Fréttablaðið - 03.04.2014, Side 58
3. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 46
Trend á Twitter Frægar persónur sem heita akkúrat ekki neitt
Þossi
@thossmeister
Hrafninn í
Hrafninn
flýgur
#Fraegir-
SemHeita-
Ekkert
Ragnar
Njálsson
@raggi_njals
Glaðasti
hundur
í heimi.
#frægirsem-
heitaekkert
Atli Fannar
@atlifannar
Listamað-
urinn sem
kallaði sig
einu sinni
Prince. Svo
merki. Svo
aftur Prince.
#frægirsem-
heitaekkert
Bragi
Valdimar
@BragiValdi-
mar
Þú í „Ó, þú“
#frægirsem-
heitaekkert
Sveinn
Arnarsson
@Sveinn_A
Baldur
Friggjar
Odinsson
#frægirsem-
heitaekkert
Theodor I.
Olafsson
@TeddiLeBig
Afi á Stöð 2
#frægirsem-
heitaekkert
Oli Jones
@HerraJones
Damon
Younger
#fraegir-
semheitaek-
kert
Son
@sonjajon
Þeir sem
kusu Fram-
sókn #fraeg-
irsemheita-
ekkert
Óskar
Helgi
@oskarhelgi
pabbi völu
grand
#frægirsem-
heitaekkert
Kassamerkið #Fraeg-
irSemHeitaEkkert
tröllríður nú Twitter
og keppa Íslendingar
um hver getur verið
hnyttnastur í tíst-
unum sínum.
Frá árinu 2004 hafa skemmtileg plaköt einkennt
hátíðina en á þeim er að finna tónlistarmenn sem
tengjast tilraununum. „Þetta hefur aldrei verið nein
sérstök persóna en fólk segist alltaf sjá þekkt andlit
út úr henni. Í hári persónunnar eru meðlimir hljóm-
sveitarinnar sem var sigurvegari síðasta árs en þetta
minnir alltaf á eitthvað,“ segir Þorvaldur Gröndal,
verkefnastjóri Músíktilrauna 2014, en þessa dagana
fara hinar geysivinsælu Músíktilraunir fram í Hörpu
en þær fóru fyrst fram árið 1982 og þá í Tónabæ.
Plakötin eru hönnuð af Gunnari Þór Arnarssyni
sem er auglýsingahönnuður hjá auglýsingastofunni
Hvíta húsinu og Ásu Hauksdóttur, framkvæmda-
stjóra Hins hússins. „Fyrirmyndin er aldrei nein
ákveðin manneskja, þó að Björk og fleiri frægir séu
í höfðinu á fyrsta plakatinu, en við byrjuðum að taka
vinningsbandið í höfuðið á öðru árinu,“ bætir Ása
við. Á hverju ári kemur nýtt plakat sem inniheldur
nýjan haus, nýjan lit og nýtt letur. „Það skiptist á að
vera strákahaus og stelpuhaus á plakatinu, sem sýnir
að bæði kynin eiga jafn mikið senuna. Við erum að
reyna að brjóta upp staðalímyndir,“ segir Ása.
Flestir sem hafa séð plakötin, hvort sem er í blöð-
um, strætóskýlum eða annars staðar, sjá yfirleitt
þekkta persónu út úr andlitunum en það er þó ekki
þannig.
„Þetta hefur gengið rosalega vel og mætingin hefur
verið mjög góð,“ segir Þorvaldur um tilraunirnar í
ár. „Saxófónninn er að koma sterkur inn í ár, það eru
nokkur atriði sem hafa nýtt sér saxófóninn en annars
er þetta frekar klassískt mynstur, harðkjarni, rokk,
rapp, popp og flestar tónlistarstefnur sem koma fram
í ár,“ segir Þorvaldur og bætir við: „Það er talsvert
um rafsveitir sem blanda saman óhefðbundnum hljóð-
færum.“
Átta hljómsveitir fara beint í úrslitin af undan-
kvöldunum en svo má dómnefndin velja allt að fjórar
aðrar hljómsveitir til að senda í úrslitin.
Að taka þátt í Músíktilraunum er frábær upplifun
og ómetanleg reynsla fyrir upprennandi og skap-
andi tónlistarfólk. Margar þekktar hljómsveitir hafa
komið fram á Músíktilraunum eins og til dæmis
Of Monsters and Men, Botnleðja, XXX Rottweiler
hundar, Mammút, Agent Fresco, Stuðkompaníið og
Maus svo nokkrar séu nefndar.
gunnarleo@frettabladid.is
Plakötin sem fylgja
Músíktilraunum 10 ára
Músíktilraunirnar 2014 fara fram þessa dagana og taka yfi r fj örutíu hljómsveitir
þátt í þeim í ár. Plaköt hafa verið gerð fyrir hverjar tilraunir síðan árið 2004. Þau
hafa vakið mikla athygli enda birtast þau víða og eru mikið augnakonfekt.
www musiktilraunir is www harpa is
Músíktilraunir eru tónlistarhátíð sem stendur yfir í
fimm daga, undanúrslit 2014 eru dagana 30. mars til
2. apríl í Norðurljósum í Hörpu.
Úrslitin fara fram 5. apríl á sama stað. Ungmenni á
aldrinum 13-25 ára geta sótt um þátttöku með því að
senda inn umsókn á netinu og greiða þátttökugjald.
Peningaverðlaun eru fyrir fyrstu þrjú sætin og svo
fær fyrsta sætið að spila á hátíðinni Aldrei fór ég
suður.
Fyrstu tvö sætin hafa fengið að koma fram á
Iceland Airwaves og svo verður eitt annað band valið
til þess að spila á Iceland Airwaves í ár.
Einnig eru efnilegustu/bestu hljóðfæraleikararnir
valdir og vinsælasta hljómsveit meðal áhorfenda/
hlustenda kosin með símakosningu.
Um Músíktilraunirnar
NÝJASTA PLAKATIÐ Í hári persónunnar í ár er hljómsveitin
Vök sem sigraði í Músíktilraunum í fyrra. Sigurvegarar tilraun-
anna í ár fara svo í hár persónunnar á næsta ári. MYND/GUNNAR ÞÓR
www.netto.is
| Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn ·
Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss · Grandi |
Tilboðið gildir 3. -6. apríl 2014
30%
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM
FATNAÐI OG SKÓM!
ALLIR Í APPELSÍNUGULU
CAROLINA HERRERA
TASKA FRÁ M MISSONI
KÁPA FRÁ
CALVIN KLEIN
KATE WINSLET
LÍFIÐ