Fréttablaðið - 03.04.2014, Page 2
3. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Eiríkur, hvað má sjá?
Í smásjá má margt sjá.
Eiríkur Steingrímsson er prófessor við
læknadeild Háskóla Íslands en deildin tók
nýverið tugmilljóna króna smásjá í notkun.
SAMFÉLAG Íslenska gámafélag-
ið hefur boðið öllum börnum
starfsmanna fyrirtækisins sem
orðið hafa fyrir barðinu á verk-
falli framhaldsskólakennara
að fá vinnu. Krakkarnir starfa
ýmist við að flokka, aðstoða með
rafmagn eða snyrta til á starfs-
svæði gámafélagsins á Gufunesi.
Þrettán krakkar hafa þáð boðið
og nýta þeir verkfallið í að vinna.
Verkfallið hefur staðið í næst-
um þrjár vikur núna, og hefur
áhrif á um það bil 28 þúsund
menntaskólanema um land
allt. Nemendur Verzlunarskóla
Íslands sleppa þó við verkfallið
enn sem komið er, en þeir mæta
enn í skólann.
Jón Þórir Frantzson, forstjóri
Íslenska gámafélagsins, segir
að margir starfsmanna fyrir-
tækisins hafi fundið fyrir því að
vegna verkfallsins hafi heimil-
islífi verið raskað. Börn starfs-
manna séu sum hver búin að snúa
sólarhringnum við, sofi á dag-
inn en vaki á nóttunni, og hangi
í tölvunni eða glápi á sjónvarp-
ið í óhófi. Því sé mikið hentugra
fyrir alla að fá þau til að mæta í
vinnu og skapa verðmæti í stað
þess að slæpast og aðhafast lítið
sem ekkert.
„Unglingarnir komast í ákveð-
inn vandræðagang í þessu verk-
falli, leggjast í tölvurnar og sjón-
varpsgláp. Við sáum mikið gagn
að því að fá þau til að koma og
flokka og koma sér í verðmæti í
staðinn fyrir sjónvarpsgláp. Þau
eru svo fljót að snúa við sólar-
hringnum þessir krakkar,“ segir
Jón. „Þetta er bara tilraun til að
halda reglu á heimilunum, það
skiptir öllu máli fyrir fyrirtæk-
ið.“
Aðspurður segist Jón eiga
16 ára son sem lendi í verkfall-
inu. „Ég þurfti endilega að koma
honum í vinnu. Ég hef samkennd
með öllu fólki sem lendir í þessu,“
segir hann. karl@frettabladid.is
Verkfallskrakkar fá
störf hjá gámafélagi
Íslenska gámaþjónustan býður táningum sem hafa orðið fyrir barðinu á
verkfalli framhaldsskólakennara að skapa verðmæti í stað þess að slæpast.
VINNA Í VERKFALLI Börn starfsmanna Íslensku gámaþjónustunnar fá vinnu í verkfalli kennara. MYND/DOFRI HERMANNSSON
SLYS Vélsleðamaður ók fram af
hengju í gili fremst í Böggvis-
staðadal fyrir ofan Dalvík um
fimmleytið í gær samkvæmt til-
kynningu frá Slysavarnafélaginu
Landsbjörg.
Björgunarsveitin Dalvík var
þegar kölluð út á slysstað. Björg-
unarsveitarmaður sem var á
svæðinu hlúði að sleðamanninum
þangað til þyrla kom á slysstað
og flutti manninn á Sjúkrahúsið
á Akureyri. Hann er ekki talinn í
lífshættu. - kóh
Slys í Böggvisstaðadal:
Vélsleðamaður
fram af hengju
DANMÖRK Nær fjórir af hverjum
tíu kjósendum í Danmörku eru
þeirrar skoðunar að Jafnaðar-
mannaflokknum muni ganga
betur í næstu þingkosningum
fái Helle Thorning-Schmidt
forsætis ráðherra toppstöðu innan
Evrópu sambandsins, ESB.
Samkvæmt frétt á vef Jyllands-
Posten vísar forsætisráðherr-
ann því á bug að vera á förum.
Þar segir jafnframt að gagnrýni
á forystuna hafi aukist innan
Jafnaðarmannaflokksins. Margir
saka forsætisráðherrann um að
hlusta ekki á þjóðina og bak-
landið.
- ibs
Vangaveltur Dana:
Thorning ekki
á leið til ESB
ALÞINGI Hvalveiðar snúast ekki um
veiðigjöld, þær snúast um sjálfs-
ákvörðunarrétt íslensku þjóðar-
innar, sagði Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson forsætisráðherra í
fyrirspurnatíma á Alþingi í gær.
Björt Ólafsdóttir, Bjartri fram-
tíð, spurði forsætisráðherra hver
ábatinn af hvalveiðum Íslendinga
hefði verið.
Björt sagðist hafa áhyggjur af
því að verið væri að fórna meiri
hagsmunum fyrir minni með hval-
veiðunum.
Í máli sínu benti hún meðal ann-
ars á að Obama Bandaríkjaforseti
hefði fyrirskipað að öll tvíhliða
samskipti við Íslendinga yrðu end-
urskoðuð og þrýst á að Íslendingar
hættu veiðum á langreyði.
Sigmundur Davíð sagði að hval-
veiðar snerust meðal annars um
að verja rétt Íslands til að nýta
náttúruauðlindir sínar. Það væri
gríðarlega mikils virði. Forsætis-
ráðherra sagði að við ættum ekki
að láta eina mestu hvalveiðiþjóð
heims segja okkur að við mættum
ekki veiða hval.
Björt sagði að stjórnvöld
horfðu ekki á málið út frá við-
skiptalegum forsendum heldur
tilfinningalegum.
Því neitaði forsætisráðherra.
- jme
Hvalveiðar snúast ekki um veiðigjöld heldur um sjálfsákvörðunarrétt okkar:
Óttast að hagsmunum sé fórnað
HVALVEIÐAR Forsætisráðherra segir að Íslendingar láti Bandaríkjamenn ekki segja
sér hvort þeir megi veiða hval eða ekki. NORDICPHOTOS/AFP
VIÐSKIPTI Á aðalfundi Landsvirkj-
unar í gær var samþykkt tillaga
fjármála- og efnahagsráðherra
um kjör aðalmanna og varamanna
í stjórn Landsvirkjunar. Þetta
kemur fram í fréttatilkynningu frá
Landsvirkjun.
Stjórnarformaður var kjörinn
Jónas Þór Guðmundsson hæsta-
réttarlögmaður. Einnig voru kjör-
in Helgi Jóhannesson, Jón Björn
Hákonarson, Þórunn Sveinbjarn-
ardóttir og Álfheiður Ingadóttir.
Á aðalfundinum var jafnframt
samþykkt tillaga stjórnar um arð-
greiðslu til eigenda að fjárhæð 1,5
milljarðar króna fyrir árið 2013.
- kóh
Kjör í stjórn Landsvirkjunar:
Jónas Þór
formaður
VINNUMARKAÐUR „Við erum ekki
farin að sjá til lands í þeim
málum sem standa út af, það er
launaliðnum og því hversu háum
fjárhæðum verður varið til innra
starfs í skólunum,“ segir Aðal-
heiður Steingrímsdóttir, formað-
ur samninganefndar Félags fram-
haldsskólakennara.
Kennarar segja að mennta- og
fjármálaráðherra verði að fara að
svara því hversu miklir peningar
verði settir í að leysa deiluna. Allt
sitji fast á meðan svör berast ekki.
Aðalheiður segir að dagurinn
í gær hafi farið í að fínpússa
texta á þeim liðum kjarasamn-
ingsins sem eru að mestu frá-
gengnir.
„En það strandar á aðkomu ráð-
herranna. Þeir þurfa að leggja sig
meira fram ef lausn á deilunni á að
finnast,“ segir Aðalheiður.
Ólafur Hjörtur Sigurjónsson,
formaður Félags stjórnenda í
framhaldsskólum, tekur í svipað-
an streng og Aðalheiður. Staðan sé
óbreytt.
Hvorki náðist í fjármála- né
menntamálaráðherra við vinnslu
fréttarinnar. - jme / kóh
Framhaldsskólakennarar segja enga lausn í sjónmáli í kjaradeilu þeirra:
Beðið eftir svari frá ráðherrum
AÐALHEIÐUR
STEINGRÍMSDÓTTIR
ÓLAFUR HJÖRTUR
SIGURJÓNSSON
SÍLE Jarðskjálfti sem mældist 8,2 að stærð skók Síle í gær. Sex eru látnir
og þúsundir bygginga í rúst.
Tugir þúsunda Sílebúa flúðu upp á hálendi er jörðin nötraði undir fótum
þeirra. Um það bil 2.500 heimili eru talin hafa beðið alvarlegan skaða.
- kóh
Sex látnir og þúsundir bygginga eru í rúst:
Harður jarðskjálfti skók Síle
EYÐILEGGING Síleskur maður gengur eftir sprungnum þjóðvegi. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
SPURNING DAGSINS
SEGLAGERÐIN ÆGIR
Þar sem ferðalagið byrjar
FERÐAVAGNAR
Falleg
hjólhýsi