Fréttablaðið - 03.04.2014, Page 10

Fréttablaðið - 03.04.2014, Page 10
3. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 NÁTTÚRA Höfn í Hornafirði stendur nú 15 sentímetrum hærra en bær- inn gerði árið 1997, en ástæðan er minna farg af bráðnandi jökul- þekju. Súrnun sjávar mun taka yfir sem helsta rannsóknar- og áhyggju- efni manna vegna hlýnunar jarðar af völdum loftslagsbreytinga. Þetta kom fram í máli Halldórs Björnssonar, verkefnisstjóra lofts- lagsrannsókna, á ársfundi Veður- stofu Íslands sem haldinn var á dögunum. Hann sagði að þegar væri súrnun sjávar tekin að hafa áhrif á efnahag í einstökum ríkjum og hún væri verulegt áhyggjuefni. Halldór reifaði helstu breytingar sem hér verða ef spár ganga eftir. Jöklar munu hopa enn frekar, og eftir öld eða tvær munu aðeins finnast hér fjallajöklar. Afrennsli jökuláa mun því breytast mikið og tækifæri til raforkuvinnslu aukast um 20% um tíma, ef raforkukerfi verða hönnuð til þess að nýta það vatn sem til fellur. Landið mun grænka með hlýnun; skógarmörk fær- ast ofar og sjálfsprottnir skógar verða algengari. Afrakstur ræktarlands verður meiri. Samsetn- ing flökkustofna fugla og fiska mun breytast hér á landi; fuglar leita til lands- ins á meðan aðrir víkja sem kjósa kaldara loftslag. Gengd síldar, loðnu og makríls eru þekkt dæmi og breytingar halda áfram. Aðrar breytingar eru hins vegar óvæntari og ekki eins vel kynnt- ar. Höfn í Hornafirði stendur til dæmis 15 sentímetrum hærra en bærinn gerði árið 1997. „Það sem gerist þegar jöklar hopa og þynnast er að þá lyftist jarðskorpan þegar fargið minnkar. […] Suðausturströndin er að lyftast mjög mikið,“ sagði Halldór sem sýndi gögn þar sem sést að jörð rís á svæð- inu um 0,8 til 1,4 sentímetra á ári vegna bráðnunarinnar og verður það rakið beint til Vatnajökuls. Halldór vék að því að losun kol- tvísýrings mun vera um tíu gíga- tonn á ári, en árið 1990, þegar hinn frægi Kyoto-sáttmáli var undirrit- aður, var losunin um sex gígatonn. Iðnríkin hafa að mestu staðið við það að auka ekki losun, en aukn- ingin kemur mest öll frá þróun- arríkjum og þá vegna kolabruna. Í Kína, ekki síst, eru byggð kola- raforkuver í stórum stíl, og losun frá kolabruna vex um 2,8% á ári um þessar mundir. Notkun og tækninýjungar við vinnslu jarð- gass hafa haft þau áhrif að kola- bruni iðnríkja dregst saman. svavar@frettabladid.is Hefur risið 15 sentímetra Sveitarfélagið Hornafjörður stendur 15 sentímetrum hærra en það gerði árið 1997. Ástæðan er bráðnun Vatna- jökuls. Súrnun sjávar gæti fljótlega orðið helsta áhyggjuefnið vegna hlýnunar jarðar af völdum loftslagsbreytinga. HALLDÓR BJÖRNSSON Íslenskir jarðvísindamenn hafa um langt skeið rannsakað og birt niður- stöður sínar um bráðnun jökla– og þá ekki síst varðandi Vatnajökul. Niður- stöður þeirra sýna: ■ Vatnajökull er 8.000 ferkílómetrar að flatarmáli og að meðaltali um 400 metra þykkur. Rúmmál hans er ríflega 3.000 rúmkílómetrar og þyngdin rúmlega 3.000 milljarðar tonna. ■ Áætlað er að þegar jökullinn hefur hopað allur muni land undir honum miðjum rísa um rúma 100 metra, en allt að 20 metra við Höfn í Hornafirði. ■ Fargléttirinn við bráðnun jökulsins mun stórauka eldvirkni enda á þá kvikan greiðari leið upp á yfirborðið. Bráðnun jökla eykur eldvirkni GRÍMSVATNA- GOS 2011 Gríms- vötn undir Vatna- jökli eru virkasta eldstöð landsins og hafa að öllum líkindum gosið oftar en hundrað sinnum frá landnámi og 13 sinnum frá alda- mótum 1900. FRÉTTABLAÐIÐ/EGILL NÁTTÚRA Kjöraðstæður hafa skapast til að endurheimta stór- urriðastofninn í Efra-Sogi með gerð fiskvegar úr Þingvallavatni, að mati Össurar Skarphéðinsson- ar, þingmanns Samfylkingarinn- ar. Össur hefur lagt fram þings- ályktunartillögu þessa efnis. Samhliða verði ráðist í endur- bætur á hrygningarstöðvum urriðans í efri hluta árinnar, og fyrir mynni hennar, til að stuðla að endurheimt stofnsins. Forsagan er í örmynd sú að stóru- rriðinn í Efra-Sogi gjöreyddist þegar áin var stífluð 1959 og Stein- grímsstöð var byggð. Í stefnumörk- un Þingvallanefndar 2004-2024 segir hins vegar frá að samkomu- lag við Landsvirkjun sé um endur- heimt búsvæða og er eitt megin- markmiða hennar. Hins vegar sé liðinn áratugur og fiskvegurinn hafi ekki enn verið lagður. „Landsvirkjun hefur um all- mörg ár hleypt miklu vatni niður hinn gamla farveg árinnar. Magnið er nógu mikið til að standa undir verulegri seiða- framleiðslu á fornum óðulum stórurriðans í efri hluta árinnar. Urriði er þegar tekinn að leita undir botnlokur stíflunnar, en kemst ekki til baka upp í Þing- vallavatn, stórir fiskar laskast á tálknbörðum þegar þeir troða sér undir þær, og seiði, sem hugs- anlega klekjast út við núverandi aðstæður, komast ekki heldur upp í vatnið,“ segir Össur í grein- argerð tillögunnar. - shá Össur Skarphéðinsson brýnir stjórnvöld til að fóstra endurreisn urriðans í Efra-Sogi með gerð fiskvegar: Vill byggja fiskveg fyrir Þingvallaurriðann KONUNGUR FERSKVATNSFISKANNA Sú regla hefur verið sett að öllum stang- veiddum urriða skal sleppt frá 20. apríl til 1. júní. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM BANDARÍKIN Samheitalyfjafyrir- tækið Actavis hefur fest kaup á taílenska lyfjafyrirtækinu Silom Medical með peninga- greiðslu upp á 100 milljónir Bandaríkjadala, eða sem svarar 11,3 milljörðum króna. Silom Medical er eitt af helstu samheitalyfjafyrirtækjum Taí- lands, að því er fram kemur í tilkynningu Actavis og sér yfir 4.400 sjúkrastofnunum og lyf- sölum í landinu fyrir yfir 25 lyfjum í margvíslegu formi. Með kaupunum er Actavis þegar á meðal fimm helstu sam- heitalyfjaframleiðenda Taílands og leiðandi í framleiðslu augn- lyfja og lyfja vegna öndunar- sjúkdóma. - óká Actavis fær Silom Medical: Reiddu fram 11,3 milljarða TÖFLUR Á FÆRIBANDI Úr verksmiðju Actavis. MYND/ACTAVIS SAMGÖNGUR Fyrsta flugsins minnst Í tilefni þess að í sumar eru 90 ár eru frá því Erik Nelson flaug fyrstur til Íslands 2. ágúst 1924 stefnir bæjarráð Hornafjarðar að flutningi minnisvarða um flug Nelsons á Óslandshæð þar sem gott útsýni er yfir lendingarstaðinn. SJÁVARÚTVEGUR „Bæjarráð mun aldrei láta slíkar aðgerðir óátald- ar enda um verulega hagsmuni að ræða fyrir samfélagið og það starfsfólk sem byggt hefur fyrir- tækið upp á löngum tíma,“ segir bæjarráð Norðurþings um þá ákvörðun útgerðarfélagsins Vísis að loka starfsstöðvum á Húsavík. Bæjarráðið segir að með lokun- inni sé fallið frá ákvæðum í samn- ingi við sölu sveitarfélagsins á eignarhlut í Fiskiðjusamlagi Húsa- víkur. - gar Ósáttir við lokun fiskvinnslu: Saka Vísi um samningsbrot VELFERÐARMÁL Framkvæmdastjóri barnaverndarnefndar Reykjavík- ur, Halldóra Gunnarsdóttir, fagn- ar umræðu um eftirlit ríkisins með félagslegum verkefnum sveitar- stjórna. Eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær hyggst Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra skoða mögu- leikann á stofnun nýrrar stjórn- sýslustofnunar sem myndi sinna verkefnum ríkisins á sviði félags- mála og barnaverndar. Einnig myndi stofnunin hafa eftirlitshlut- verk með verkefnum sveitarfélaga. „Þetta er sérstaklega jákvætt vegna tvíþætts hlutverks Barna- verndarstofu í þessum málum. Stofnunin sér um ráðgjöf til barna- verndarnefnda en hefur á sama tíma eftirlit með störfum þeirra,“ segir Halldóra. Hún segir að það geti verið flók- ið fyrir starfsmenn barnaverndar- nefnda að fá alvarlegar athugasemd- ir fyrir hádegi en leita svo til sama aðila eftir stuðningi eftir hádegi. Þannig hafi staðan verið frá stofn- un Barnaverndarstofu. „Mitt mat er að vænlegra sé til árangurs að Barnaverndarstofa ein- beiti sér að ráðgefandi hlutverki,“ segir Halldóra. - ebg Ný stofnun tæki við verkefnum Barnaverndar: Flókið að hafa tvíþætt hlutverk HALLDÓRA GUNNARSDÓTTIR Fram- kvæmdastjóri barnaverndarnefndar Reykjavíkur tekur undir þá skoðun að færa eftirlitshlutverkið úr höndum Barnaverndarstofu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.