Fréttablaðið - 26.04.2014, Qupperneq 34
úr ferðalögum. Sum eru áhuga-
söm en öðrum leiðist upptaln-
ing á örnefnum. Það er gefandi að
búa til létta spurningaleiki með
smá verðlaunum, svo sem að setja
börnum einföld verkefni við að
finna út á korti heiti fyrirbæra í
ferðinni. Síðan á auðvitað ekki að
þegja yfir því hvað áningarstaðir
heita. Dropinn holar steininn.
Hvers virði er fyrir börn að upplifa
land sitt með fjölskyldu sinni?
Það er afar mikils virði og skapar
fleiri og fjölbreyttari fleti á nauð-
synlegum og gefandi samskiptum
í fjölskyldunni.
Hafa ber í huga að ávöxtur af
slíkri upplifun skilar sér oftast
ekki til fulls fyrr en löngu síðar,
þegar börnin eru uppkomin, sjálf
orðin uppalendur og fara að huga
meira en fyrr að uppruna sínum
og umhverfi.
Styrkir það fjölskylduböndin?
Eflir virðingu, vitund og tilfinn-
ingu fyrir umhverfi og mannlífi?
Já, og skilar sér í því að skapa
grundvöll fyrir betra og farsælla
þjóðlífi og betri meðferð á land-
inu, sem skilar okkur virðingu í
augum umheimsins – viðskipta-
vild ef menn vilja endilega mæla
gildið í peningum.
Varst þú duglegur að ferðast
með þín börn á sínum tíma og
sýna þeim helstu náttúruperlur?
Fjölsk ylda ok kar var óvenju
stór og verkefni mín sömuleiðis
óvenjulega fjölbreytt og tímafrek.
Ég reyndi að taka þau með í sem
flestar mínar ferðir þegar ég var
að skemmta úti á landi og jafnvel
í sumar af þeim fréttaferðum sem
ég fór sem einyrki. Öll fengu þau
að fljúga með mér og eftir að 21
barnabarn kom til sögunnar hafa
þau öll, eldri en fjögurra ára, ein-
hvern tíma flogið með mér; stund-
um fleiri saman en þó öll einu
sinni ein með afa.
Hver er þinn uppáhalds fjöl-
skylduferðastaður innanlands?
Þar getur verið atriði að á viðkom-
andi stað sé sléttur f lötur fyrir
leiki. Góð sundlaug skemmir ekki
fyrir. Gullni hringurinn býður upp
á margt slíkt, en nágrenni höfuð-
borgarsvæðisins er afar vanmetið
svæði. Ég bendi á svæðið í kringum
Kaldársel og Heiðmerkurhringinn
sem ævintýraheim hrauna, hraun-
traða, gjáa, hella og gróðurs í bland
ásamt þægilegum fellum eða fjöll-
um til að ganga á. „Silfraði hring-
urinn“; Krýsuvík-Grindavík-Bláa
lónið-Eldvörp-Reykjanes er van-
metin ferðamannaleið. Kverkfjöll,
Vesturbyggð, Hornstrandir og
Strandir, Gjástykki-Leirhnjúkur,
Askja og Kverkfjöll eru á topp tíu
listanum, en fyrir venjulegt ferða-
fólk er Landmannaleið um Dóma-
dal mun aðgengilegri en marg-
ir halda og algert konfekt. Bendi
á heimildarmynd sem ég hef gert
undir heitinu „Akstur í óbyggðum“
sem sýnd verður 1. júní næstkom-
andi í Sjónvarpinu.
Hverjir eru þínir uppáhalds-
staðir á landinu?
„Ég á þrjá eftirlætisstaði sem ég
reyni að koma á eins oft og ég get
á hverju sumri. Þetta eru Sauðár-
flugvöllur, stór viðurkenndur og
skráður flugvöllur á Brúar öræfum,
sem ég hef valtað og merkt og er
umsjónarmaður fyrir, Uppsalir
í Selárdal, sem ég ásamt fjórum
vinum mínum hef tekið í fóstur,
og svo Hvammur í Langadal þar
sem ég var í sveit sem barn.“
Hvernig upplifun er að ferðast
með einu barna sinna upp á
nýtt, samanber Ferðastiklur
ykkar Láru?
Ég er mjög ánægður með að ferða-
lög fyrir löngu með fjölskyldu
minni eru að byrja að skila sér í
gegnum ferðalög barna minna
með fjölskyldum þeirra. Lára kall-
ar ferðir sínar með sinni fjölskyldu
„mömmuferðir“ og fékk þannig
hugmynd að eigin þáttum, „Ferða-
stiklum“ þar sem afi gamli gæti
kannski orðið að einhverju gagni.
Það hefur glatt mig mikið og ég er
þakklátur fyrir viðtökurnar.
Billund í Danmörku er svo sannarlega draumaáfanga-staður fjölskyldunnar. Allir
þekkja skemmtigarðinn Legoland
en beint á móti honum er annar
skemmtigarður sem nefnist La-
landia. Við hlið hans er svo Lego-
land Holiday Village sem býður upp
á fjölbreytta gistingu og í 25 mín-
útna akstursfjarlægð er Givskud
Zoo. Það er því nóg af fjölbreyttri af-
þreyingu fyrir alla á litlu svæði auk
þess sem margir golfvellir eru á Jót-
landi. Primera Air flýgur vikulega
til Billund í sumar og fram í október.
Verðið er frá 14.780 kr. með sköttum
hvora leið. Innifalið í verðinu er 20
kg taska og engin bókunargjöld eða
annar kostnaður bætist við.
Þórður Bjarnason hefur ferðast
til Billund undanfarin þrjú ár með
eigin konu og tveimur ungum
strákum og er stefnan jafnvel tekin
þangað aftur í ár. Hann segir mikla
pressu vera frá strákunum sínum
enda upplifi þeir Billund sem algjöra
paradís. „Við höfum ferðast víða
með strákana okkar, til dæmis farið
í Disneyland, en ekkert toppar Bill-
und að okkar mati. Við röltum eða
hjólum á milli staða og þar er mikið
úrval afþreyingar fyrir börnin.“
Alvöruskemmtigarður
Margir Íslendingar þekkja Lego-
land en það eru ekki allir sem gera
sér grein fyrir því að um er að ræða
risastóran skemmtigarð. „Lego-
land er ekki bara lítil sæt kubbahús
heldur alvöru skemmtigarður. Þar
má finna rússíbana, vatnsleikja-
garð og margt fleira. Sérstök svæði
eru helguð ólíkum aldurshópum og
foreldrar gæða sér á nesti og öðrum
veigum í sólinni.“
Margir sem heimsækja Billund
gista í Lalandia-garðinum. „Með
gistingu fylgir frír aðgangur að
allri afþreyingu á svæðinu. Þar má
til dæmis finna lestir, dýr sem ganga
frjáls um svæðið og úrval leiktækja.
Lalandia er í raun risastórt svæði, á
við 2-3 Egilshallir. Þar má einnig
finna fjölda veitingastaða, matvöru-
verslun, tívolí, vetrarveröld, vatns-
rennigarð og boðið er upp á fjölda
námskeiða fyrir börn og unglinga.“
Margt í boði
Í Givskud Zoo má sjá fjölda villtra
dýra sem ganga um frjáls. „Þeir sem
keyra þangað á bílaleigubíl geta
keyrt beint inn í garðinn þar sem
dýrin rölta frjáls um og jafnvel við
hlið bílanna. Þar má sjá ljón, gíraffa,
nashyrninga og mörg önnur dýr.“
Ef eldri unglingar eru með í för
má líka heimsækja Djurs Som-
merland-skemmtigarðinn sem
er í 45 mínútna fjarlægð, auk þess
sem margir Íslendingar heimsækja
bæinn Vejle en þar má til dæmis
finna stóra verslunarmiðstöð.
Flugvöllurinn við Billund er lítill
og farþegar eru fljótir að komast á
áfangastað. Flugið þangað tekur
einungis um tvær og hálfa klukku-
stund og 30 mínútna akstur er til
Lalandia.
Meðal annarra áfangastaða sem
Primera Air býður upp á í sumar má
nefna Alicante á Spáni.
Allar nánari upplýsingar má
finna á www.primeraair.com
Allt til alls fyrir fjölskylduna
Mikið framboð afþreyingar og stuttar vegalengdir gera Billund í Danmörku að ákjósanlegum sumarleyfisstað fyrir fjölskylduna.
Margar fjölskyldur fara þangað ár eftir ár enda er staðurinn paradís fyrir börn. Primera Air flýgur þangað vikulega í sumar.
Dýrin ganga frjáls um í Givskud Zoo. MYND ÚR EINKASAFNI
Vatnsleikjagarðurinn í Lalandia er vinsæll. Legoland er risastór skemmtigarður sem býður upp á fjölbreytta afþreyingu.
M
Y
N
D
/A
FP
„Ísland er einstætt meðal landa heims. Þess vegna er nauðsynlegt að sýna börnum fyrir-
bæri sem sanna þetta,” segir Ómar. MYND/VALLI
M
Y
N
D
Ú
R
EI
N
K
A
SA
FN
I
LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2014
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir
Hafa ber í huga
að ávöxtur af
slíkri upplifun skilar sér
oftast ekki til fulls fyrr
en löngu síðar, þegar
börnin eru uppkomin,
sjálf orðin uppalendur.
2