki bara þekkingin sem fæst með því heldur stoltið. Það er gott fyrir þau að geta barið sér á brjóst og sagt „ég kláraði þetta“ því þetta eru oftast ein- staklingar sem kerfið hefur alveg brugðist. Þau þurfa að finna að hér hafi einhver tíma og þolin- mæði til að standa með þeim í gegnum námið og finna að þau geta þetta alveg,“ segir Andrés. „Aðstaðan okkar hentar ekki til stórræða en við getum vel tekið að okkur ýmiss konar smærri verkefni, svo sem við að merkja póst sem á að fara til sendingar. Við vinnum bæði hratt og örugg- lega,“ segir Einar. Fangarnir bera honum vel söguna og segja að hann vinni til jafns við þá þegar tími gefst til. Þau virðast Einari þakklát og hann gerir sitt besta til að vera vinur þeirra. Taka fyrstu skrefin í fangelsi Kvennafangelsið í Kópavogi er í miðri íbúðabyggð. Við hlið fang- elsisins er leikskóli og það glymur í börnum í útivist inn í fangelsið. „Það var hér einu sinni barn í tvö ár. Móðirin sat inni í tvö og hálft ár og var ólétt þegar hún kom í fangelsið,“ segir Einar. Móðirin fékk leyfi til að fylgja barninu sínu á leikskólann á hverjum degi og svo sneri hún aftur til baka í fang- elsið. „Fangelsi er enginn staður fyrir börn. Við viljum helst ekki hafa börn hér inni,“ segir Einar en bætir við að barnaverndar- nefnd fylgist mjög vel með þeim börnum sem dvelja í fangelsinu en hann áætlar að um tuttugu börn hafi dvalið í lengri eða skemmri tíma í fangelsinu. „Dínamíkin hérna breytist samt um leið og það er barn í húsinu. Það tipla allir á tánum og sýna sína bestu hegðun.“ Hann segir að þrátt fyrir að starfs- menn viti að fangelsi sé ekki góður staður fyrir börn að alast upp á, þá sé erfitt að kveðja þau. „Börn- in hafa dvalið hér síðan þau voru mjög ung, og jafnvel frá fæðingu. Við starfsmenn bindumst þeim eðlilega miklum tilfinningabönd- um. Það er ekki langt síðan héðan fór lítill strákur sem var hvers manns hugljúfi og það var virki- lega erfitt að segja bless við hann.“ Nýtt fangelsi verður bylting Húsakostur Kvennafangelsisins hefur verið gagnrýndur og þykir mjög ófullnægjandi. „Við teljum niður dagana þar til við komumst á Hólmsheiði,“ segir varðstjórinn á meðan hann sýnir mér stiga fang- elsisins. „Það er beinlínis hættu- legt að hafa fangelsi á þremur hæðum með aðeins tvo fangaverði á vakt hverju sinni.“ Beðið hefur verið eftir nýju öryggisfangelsi í mörg ár en fyrsta skóflustungan að fangelsi á Hólmsheiði var loks tekin fyrir sléttu ári. Þar munu konur hafa séraðstöðu og þurfa ekki að blandast körlunum í sama mæli og nú er óhjákvæmilegt. Læknisaðstoð í kústaskápnum Samkvæmt lögum skal föngum boðin sambærileg heilbrigðisþjón- usta og almennt gildir í landinu. Heilbrigðisaðstaða Kvennafang- elsisins er þó kölluð kústaskápur- inn og er það um margt réttnefni. Um ræðir litla stofu sem er inn af draslaralegri geymslu. „Þetta er auðvitað ekki í lagi, en þetta var eina herbergi hússins sem hentaði svo ekki væri hægt að komast í lyfjaskápinn,“ segir Einar. Kústa- skápurinn er lítið gluggalaust her- bergi í kjallara hússins. Einar segir mér að lofthæð herbergis- ins sé ólögleg og bendir á snúrur í einu horninu. „Hér er í raun allt öryggiskerfi fangelsisins, allar símalínur, internet og rafmagnið. Það er ekki gott að þurfa að hafa þetta svona.“ Líkamsræktaraðstaða fanga er jafnframt úr sér gengin. „Þetta er svo gamalt að það er teipað saman,“ segir Einar og bendir á skíðavél í einu horninu. Á gólfinu standa fjórar stórar gosflöskur sem límdar hafa verið saman. Öll laus lóð eru bönnuð í fangelsum lands- ins en það er ljóst af búnaðinum að fangarnir deyja ekki ráðalausir. „Við fjarlægjum þetta nú venjulega samdægurs, en þeir hafa gleymt þessu hér í gær,“ segir Einar. „Vinirnir“ koma með dópið Heimsóknarrými fangelsisins er jafnframt í kjallara byggingarinn- ar. Aðstandendur fanga geta komið í svokallaða snertiheimsókn en þá er heimsóknin eftirlitslaus í tvær klukkustundir. Jafnframt er þar aðstaða til að ræða saman á bak við gler. „Við notum glerið þegar vinir fanga eru kannski að koma í fyrsta skipti, svona á meðan við Fangelsi enginn staður fyrir börn Kvennafangelsið í Kópavogi er ekki bara fyrir konur. Þar eru nú fimm karlar og sex konur vistuð en oft hafa konurnar verið færri en karlarnir. Ekki tíðkast að karlar hafi ung börn sín með sér í fangelsum en mörg dæmi eru um að ungbörn hafi dvalið með mæðrum sínum í fangelsi. Sum börnin dvelja í fangelsinu í nokkra mánuði og dæmi er um að barn hafi gengið í leikskóla við hlið fangelsisins. VARÐSTJÓRINN Einar Andrésson, varðstjóri í Kvennafangelsinu, segir að blöndun karla og kvenna í fangelsum sé óæskileg. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KARLAR Í KVENNAFANGELSI Hingað koma konur sem hafa upp- lifað allan fjandann af hendi alls konar karla áður en þær koma í fangelsið. TAKA FYRSTU SKREFIN Börnin hafa dvalið hér síðan þau voru mjög ung, og jafnvel frá fæðingu. Við starfs- menn bindumst þeim eðlilega miklum tilfinningaböndum. LAKUR AÐBÚNAÐUR Það er beinlínis hættulegt að hafa fangelsi á þremur hæðum með aðeins tvo fangaverði á vakt hverju sinni. Einar Andrésson varðstjóri Snærós Sindradóttir snaeros@frettabladid.is ASKÝRING | 12 FANGELSISMÁL

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.