Fréttablaðið - 03.04.2014, Side 62
3. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 50
BAKÞANKAR
Atla Fannars
Bjarkasonar
MIKIÐ var rætt um hrægamma í aðdrag-
anda síðustu kosninga. Miklu meira en
aðra fugla. Skógarþrestir og hafernir voru
til dæmis víðsfjarri og ég man ekki eftir að
hafa heyrt minnst á lóuna, þrátt fyrir að ég
hafi verið í kjöraðstöðu til að hlusta á tístið
í frambjóðendum og að kosningarnar hafi
farið fram um vor.
FRAMBJÓÐENDUM Framsóknar-
flokksins varð tíðrætt um hrægamm-
ana sem rifu í sig kröfur föllnu bank-
anna í von um að hagnast gríðarlega.
Með öðrum orðum sáu erlendir vog-
unarsjóðir tækifæri í hruninu á
Íslandi – tækifæri sem þeir ákváðu
að nýta. Við gætum talað um að
grípa gæsir í þessu samhengi, ef
við værum í stuði fyrir fugla-
líkingar.
HRÆGAMMAR eru reyndar
misskildir fuglar og nauðsynleg-
ur hlekkur í hringrás lífsins. Lík-
ing framsóknarmanna var því
afar ósanngjörn í þeirra garð. En
það er spurning hvort er verra;
að vera hrægammur eða hræsnari
því forsætisráðherra sparaði ekki lýsingar-
orðin á dögunum þegar hann lýsti tækifær-
unum sem felast í hlýnun jarðar.
ÞAÐ er óþarfi að fjölyrða um hörmung-
arnar sem eiga eftir að dynja á heimin-
um vegna hlýnunar á næstu árum í formi
þurrka, flóða, uppskerubrests og hungurs-
neyðar. Ekki svona evrópskrar hungurs-
neyðar sem skapast þegar vængirnir klár-
ast á KFC – alvöru hungursneyðar sem
drepur fólk. Og forsætisráðherra sér ekki
tækifæri í að beita sér fyrir að þróuninni
sé snúið við heldur telur að neyðin geti
aukið hagvöxt á hinu vel staðsetta og ávallt
skítkalda Íslandi.
NÚ þegar loftslagsbreytingar eru „tæki-
færi“ en ekki „ömurleg þróun sem ógnar
lífi framtíðarkynslóða“ þá langar mig að
benda forsætisráðherra á annað frábært
tækifæri: Mansal. Mansal er á meðal heit-
ustu glæpa heims og veltir milljörðum
árlega. Milljörðum sem gætu farið í að
endurnýja gömul hús í einhverjum rass-
gatsfirði ef rétt er haldið á spilunum. Það
má því segja að gríðarleg tækifæri felist í
nútíma þrælahaldi fyrir íslenska þjóð.
Tækifærin í mansali
Miðasala á:
.................................................................................... . . . . . . . . . . . . .....
100 / 100 NEW YORK TIMES
FR- ÉTTABLAÐIÐ
NOAH
NOAH LÚXUS
GRAND BUDAPEST HOTEL
HNETURÁNIÐ 2D
Ý Í ÍÆVINT RI HR. PBODYS SL. TAL 2D
RIDE ALONG
GRAND BUDAPEST HOTEL
HNETURÁNIÐ 2D
DEAD SNOW - RED VS DEAD
ONE CHANCE
SAVING MR. BANKS
ÆVINTÝRI HR. PÍBODYS 2D
NYMPHOMANIAC PART 1 OG PART 2
KL. 5 - 8 - 9 - 10.15
KL. 5 - 8
KL. 8 - 10.15
KL. 3.30 - 5.45
KL. 3.30 - 5.45
KL. 8
KL. 5.45 - 8 - 9 - 10.15
KL. 5.40
KL. 10.15
KL. 8
KL. 6
KL. 5.50
KL. 8
NOAH 6, 8, 9
HNETURÁNIÐ 2D 6
3 DAYS TO KILL 10:25
ÆVINTÝRI HR. PÍBODYS 2D 6
DALLAS BUYERS CLUB 8
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
THE HOLLYWOOD REPORTERL.K.G - FBL.
18 ára aldurstakmark og ekkert hlé.
Fyrir þá sem vilja enga truflun!
Miðasala er hafin á eMiði.is
.................................................................................................................................................................................................
ANDRI & EDDA VERÐA BESTU VINIR ZWEI LEBEN
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
Leikkonan Halle Berry fór í við-
tal við Extra fyrir stuttu og deildi
ýmsu skemmtilegu úr sínu einka-
lífi. Talaði hún meðal annars um
sinn heittelskaða, leikarann Oli-
vier Martinez, og hlutverk hans í
sjónvarpsþáttunum Revenge.
„Ég er mjög stolt af honum. Mér
finnst hann vera gómsætur.“
Halle og Olivier eignuðust soninn
Maceo í október í fyrra en fyrir
á Halle dótturina Nahla með
fyrrverandi eiginmanni sínum,
Gabriel Aubry. - lkg
Hann er
gómsætur
HAMINGJUSÖM Halle á eitt barn með
Olivier. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Retro Stefson
Helgi Björnsson og stórsveit
Vestfjarða
Maus
Mammút
Grísalappalísa
Tilbury
Hermigervill
Sigurvegarar Músíktilrauna
2014
Dj. Flugvél og geimskip
Glymskrattinn
Highlands
Cell7
Contalgen Funeral
Rhytmatic
Markús and the Diversion
Sessions
Lón
Kött grá pjé
Þórunn Arna Kristjánsdóttir
og búgíband Skúla mennska
Dusty Miller
Sólstafir
Lína Langsokkur
Hemúllinn
Rúnar Þórisson
Kaleo
Snorri Helgason
➜ Listamenn sem
koma fram í ár
„Það verður svo sem engum flug-
eldum skotið á loft en við höldum
okkar stefnu og uppruna og lofum
frábærri hátíð eins og undanfarin
ár,“ segir Birna Jónasdóttir, rokk-
stjóri Aldrei fór ég suður sem
fram fer dagana 18. og 19. apríl
næstkomandi, en hátíðin á tíu ára
afmæli í ár.
Í gær fór fram blaðamanna-
fundur á Ísafirði þar sem ný atriði
á hátíðinni voru kynnt en á meðal
þess sem kynnt var í gær var Helgi
Björnsson ásamt stórsveit Vest-
fjarða, heimamaðurinn Guðmund-
ur Magnús Kristjánsson, Muggi
sem er pabbi Mugisons, og þá spila
Snorri Helgason og Kaleo einnig á
hátíðinni. Margir fleiri listamenn
koma fram á hátíðinni í ár.
„Við erum mjög spennt fyrir
dagskránni sem liggur fyrir,“
segir Birna.
„Þetta er vonandi í síðasta sinn
sem hátíðin fer fram í Græna-
garði, skemmu Gámaþjónustu
Vestfjarða. Við erum að vinna í því
að finna húsnæði til frambúðar. Það
er ekki til hús sem er nægilega stórt
og hentar hátíðinni, en við höfum
hugsað út í uppblásið tjald sem er
í raun eins og uppblásið hús því
veggirnir eru allt að metri á þykkt,
það væri þó einungis skammtíma-
lausn,“ útskýrir Birna.
Hátíðin hefur stækkað mikið
á undanförnum árum og er að
verða ein vinsælasta tónlistar-
hátíð ársins hér á landi. „Það var
gerð óformleg talning og þá var
reiknað með að um 3.000 manns
hefðu verið á svæðinu en það eru
þó mjög óformlegir útreikningar,“
bætir Birna við.
Styrktaraðilar hátíðarinnar eru
Flugfélag Íslands, Landsbankinn,
Orkusalan, Samskip og Orkubú
Vestfjarða en stuðningurinn gerir
að verkum að engan aðgangseyri
þarf að greiða á hátíðina.
Tónlistin mun duna föstudaginn
18. apríl og laugardaginn 19. apríl
frá klukkan 18 til 24 í Grænagarði.
Þá munu Kraumur – tónlistarsjóður
og Aldrei fór ég suður bjóða upp á
samræðugrundvöll tónlistarmanna
og gesta um landslag tónlistar á
Íslandi. Fara samræðurnar fram á
milli 14 og 17 á föstudeginum.
gunnarleo@frettabladid.is
Tíu ára afmæli alþýðuhátíðar
Rokkhátíðin Aldrei fór ég suður stendur á tímamótum og heldur upp á tíu ára afmæli sitt í ár. Á blaða-
mannafundi á Ísafi rði í gær voru ný atriði kynnt til sögunnar og stefnir í prýðishelgi í Skutulsfi rðinum.
SKIPULEGGJENDURNIR Birna Jónasdóttir, rokkstjóri hátíðarinnar, Hálfdán Bjarki,
reglugerðarfrömuður hátíðarinnar, Pétur Magnússon, eða fallegi smiðurinn, kynnir
hátíðarinnar, og Kristján Freyr Halldórsson, listrænn ráðunautur hátíðarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/SAMÚEL
MYND/ANTON BRINK