Fréttablaðið - 03.04.2014, Side 8
3. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Elica háfar
KJARAMÁL „Útspilið verður að
koma frá þeim,“ segir Kristján
Jóhannsson, formaður Félags
flugmálastarfsmanna ríkisins,
eins þriggja stéttarfélaga sem
boða vinnustöðvanir hjá Isavia
í apríl.
Eins og fram hefur komið hafa
Félag flugmálastarfsmanna rík-
isins, Stéttarfélag í almannaþjón-
ustu og Landssamband slökkvi-
liðs- og sjúkraflutningamanna
ekki náð samkomulagi við Sam-
tök atvinnulífsins um nýjan
kjarasamning fyrir þá 400 með-
limi félaganna sem starfa hjá
Isavia. Því eru boðaðar þrjár
fimm klukkustunda vinnustöðv-
anir í apríl og síðan ótímabundið
verkfall frá 30. apríl.
Kristján segir samtöl við
félagsmenn hafa leitt í ljós að
„strípaður ASÍ-samningur“ sem
feli í sér 2,8 prósenta launahækk-
un yrði felldur í atkvæðagreiðslu.
Launin séu þó aðeins hluti vand-
ans.
„Það er lélegur starfsandi í
þessu fyrirtæki,“ segir Kristján
og vitnar til ítrekaðra viðhorfs-
kannana sem gerðar hafa verið
meðal starfsmanna Isavia. Síð-
asta könnunin hafi verið kynnt
fyrir nokkrum vikum.
„Það er alltaf sama fallein-
kunnin sem kemur í Keflavík
þar sem 57 prósent starfsmanna
segjast nú óánægð í starfinu,“
segir Kristján sem kveður starfs-
fólk bæði ósátt við launin og
yfirstjórn ina. „Þeir reka rosa-
lega harða starfsmannastefnu og
starfsfólkið er orðið langþreytt.“
Aðspurður vill Kristján ekki
gefa launakröfur stéttarfélag-
anna þriggja upp í prósentum.
„Við höfum alltaf sagt að við
erum til í að taka upp ASÍ-samn-
inginn með viðbótum. Við viljum
fá leiðréttingar fyrir þessa hópa
sem hafa bæði setið eftir og hafa
orðið fyrir miklum breytingum í
starfi. Sú farþegafjölgun sem er
að skila sér til landsins bitnar á
okkar fólki með meira álagi. Það
er alveg sama þótt tíu nýliðum
sé bætt við, mesta pressan lend-
ir alltaf á þeim sem fyrir eru og
kunna starfið.“
Einnig segir Kristján til þess
litið að Isavia sé opinbert hluta-
félag sem að öllu leyti sé í eigu
ríkisins. „Þeir hafa rekið mjög
harða stefnu gagnvart því að
umbreyta sér yfir í einhvers
konar fyrirtæki á markaði. Það
er fráleitt því Isavia er fyrst
og fremst fyrirtæki í einokun-
arstöðu sem skilar tugum eða
hundruðum milljóna í arð á ári
og við viljum einfaldlega að þeir
komi til móts við okkur,“ segir
hann.
Næsti samningsfundur er á
morgun. Kristján kveðst vonast
til að málið leysist áður en kemur
til fyrstu vinnustöðvunarinnar
sem boðuð er 8. apríl. Hann bend-
ir á að aðalfundur Isavia ohf. fari
fram í dag.
„Þar verða stjórnarskipti. Við
skulum vona að það verði ein-
hver pínulítill bautasteinn á leið-
inni, að það komi ný stjórn sem
markar nýja stefnu. Þetta getur
að minnsta kosti ekki versnað.“
gar@frettabladid.is
Starfsandinn lélegur
á Keflavíkurflugvelli
Formaður Félags flugmálastarfsmanna ríkisins kveðst vonast eftir stefnubreytingu
með stjórnarskiptum hjá Isavia í dag. Hann segir litla starfsánægju vera á Kefla-
víkurflugvelli. Starfsfólk vilji hlut í miklum arði einokunarfyrirtækisins Isavia ohf.
KRISTJÁN JÓHANNSSON Formaður Félags flugmálastarfsmanna ríkisins segir frá-
leitt að Isavia sé rekið eins og hvert annað markaðsfyrirtæki. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Þeir reka rosalega
harða starfsmannastefnu og
starfsfólkið er orðið lang-
þreytt.
Kristján Jóhannsson, formaður Félags
flugmálastarfsmanna ríkisins.
VIÐSKIPTI Friðrik Sophusson,
stjórnarformaður Íslandsbanka,
sagði á aðalfundi í gær að bank-
inn hefði greitt samtals 12,4
milljarða króna í skatta og gjöld
til hins opinbera í fyrra. Þar af
næmi bankaskatturinn 2,3 millj-
örðum króna.
Friðrik sagði mikilvægt að
ríkis stjórnin stæði við orð sín um
að nýjar álögur, sem standa eiga
straum af kostnaði vegna höfuð-
stólsleiðréttingar húsnæðislána,
væru tímabundnar, þar sem þær
drægju úr hagræði í bankakerf-
inu og áhrifum þeirra aðgerða
sem bankinn hefði gripið til til
að lækka kostnað og hagræða í
rekstri.
Friðrik sagði einnig að mark-
mið eigenda bankans, sem er
95 prósent í eigu slitastjórnar
Glitnis í gegnum tvö dótturfélög,
væri að selja bankann um leið og
aðstæður leyfa.
- fbj
Rúmir 12 milljarðar í skatta og gjöld til hins opinbera:
Vilja að Íslandsbanki verði seldur
ÁLÖGUR Friðrik Sophusson sagði opinberar álögur draga úr hagræði. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÚKRAÍNA, AP Viktor Janúkovítsj,
fyrrverandi forseti Úkraínu, kall-
aði innlimun Krímskaga í Rúss-
neska sambandsríkið harmleik í
viðtali við fréttastofu AP.
Janúkovítsj talaði um að hann
hefði aldrei leyft Rússum að taka
Krímskaga á þann hátt sem þeir
gerðu hefði hann verið við stjórn-
völinn. Vonar hann að Krímskagi
verði aftur hluti af Úkraínu.
Janúkovítsj sagðist ekki hafa
gefið tilskipanir um að hefja
skothríð á mótmælendur í Kænu-
garði, en forsetinn fyrrverandi
flúði borgina eftir hörð mótmæli
þar sem fleiri en hundrað manns
létust.
Janúkovítsj sagði alla skot-
hríð hafa komið frá andstöðunni,
ekki frá óeirðalögreglusveitum.
Ábyrgðin lægi því hjá andstöðu-
mönnum.
„Sjálfur gaf ég aldrei nein
fyrirmæli um að skjóta,“ sagði
hann. „Ég veit ekki betur en að
sérsveitarmennirnir hafi aldrei
fengið nein vopn í hendurnar. Ég
hef ávallt fylgt þeim gildum að
ekkert vald sé blóðsúthellinga
virði.“
- kóh
Segir innlimun Krímskaga í Rússland harmleik:
Janúkovítsj fordæmir
Krímskagabyltingu
JANÚKOVÍTSJ
TJÁIR SIG For-
setinn fyrrver-
andi tjáði sig
um Krímskaga.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP