Fréttablaðið - 03.04.2014, Side 16
3. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 16
HELSTU ÁHRIF LOFTSLAGSBREYTINGA
Í nýjustu stöðuskýrslu loft slagsnefndar Sameinuðu þjóðanna segir að takist ríkjum heims ekki að draga nægilega úr út-
blæstri gróðurhúsaloft tegunda, þá megi búast við að ýmsar hættulegustu afl eiðingar hlýnunar verði óviðráðanlegar.
Norður-
Ameríka
Evrópa Norðurskautið
Asía
Smærri
eyríki
Mið- og
Suður-
Ameríka
Afríka
Suðurskauts-
landið Eyjaálfa
Havaí
Signýjareyja
Máritíus
Beringssund
HELSTU ÁHRIFIN SEM
MÆLST HAFA VÍÐA UM HEIM
Á náttúrufar
Jöklar, ís og snjór
Ár, vötn, fl óð og þurrkar
Strandrof og áhrif á yfi rborð sjávar
Á lífk erfi
Vistkerfi á landi
Gróðureldar
Vistkerfi í sjó
Á mannlíf og samfélag
Matvælaframleiðsla
Lífsviðurværi, heilsufar og efnahagur
Áhrif á heila heimshluta
UMHVERFI, AP Á mánudaginn, sama
daginn og loftslagsnefnd Samein-
uðu þjóðanna kynnti nýjustu stöðu-
skýrslu sína, efndi bandaríska
olíufélagið Exxon til málþings um
umhverfismál.
Þar kom fram að stjórnendur og
sérfræðingar fyrirtækisins telji
afar ólíklegt að ríki heims komi
sér saman um að draga verulega
úr notkun á jarðefnaeldsneytum,
jafnvel þótt almennt sé orðið við-
urkennt að notkun jarðefnaelds-
neyta valdi loftslagsbreytingum
og þeim fylgi margvísleg óæski-
leg áhrif.
„Við erum með fullnægjandi
þekkingu á því, og hún er byggð
á rannsóknum og vísindum, að
hættan á loftslagsbreytingum er
raunveruleg og að grípa þyrfti til
viðeigandi ráðstafana til að taka á
þeirri hættu,“ sagði Ken Conhen,
einn yfirmanna Exxon. „En þegar
litið er til þess hve nauðsynleg
orka er fyrir líf okkar allra, þá
þurfa þessar ráðstafanir að miðast
við aðrar þær staðreyndir sem við
stöndum frammi fyrir, svo sem að
losa stóran hluta mannkyns undan
fátækt.“
Exxon, sem er eitt af stærstu
olíufyrirtækjum heims, spáir því
að losun koltvísýrings muni ná
hámarki í kringum árið 2030 en
síðan muni smám saman draga úr
losuninni eftir því sem mannkyn-
ið nær betri tökum á öðrum orku-
gjöfum og komist af með minna af
kolefni í eldsneyti.
Þessi spá er á svipuðum nótum
og spá loftslagsnefndarinnar.
Í skýrslu loftslagsnefndarinn-
ar segir að hvergi á jörðinni verði
neinn óhultur fyrir afleiðingum
hlýnunar jarðarinnar. Yfirlit yfir
helstu breytingarnar, sem búast
má við, er að sjá á kortinu hér að
ofan.
Í Evrópu má meðal annars búast
við því að hitabylgjur og vatnsflóð
verði algengari og erfiðari viður-
eignar. Þetta muni reyna verulega
á grunnstoðir samfélagsins.
gudsteinn@frettabladid.is
Ólíklegt að dregið
verði úr olíunotkun
Olíufyrirtæki telur nánast engar líkur á því að ríki heims muni koma sér saman
um að draga verulega úr notkun jarðefnaeldsneytis, þrátt fyrir nokkuð almenna
vitneskju um afleiðingarnar. Loftslagsnefnd SÞ segir að enginn verði óhultur.
BANDARÍKIN, AP Fyrir þrjátíu árum
var Bandaríkjamaðurinn Jonathan
Pollard dæmdur í ævilangt fang-
elsi fyrir að hafa afhent Ísraelum
bandarísk ríkisleyndarmál.
Bandarískir ráðamenn hafa
aldrei mátt heyra á það minnst að
láta hann lausan. Þegar Bill Clinton
forseti vakti eitt sinn máls á því að
hugsanlega væri hann til í að náða
Pollard, þá hótaði yfirmaður leyni-
þjónustunnar CIA að segja af sér.
Nú virðist þó sem John Kerry
utanríkisráðherra, og væntanlega
Barack Obama forseti þá líka, séu
í alvöru að skoða þann möguleika
að láta Pollard lausan, en í stað-
inn þurfi þá Ísraelar að fallast á að
halda viðræðum áfram við Palest-
ínumenn.
„Það er ekkert samkomulag, sem
stendur, um eitt eða neitt,“ sagði
Kerry á þriðjudaginn, stuttu áður
en hann hélt til Ísraels til að reyna
að starta viðræðum á ný.
Svo virðist sem Bandaríkjastjórn
taki töluverða áhættu með því að ljá
máls á því að láta Pollard lausan.
Verði það til þess að friðarsamn-
ingar takist, þá standa bandarískir
ráðamenn að vísu uppi með pálm-
ann í höndunum. - gb
Bandaríkin íhuga að láta njósnara lausan til að liðka fyrir viðræðum Ísraela og Palestínumanna:
Pollard hefur setið þrjátíu ár í fangelsi
JONATHAN POLLARD Bandaríkjamað-
urinn sem afhenti Ísraelum bandarísk
ríkisleyndarmál. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
UMHVERFISMÁL Tveir íbúar á Aust-
urvegi í Vík í Mýrdal segja svo
mikinn titring vegna hraðakst-
urs flutningabíla fram hjá heimili
þeirra að komið hafi fyrir að leir-
tau brotni í glerskáp. Eins sé farið
að bera á sprungum í húsinu.
Kom fram á sveitarstjórnar-
fundi þar sem málið var rætt að
sveitarstjórinn hefði ítrekað rætt
við Vegagerðina án þess að úrbæt-
ur hefðu verið gerðar. Óþægindin
segja íbúarnir vera sérlega slæm
eftir klukkan 21 á kvöldin. - gar
Hraðakstur flutningabíla:
Leirtau brotnar
á heimili í Vík
SAMFÉLAG Francisca Mwansa, oft
kennd við Bónus á Fiskislóð, á
von á rúmlega tuttugu fartölvum
til Sambíu þar sem hún er stödd
í vetrarfríi.
Í ljósi sterkra viðbragða við
fartölvusöfnun fyrir þessa hressu
afgreiðslukonu ákváðu Alda Sig-
mundsdóttir og Ása Jóhanns-
dóttir að safna sem flestum tölv-
um fyrir fjölskyldu Franciscu
og börn í Sambíu í samvinnu við
Tölvulistann.
„Við viljum þakka öllu því góða
fólki sem hefur gefið fartölvu
í söfnunina um allt land. Fram-
lag þess mun reynast þessum
börnum og fjölskyldumeðlimum
Franciscu ómetanlegt,“ sagði
Gunnar Jónsson, markaðsstjóri
Tölvulistans.
Francisca er nú stödd í vetrar-
fríi í Sambíu og mun taka við
tölvunum og koma þeim í réttar
hendur á heimaslóðum sínum.
DHL Express á Íslandi bauðst til
að senda þær án endurgjalds.
Francisca segist hlakka mikið
til að fara til fjölskyldu sinnar og
afhenda tölvurnar. - ktd
Francisca í Bónus fær senda gjöf til fjölskyldu sinnar:
Fartölvur til Sambíu
SENDINGIN MÓTTEKIN Gunnar Jónsson afhendir fartölvurnar til sendingar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FLÓÐ Búast má við að hitabylgjur og vatnsflóð verði algengari. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
➜ Þegar Bill Clinton forseti
vakti eitt sinn máls á því að
hugsanlega væri hann til í að
náða Pollard, þá hótaði yfir-
maður leyniþjónustunnar CIA
að segja af sér.