Fréttablaðið - 26.04.2014, Síða 10
26. apríl 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
2
4
6
0
SUBARU ER EINN ÖRUGGASTI BÍLL SEM ÞÚ GETUR KEYPT
6,3 l / 100 km
í blönduðum akstri
Rekstraröryggi og gott endursöluverð er það sem allir þekkja og kemur fyrst upp í
hugann. Lágur þyngdarpunktur, þverliggjandi BOXER vél og sítengt fjórhjóladrif með
tölvustýrðri stöðugleikastýringu er lykillinn að akstursöryggi. Allir Subaru eru með 5
stjörnur í árekstrarprófunum EuroNCAP.
GERÐU ÖRUGG BÍLAKAUP – KAUPTU SUBARU!
OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16
Ný LINEARTRONIC stiglaus sjálfskipting með
þrepastillingum í stýri og leðurklædd rafdrifin sæti.
Subaru Outback 2.0l BOXER dísil, sjálfskiptur
Verð: 6.890.000 kr.
Aðalfundur Miðborgarinnar okkar verður
haldinn þriðjudaginn, 29. apríl kl. 18:15
í Hannesarholti, Grundarstíg 10.
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, ársskýrslur
formanns og framkvæmdastjóra, ársreikningur kynntur
af gjaldkera, gengið til stjórnarkjörs og kjörs embættis-
manna. Einnig verður fjallað um helstu mál er varða
miðborgina, framtíð hennar og möguleika.
Allir félagar í Miðborginni okkar eru boðnir hjartan-
lega velkomnir og að fundi loknum verður boðið upp
á léttar veitingar og tónlistaratriði.
STJÓRNMÁL Framsóknarflokkurinn
í Reykjavík, flokkur forsætisráð-
herra í stærsta sveitarfélagi lands-
ins, hefur verið án oddvita síðan 3.
apríl síðastliðinn. Þá hætti Óskar
Bergsson sem oddviti flokksins í
borginni. Með því vildi hann axla
ábyrgð á litlu fylgi flokksins í skoð-
anakönnunum í Reykjavík. Fylgi
flokksins í könnunum hefur ekki
verið nálægt því fylgi sem flokk-
urinn fékk í borginni í alþingis-
kosningum síðustu. Fylgið mældist
3,3% í þjóðarpúlsi Gallup þann 22.
nóvember. Sömu sögu er að segja
af síðasta þjóðarpúlsi Gallup. Á
þessu sex mánaða tímabili hefur
fylgið í borginni verið á bilinu 3-5
prósent.
Þann 20. nóvember kynnti Fram-
sóknarflokkurinn í Reykjavík sjö
efstu frambjóðendur á lista flokks-
ins til borgarstjórnarkosninga sem
halda á í maí, fyrstur flokka. Ósk-
ari Bergssyni var stillt upp sem
oddvita flokksins og Guðrúnu
Bryndísi Karlsdóttur var stillt upp
í annað sætið. Síðan þá hefur mikið
vatn runnið til sjávar hjá Fram-
sókn í borginni.
Þann 3. apríl steig Óskar til hlið-
ar sem oddviti, tveimur dögum
áður en kjördæmaþing átti að
koma saman og samþykkja listann.
Því kjördæmaþingi, 5. apríl, var
frestað.
Hófst þá leitin að nýjum oddvita.
Guðni Ágústsson, fyrrverandi for-
maður Framsóknarflokksins,
gaf að lokum kost á sér til að
leiða lista flokksins. Það staðfesti
síðan Guðni Ágústsson í hádegis-
fréttum Bylgjunnar, annan í pásk-
um. Voru framboðsmálin komin
það langt á veg að boðað hafði
verið til kjördæmaþings í annað
sinn í Reykjavík sumardaginn
fyrsta, 24. apríl, þar sem til stóð að
samþykkja nýjan lista með Guðna í
broddi fylkingar.
Daginn fyrir kjördæmaþing var
þinginu frestað öðru sinni með
stuttum fyrirvara eftir að Guðni
hætti við að leiða listann.
Nú á þriðjudaginn, 29. apríl, er
von á þriðja listanum frá Fram-
sóknarflokknum og þriðja auka-
kjördæmaþing boðað. Þar á að
samþykkja nýjan framboðslista
til borgarstjórnar. Þórir Ingþórs-
son, formaður kjördæmasambands
Framsóknarflokksins, hefur gefið
það út að listinn sé tilbúinn án þess
að gefa það upp hver leiði listann.
Guðrún Bryndís Karlsdóttir,
annar maður á lista Framsóknar-
flokksins eins og hann var kynnt-
ur þann 20. nóvember, hefur lítið
fengið að frétta um nýjan lista og
verið haldið fyrir utan málið að
eigin sögn. Guðrún Bryndís mun
að öllum líkindum ekki taka sæti
á listanum. sveinn@frettabladid.is
Aukakjördæmaþingi
var frestað í tvígang
Brösuglega hefur gengið fyrir Framsóknarflokkinn í Reykjavík að ná saman lista til
borgarstjórnar. Aukakjördæmaþingi hefur verið frestað tvívegis, þann 5. apríl og 24.
apríl. Þriðja tilraun til aukakjördæmaþings verður þann 29. apríl næstkomandi.
ÓSKAR BERGSSON
GUÐNI ÁGÚSTSSON
GUÐRÚN BRYNDÍS KARLSDÓTTIR