Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.04.2014, Qupperneq 25

Fréttablaðið - 03.04.2014, Qupperneq 25
FIMMTUDAGUR 3. apríl 2014 | SKOÐUN | 25 Undirrituð eru skipu- leggjendur málstofunnar „Hælisleitendur segja frá“ sem haldin var þann 20. mars síðastliðinn í Háskóla Íslands. Málstof- an fór vel fram og áheyr- endur, sem voru yfir 120 talsins, fylltu fyrirlestr- arsalinn. Málstofan var hin fyrsta í málþingaröð hælisleitenda en mark- mið hennar er að gera hælisleitendum kleift að tjá sig milliliðalaust svo almenningur geti kynnst einstaklingunum sem er að finna á bak við hina ferköntuðu ímynd hælis- leitenda. Á málstofunni greindi hælisleitandi frá Afríku- ríki frá aðstöðu sinni: „Ég sótti fyrst um hæli í Sví- þjóð og því er ég „Dyfl- innar-hælisleitandi“. Við komu til Íslands fékk ég sjálf- krafa tilkynningu um brottvísun á grundvelli Dyflinnar-reglu- gerðarinnar og áfrýjaði í kjöl- farið til innanríkisráðuneytisins. Í dag, 18 mánuðum síðar, hefur mér ekki enn verið boðið viðtal hjá Útlendingastofnun. Sem sé, eftir tveggja ára dvöl á Íslandi, að enginn hefur skoðað mál mitt: hvers vegna ég er á flótta eða af hvaða ástæðum ég leitast eftir að mér verði veitt hæli. Það er eingöngu litið á mál mitt út frá Dyflinnar-reglugerðinni.“ Dyflinnar-reglugerðin kveð- ur eins og kunnugt er á um að ákvörðunarvaldi ríkis sé heimilt að vísa hælisleitanda til baka til þess ríkis sem hin fyrsta hælis- umsókn hælisleitandans liggur hjá, án þess að taka mál hans upp. Nokkrum dögum eftir málstofuna hlustuðum við á annan hælisleitanda sem var einnig frá ríki í Afríku. Sá hafði í fyrstu flúið til Ítalíu en neydd- ist þar til að sofa á götum úti og átti ekki annan mat en þann sem honum var gefinn. Hann flúði því frá Ítalíu og hélt til Sviss þar sem hann sótti um hæli en var synjað. Hann reyndi hið sama í Hollandi en hlaut sömu niðurstöðu. Að honum nauðugum höfðu fingra- för hans verið skjalfest á Ítalíu þrátt fyrir að hann hefði ekki sótt um hæli þar. Manninum var því synjað um hæli á grund- velli Dyflinnar-reglu- gerðarinnar. Verndar ekki hagsmuni Hann hafði eytt þremur árum í þessum löndum áður en hann kom til Íslands en ekkert ríkjanna þriggja hafði skoð- að mál hans. Það hafði enginn spurt manninn um ástæðurnar sem lágu að baki flótta hans eða hlustað á sögu hans af því að allir voru uppteknir af Dyflinn- ar-reglugerðinni. Þegar Dyflinnar-reglugerð- inni var komið á var henni ætlað að stuðla að því að hið fyrsta ríki sem hælisleitandi sótti um hæli hjá bæri ábyrgð á að taka mál hans upp, svo hælisleitendur yrðu ekki að flakka á milli ríkja í leit að málsmeðferð. Dyflinnar- reglugerðin var því upphaflega sett til þess að vernda hagsmuni hælisleitenda. En virkar hún þannig í dag? Nei. Það sem hins vegar ætti að vera aðalmálið er hvort verið sé að skoða mál einstaklinganna á fullnægjandi hátt en eins og staðan er í dag virðist einungis það, að finna ríki sem er reiðu- búið til að taka mál hælisleitenda upp, vera hið erfiðasta mál fyrir þá. Er þessi staða ásættanleg, ef við lítum til mannréttinda- og mannúðarsjónarmiða okkar? Hælisumsókn snýst um að fyrir hendi sé manneskja sem óttast um líf sitt og lífskjör. Hælisumsókn snýst ekki um hvernig flóttaferli einstaklings- ins hefur verið. Við óskum þess, enn og aftur, að þeir sem starfa að hælismálum horfist í augu við þennan einfalda sannleika. *Málstofur „Hælisleitendur segja frá“ eru í samstarfi við námsbraut í Mannfræði við Háskóla Íslands, Rauða kross Íslands og Miðstöð margbreyti- leika- og kynjarannsókna. Dyfl innar-réttlætingin Nú berast fregnir af fjölda áhugasamra fjár- festa sem margir munu þurfa á talsverðri raf- orku að halda, náist samningar um orkukaup. Ýmsir álitlegir virkjana- kostir eru til staðar, þótt margir þeirra hafi ratað niður lista rammaáætl- unar eftir að faglegri vinnu fyrri verkefnis- stjórnar lauk. Dæmi eru um að öflug iðnfyrirtæki og fiskimjölsverksmiðj- ur óski eftir aukinni raf- orku hið fyrsta. Alla jafna er næg orka til í kerfinu til að mæta slík- um óskum, en þá þarf einnig að vera hægt að flytja orkuna. Hvað stærri viðskiptavini varðar þá er til lítils að reisa nýjar virkjanir ef ekki er hægt að flytja orkuna til kaupandans. Hamlar þróun atvinnulífs Nú er svo komið að flutningskerfi raforku annar víða ekki þeirri eftirspurn sem til staðar er og hamlar það þannig þróun atvinnu- lífs og byggðar. Framleiðslugeta sumra virkjana er vannýtt, heilir landshlutar búa við takmarkanir í flutningsgetu og ekki er hægt að flytja orku þaðan sem hún er næg yfir til annarra landshluta vegna veikleika í flutningskerf- inu. Ekki verður flutningsfyrir- tækið, Landsnet, sakað um skort á framkvæmdavilja. Skipulags- og leyfisferlin eru hins vegar afar tafsöm og margir aðilar sem geta komið í veg fyrir eða tafið fram- kvæmdir. Þá hefur andstaða við háspennulínur farið vaxandi og víða eru gerðar kröfur um að flutningskerfið verði lagt í jörðu. Nú er reyndar svo komið að meginþorri dreifikerfis raforku, á lægri spennu, er þegar í jörðu hérlendis og nær öll endur- nýjun sem fram fer á kerfinu er í formi jarðstrengja. Kostnaður við lagningu jarðstrengja á hárri spennu (220 kV) er hins vegar alla jafna margfalt hærri en við lagn- ingu háspennulína. Raunar geta strengirnir haft mun meiri og óafturkræfari umhverfis áhrif en háspennulínur, svo sem ef grafa þarf margra metra breiða skurði gegnum hraun, en það er önnur umræða. Landsneti ber sam- kvæmt ákvæðum raforkulaga að byggja flutningskerfið upp á hagkvæman hátt og fyrirtækið því ekki í stöðu til þess að taka ákvarðanir um margfalt kostn- aðarsamari fjárfestingar en ella, án stefnumörkunar þess efnis af hálfu stjórnvalda. Staðan er því þannig að á meðan ekki er mörkuð skýr opin- ber stefna um jarðstrengi eða loftlínur og að óbreyttu skipu- lags- og leyfisferli mun flutnings- kerfi raforku áfram, og í vaxandi mæli, hamla þróun atvinnulífs og byggðar víða um land. Sem dæmi má nefna allan þorra Norður- og Austurlands. Raforkukerfi í vanda ORKUMÁL Gústaf Adolf Skúlason framkvæmda- stjóri Samorku, samtaka orku- og veitu fyrirtækja ➜ Hvað stærri við- skiptavini varðar þá er til lítils að reisa nýjar virkjanir ef ekki er hægt að fl ytja orkuna til kaupandans. ➜ Í dag, 18 mánuðum síðar, hefur mér ekki enn verið boðið viðtal hjá Útlendinga- stofnun. Sem sé, eftir tveggja ára dvöl á Íslandi hefur eng- inn skoðað mál mitt: hvers vegna ég er á fl ótta eða af hvaða ástæðum ég leitast eftir að mér verði veitt hæli. Það er eingöngu litið á mál mitt út frá Dyfl innar-reglu- gerðinni. HÆLIS- LEITENDUR Ragnhildur Helga Hannesdóttir forsvarsmanneskja „Hælisleitendur segja frá“ Toshiki Toma prestur innfl ytjenda Himneska súkkulaðið mitt er úr lífrænt ræktuðu hráefni og Fair- tradevottað. Hágæða súkkulaði sem kætir bragðlaukana. Láttu hjartað ráða
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.