Fréttablaðið - 03.04.2014, Page 50
3. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38
„Ég er mjög íhaldssöm hvað
það varðar og fer ekkert út
fyrir ljóðið. Það er minn stað-
ur,“ segir Ásdís Óladóttir sem í
dag sendir frá sér sína sjöundu
ljóðabók, Innri rödd úr annars
höfði. Ásdís hefur skrifað ljóð
síðan hún var átján ára og segist
lítið hafa reynt við önnur form,
það hafi ekki heillað hana. „Mér
líkar langbest við ljóðið,“ segir
hún. „Þetta knappa form þar sem
hægt er að segja mikið í fáum
orðum.“
Í bókinni er að finna 35 ljóð
og yrkisefnin eru margvísleg;
mánuðir, árstíðir, hversdags-
myndir og svo heilmikill bálk-
ur sem heitir Næturgalinn, sem
lýsir geðrænum sjúkdómi. „Ég er
með geðklofa og er að fjalla um
mína upplifun af honum,“ segir
Ásdís. „Ég hef glímt við þann
sjúkdóm í 26 ár og það má eigin-
lega segja að ljóðin hafi bjargað
mér í gegnum þá glímu. Þau hafa
verið haldreipi mitt í lífinu. Ég
gat ekki lesið í nokkur ár sökum
radda í höfðinu og varð að skrifa
mig út úr því ástandi. Að skrifa
ljóðin gaf mér tilgang í lífinu.
Mörg skáld hafa í gegnum tíðina
haldið því fram að skáldskap-
ur bjargi lífum og ég er lifandi
dæmi um það.“
Ásdís segist alltaf hafa verið
opin hvað varðar sjúkdóminn,
enda finnist henni erfiðara að
þegja um hann heldur en tala.
Hún segist auðvitað hafa orðið
vör við fordóma, en þeir séu þó á
undanhaldi. „Mér finnst ég held-
ur ekkert hafa að fela og þetta
er alvarlegur sjúkdómur sem
oft hefur verið reynt að þagga
umræðu um og það finnst mér
ekki rétt. En þetta er sem betur
fer að breytast. Velgengni Engla
alheimsins hefur opnað augu
margra, sem er gott, þótt sú mynd
af sjúkdómnum sem þar er dregin
upp sé mjög röng í dag. Meðhöndl-
un hans var mjög lítil í þá daga, en
þetta hefur gjörbreyst með nýjum
lyfjum. Í dag getur fólk lifað til-
tölulega eðlilegu lífi þrátt fyrir
geðklofa. Þetta er ekkert vanda-
mál fyrir mig núorðið, en mér
finnst samt ástæða til að tala opið
og hreinskilnislega um þau áhrif
sem sjúkdómurinn hefur.“
Útgáfu bókarinnar, Innri rödd
úr annars höfði, verður fagnað í
Iðu-Zimsen klukkan 17 í dag og
Ásdís segir alla velkomna.
fridrikab@frettabladid.is
Ljóðin hafa verið haldreipi í
glímu við erfi ðan sjúkdóm
Ásdís Óladóttir hefur skrifað ljóð frá unga aldri og í dag kemur út hennar sjöunda ljóðabók. Meðal um-
fj öllunarefna í ljóðunum er glíman við geðklofa sem hún hefur þurft að kljást við í 26 ár. Hún segir erfi ðara
að þegja um sjúkdóminn en tala, enda full ástæða til að tala opið um þau áhrif sem sjúkdómurinn hefur.
ÁSDÍS ÓLADÓTTIR
„Mörg skáld hafa í
gegnum tíðina haldið
því fram að skáldskapur
bjargi lífum og ég er
lifandi dæmi um það.“
Milli martraðar
og einmana
morgunverðar
í vökudraumi,
myndast sprungur
í andlit
uns það sundrast.
➜ Nætur-
galinn IV
Sinfóníuhljómsveit Íslands býður
í dag gestum og gangandi á opna
hádegistónleika í Flóa í Hörpu.
Hljómsveitin byrjar á þjóðlegu
nótunum og spilar sprellfjör-
uga rímnadansa. Því næst leikur
hljómsveitin lokakafla Flautu-
konserts Mozarts. Þar er Hall-
fríður Ólafsdóttir, 1. flautuleikari
hljómsveitarinnar, í einleikshlut-
verkinu. Hljómsveitin leikur loks
tvo kafla úr frægustu sinfóníu
allra tíma, Örlagasinfóníunni
eftir Beethoven.
Tónleikarnir eru haldnir í
opnu rými í Flóa í Hörpu, hefjast
klukkan 12.15 og standa í rúman
hálftíma. Aðalhljómsveitarstjóri
Sinfóníunnar, Ilan Volkov, heldur
um tónsprotann.
Allir eru velkomnir og aðgang-
ur er ókeypis.
Sinfó býður á
tónleika
EINLEIKARINN Hallfríður Ólafsdóttir
flautuleikari leikur einleik með Sin-
fóníuhljómsveitinni í dag.
lÍs en ku
ALPARNIR
s
KÚLUTJALD
d2-3ja manna tjal
Faxafen 8 108 Reykjavík
FERMINGARDAGAR
SCOUT, 2500mm vatnsheld
24.995 kr. 19.996 kr.
aruA
gnkkieTr
˚C
13.995 kr. 11.196 kr.
24.995 kr. 19.996 kr.
22.995 kr. 18.396 kr.
PINGUIN Activent 55
PINGUIN Explorer 75
SALOMON
arkkpasnjóbretta
með iættlfs35% a
N OAGBLACK DR
arkkpasnjóbretta
með iættlfs30% a
4012- 4 020
10
Á
RA
ÁR
10 ÁRA
ÁR
„Þetta er annað árið sem Norræna
húsið ásamt norrænu sendiráðun-
um býður til sannkallaðrar kvik-
myndaveislu,“ segir Þuríður Helga
Kristjánsdóttir, verkefnastjóri hjá
Norræna húsinu, sem hefur veg og
vanda af undirbúningi Norrænu
kvikmyndahátíðarinnar sem hefst
í kvöld.
Dagskráin einkennist af nýjum
og nýlegum verðlaunamyndum frá
öllum Norðurlöndum og ber þar
hæst sænsku kvikmyndina Monica
Z sem verður opnunarmynd hátíð-
arinnar. Aðalleikona myndar-
innar er hin íslenskættaða Edda
Magnason og einnig leikur Sverrir
Guðnason þar stórt hlutverk, þau
hlutu á dögunum sænsku kvik-
myndaverðlaunin, Gullbjölluna,
fyrir leik sinn í myndinni.
Hátíðin stendur til 15. apríl og
verða frá einni og upp í fjórar
sýningar á dag, bæði fyrir börn
og fullorðna. „Það verður mjög
gott úrval af fjölskyldumyndum,“
segir Þuríður. „Og það er nýlunda
hjá okkur. Fyrir utan Monicu Z ber
kannski hæst myndina Jeg er din
frá Noregi, sem hefur hlotið mjög
mikið lof, en þetta eru allt mjög
góðar myndir.“
Fjölskyldumyndirnar eru sýnd-
ar daglega, annaðhvort klukkan 14
eða 16, og almennar sýningar eru
klukkan 16, 18 og 20 flesta dagana
en nánar má kynna sér sýningar-
tíma hverrar myndar á heimasíðu
Norræna hússins, norraenahusid.
is. Frítt er inn á allar sýningar og
eru myndir sýndar með enskum
texta. fridrikab@frettabladid.is
Nýjar norrænar verðlaunamyndir
sýndar fj órum sinnum á dag
Norræn kvikmyndahátíð hefst í Norræna húsinu í kvöld og stendur til 15. apríl.
Sýndar verða verðlaunamyndir frá öllum Norðurlöndunum og ber þar hæst
sænsku myndina Monicu Z sem skartar hálfíslenskri leikkonu í titilhlutverkinu.
● Frá Noregi koma myndirnar: Pionér, Jeg er din, Kyss meg, For faen i
helvete og Mormor og de åtte ungene.
● Frá Svíþjóð: Monica Z, Dom över död man, Himlen är oskyldigt blå og
Call Girl.
● Frá Danmörku: Marie Krøyer, Skytten og Fuglejagten.
● Frá Finnlandi: Lärjungen, Miss Farkku-Suomi (Fröken bláar gallabuxur)
og teiknimyndin Seitsemän veljestä (Sjö bræður).
Frítt er inn á allar sýningar og eru myndirnar sýndar með enskum texta.
MYNDIRNAR SEM SÝNDAR VERÐA
MONICA Z Aðalleikona myndarinnar er hin íslenskættaða Edda
Magnason og einnig leikur Sverrir Guðnason þar stórt hlutverk.
M
YN
D
/N
O
RD
ICPH
O
TO
S/G
ETTY
MENNING