Fréttablaðið - 03.04.2014, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 3. apríl 2014 | FRÉTTIR | 13
GLERIÐ
Við þessar
aðstæður
ræða fangar
við gesti í
fyrsta sinn
sem þeir
koma. Þann-
ig hefur tek-
ist að koma
í veg fyrir
fíkniefnainn-
flutning.
KÚSTA-
SKÁPURINN
Hér sést
læknastofan
í Kvenna-
fangelsinu.
Snúrurnar
að öllu raf-
magnstengdu
eru við
vegginn, yfir
sjúkrarúminu.
MYND/GVA
KÓPAVOGS-
FANGELSI
Í garðinum
er nýleg
skjólgirðing
sem kemur
í veg fyrir
að fang-
arnir sjáist í
útivistinni. Í
garðinum er
einnig mat-
jurtagarður.
erum enn að átta okkur á viðkom-
andi.“ Einar segir að með þeim
hætti hafi tekist að koma í veg
fyrir eiturlyfjainnflutning sem
annars hefði átt sér stað. „Svokall-
aðir vinir sem eru kannski bara
komnir til að færa föngum dóp
láta ekki sjá sig aftur ef fyrsta
heimsókn er bara á bak við gler og
spjallið fer fram í gegnum síma.“
Einar segir þó að síminn sem
nýttur er í heimsóknarviðtölin sé
ekki hleraður af fangelsinu. Um er
að ræða beina línu þar sem allt er
rætt án afskipta fangelsisins.
Glápa í gegnum girðinguna
Vegna staðsetningar Kópavogs-
fangelsis eru fangar berskjald-
aðir fyrir forvitnum augum þegar
þeir fara í útivist. Fyrir nokkrum
árum var brugðist við þessu með
því að klæða vírgirðinguna með
strigapokum. „Það er eiginlega
eina skiptið sem við höfum fengið
kvartanir frá nágrönnum okkar.
Pokarnir slógust í girðinguna og
voru ekki mikil prýði,“ segir Einar.
Pokarnir voru því fjarlægðir aftur.
Í fyrra var reistur skjólveggur
innan girðingarinnar sem dugir til
að gefa föngunum nokkurra fer-
metra svæði án þess að þeir sjáist.
„Hann Ögmundur lét gera þetta,“
segir Einar, en ég furða mig þó á
að nýja girðingin hafi ekki verið
látin ná út að jöðrum lóðarinnar
svo föngum bjóðist stærra pláss án
þess að þekkjast. „Þetta snýst allt
um peninga. Þessi kostaði örugg-
lega milljón og þeir tímdu ekki
meiru í fangelsið.“
Mega ekki hringja í fjölmiðla
Samkvæmt tilkynningu við þá
síma sem fangelsið hefur til afnota
er föngum óheimilt að hringja í
fjölmiðla, lögreglu og önnur fang-
elsi. Einnig er þeim óheimilt að
hringja í dómstóla, ráðuneyti eða
Fangelsismálastofnun. Símtöl við
þessa aðila þurfa að fara fram með
sérstöku leyfi varðstjóra.
Fangi sem segist losna út eftir
níu daga hefur greinilega setið
á einhverri sögu því hann tekur
niður vinnunúmerið mitt og vill
fá að hringja inn frétt þegar hann
losnar út. Hann segist hafa frá
ýmsu að segja.
Miklu betra en Litla-Hraun
Karlkynsfangar hafa yfirleitt
dvalið í öðrum fangelsum og verið
færðir í Kvennafangelsið þegar
þeir hafa sýnt af sér góða hegðun.
Aðspurðir segja þeir að Kópavogs-
fangelsi sé það besta sem þeir
þekkja. „Það er best að vera hjá
Einari,“ segja fangarnir. „Þetta
er miklu betra en Hraunið.“ En
staðan er önnur fyrir konurnar í
fangelsinu. Þær hafa ekki tækifæri
á tilfærslu og ef kona hlýtur fang-
elsisdóm á Íslandi býðst henni ekki
að skipta fangelsisvistinni niður á
mismunandi fangelsi. Þær þekkja
ekkert annað en veggi Kvenna-
fangelsisins. Í 25 ár hefur þessi
staða verið uppi í Kvennafang-
elsinu og oft borið við að svo fáir
kvenfangar séu á Íslandi að vandi
þeirra sé ekki aðkallandi. „Ég held
að dómstólar séu oft meðvirkir
með konum sem fremja glæpi,“
segir Einar að lokum. „Bæði vegna
þess að þær þurfa oftar að sjá um
mjög ung börn, en líka vegna þess
að hér er allt blandað. Allar konur
koma hingað inn, hvort sem þær
fremja ofbeldisbrot eða fjárdrátt.
Það er bara ekkert annað í boði.“
KÚSTASKÁPAR OG GLERBÚR
Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. boðar til aðalfundar í félaginu sem
haldinn verður á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík,
þriðjudaginn 29. apríl 2014 og hefst stundvíslega kl. 16.00.
Drög að dagskrá fundarins eru svohljóðandi:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
2. Endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið reikningsár með athugasemdum endurskoðenda.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar eða taps félagsins á síðastliðnu
reikningsári og framlög í varasjóð.
4. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins skal lögð fram og atkvæði greidd um hana.
5. Tillögur til breytinga á samþykktum, ef borist hafa.
6. Kosning stjórnar félagsins.
7. Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags.
8. Ákvörðun um þóknun stjórnar félagsins.
9. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur mál, sem löglega eru upp borin.
Hluthafar eiga rétt á að leggja fram mál og/eða ályktunartillögur fyrir fundinn ef gerð hefur verið
skrifleg eða rafræn krafa um það eigi síðar en 10 dögum fyrir fund. Hafi hluthafar krafist þess að
tiltekið mál eða ályktun verði tekið fyrir verður endanleg dagskrá og tillögur uppfærðar á vefsíðu
félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfundinn. Hægt er að senda tillögur eða ályktanir
fyrir fundinn á veffangið stjorn@sjova.is.
Hluthafar geta einnig lagt fram spurningar er varða auglýsta dagskrárliði á aðalfundinum
sjálfum. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á vefsíðu félagsins
www.sjova.is/fjarfestar/hluthafafundir.
Atkvæðagreiðslur á aðalfundinum verða ekki skriflegar nema ef einhver fundarmanna krefst þess.
Stjórnarkjör skal þó vera skriflegt ef fleiri eru í kjöri til stjórnar en kjósa skal. Kveðið er nánar á
um stjórnarkjör í samþykktum félagsins en kosið er eftir hlutfallskosningu. Athygli er þó vakin
á ákvæðum samþykkta um hlutfall kynja í stjórn félagsins.
Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthafar geta óskað eftir
því að fá atkvæðaseðla senda til sín og skal skrifleg beiðni þar um hafa borist félaginu a.m.k. fimm
dögum fyrir auglýstan aðalfund. Hluthafar geta jafnframt vitjað atkvæðaseðla í höfuðstöðvum
félagsins frá sama tíma og greitt þar atkvæði.
Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað og mætt er fyrir helming hlutafjár í félaginu.
Frestur til að tilkynna framboð til stjórnar lýkur fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar.
Í tilkynningu um framboð til stjórnar skal gefa, auk nafns frambjóðanda, kennitölu og heimilis-
fang, upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu.
Þá skal einnig upplýsa um hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila
félagsins, sem og hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu. Framboðseyðublöð er hægt
að nálgast á vefsíðu félagsins. Upplýsingar um frambjóðendur verða aðgengilegar á vefsíðunni
www.sjova.is/fjarfestar/hluthafafundir að lágmarki tveimur dögum fyrir aðalfund.
Endanleg dagskrá aðalfundar og fundargögn, þ.á.m. tillögur stjórnar, sem lögð verða fyrir
aðalfund eru birt á vefsíðu félagsins www.sjova.is/fjarfestar/hluthafafundir og liggja frammi
á skrifstofu þess í Kringlunni 5, 103 Reykjavík.
Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á aðalfundinn á fundarstað frá
kl. 15.30 á aðalfundardag. Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Reykjavík 3. apríl 2014
Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf.
Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf.
verður haldinn 29. apríl 2014