Fréttablaðið - 26.04.2014, Qupperneq 36
FÓLK|HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Helgarnar eru fjölskyldutími hjá þingmanninum Willum Þór Þórssyni. „Það er heilög
regla að eyða helgunum með fjöl-
skyldunni. Síðan ég settist á þing
hafa samvistirnar með henni
minnkað, þingfundir standa oft
langt fram á kvöld þannig að ég
sé minna af börnunum mínum,“
segir Willum. Hann á fimm börn
á aldrinum fimm til fimmtán ára
þannig að oftast er mikið fjör á
bænum. „Það skiptir mestu máli
að vera bara saman. Krakkarnir
eru öll í íþróttum, bæði fimleikum
og fótbolta, þannig að helgarnar
fara að miklu leyti í að fylgja þeim í
þær sem er mjög skemmtilegt. Við
reynum líka að fara stundum í Blá-
fjöll og erum dugleg að fara í Bláa
lónið, enda er konan að vinna þar
og krakkarnir hafa gaman af því.“
SPENNUFALL OG SUMARFRÍ
Willum hefur verið viðloðandi
fótboltaheiminn síðan hann
var fimm ára. Hann var þekktur
leikmaður og ekki síður þjálfari
enda hefur hann gert bæði Val og
KR að Íslandsmeisturum. Þegar
hann var kjörinn á þing seinasta
vor fórnaði hann hins vegar
bæði boltanum og starfi sínu
sem kennari. „Sumarið í fyrra var
fyrsta sumarið síðan 1980 sem
ég tek ekki þátt í Íslandsmóti í
meistaraflokki. Það var mjög skrítin
tilfinning að vera ekki með og
hálfgert spennufall. Ég vissi varla
hvað ég átti að gera við mig en
við fjölskyldan fórum í langþráð
sumarfrí til Spánar og náðum þar
góðri slökun saman.“
SAKNAÐI FÓTBOLTANS
OG SNERI AFTUR
Fótboltinn á sterk ítök í Willum
þannig að þegar Breiðablik leitaði
til hans á dögunum og bað hann
að verða aðstoðarmaður Guð-
mundar Benediktssonar við þjálfun
meistaraflokks karla svaraði hann
kallinu. „Mér þótti vænt um að
Gummi og félagið leituðu til mín.
Þetta er kjörið tækifæri til að halda
tengslum við boltann en ég fann að
ég saknaði hans. Ég á sterkar rætur
í Breiðabliki enda spilaði ég þar
sjálfur og svo eru öll börnin mín
þar. Hins vegar slær hjartað alltaf
með KR þar sem ég er alinn upp,“
segir Willum og brosir.
Aðspurður hvort það eigi ekki
eftir að verða erfitt fyrir gamla
þjálfarann að vera kominn í
farþegasætið sem aðstoðarþjálfari
segist hann ekki telja það. „Ég
hef svo mikla trú á Gumma sem
þjálfara að ég hef engar áhyggjur
af því. Ég hef líka lært ákveðið
umbyrðarlyndi fyrir ólíkum
skoðunum sem þingmaður og það
á eftir að hjálpa mér á þessum
vettvangi.“
PUÐAÐ Á ÞINGI
Willum segir það hafa gjörbylt
lífinu að fara á þing en það hafi
verið jákvæð breyting. „Ég gæti
bæði svarað því játandi og neitandi
hvort starfið sé eins og ég bjóst
við fyrir fram. Þetta er eins og með
allt annað, mikil vinna ef vel á að
vera. Mér fannst til dæmis magnað
að upplifa það að þegar þing-
fundi lýkur klukkan tvö að nóttu
áttu samt að vera mættur lesinn á
nefndarfund klukkan níu morgun-
inn eftir. Þegar ég stóð sjálfur fyrir
utan var viðhorfið til Alþingis ef til
vill ekki alltaf jákvætt en hér er fólk
bara að puða og vinna og það er
ánægjulegt að sjá það.“
Hann segir vinnustaðinn
skemmtilegan, samstarfsfólkið
litríkt og með mismunandi
skapgerð. „Alþingismennska er
ekki kennd í háskóla, það er víst.
Þar þarf að bregðast hratt við og
vera hörkuduglegur. Það er hollt
fyrir Alþingi að það endurspegli
þjóðfélagið á breiðan hátt og
mikilvægt að þar sé fólk sem kemur
alls staðar að bæði hvað varðar
menntun og starfsreynslu.“
Í þingmennskunni hef ég þurft
að stíga út úr því þægindaumhverfi
sem ég var búinn að koma mér upp
í kennslunni og íþróttunum og það
hefur verið mjög þroskandi.“
ÓTRYGG FRAMTÍÐ
Bæði þingmanns- og þjálfarastarfið
eru nokkuð ótrygg til lengri tíma
litið og segist Willum ætla að skoða
stöðuna þegar þar að kemur. „Mér
fannst ég eiga erindi í Framsóknar-
flokkinn og fór í þingmannsstarfið
af fullum krafti. Hér ætla ég svo að
vinna vel í fjögur ár og skoða stöð-
una að þeim tíma liðnum. Þjálfara-
starfið bar brátt að og ég verð í
því út september og sé svo til. Mér
finnst gott að hafa nóg að gera og
finnst það forréttindi að hafa úr
tækifærum að velja.“
■ liljabjork@365.is
ÞINGMAÐURINN
Í BOLTANUM
FJÖLSKYLDUMAÐUR Alþingismaðurinn og nýráðinn aðstoðarþjálfari Breiða-
bliks, Willum Þór Þórsson, saknaði fótboltans þegar hann fórnaði honum fyrir
þingstarfið. Það er heilög regla hjá honum að eyða helgum með fjölskyldunni.
ALÞINGIS-
MAÐURINN
Þingmaðurinn
Willum segir lífið
hafa gjörbreyst
á jákvæðan hátt
við að taka sæti
á Alþingi. Hann
fórnaði þó fót-
boltanum fyrir
þingið en ætlar
að snúa aftur á
völlinn í sumar.
MYND/DANÍEL
KNATT-
SPYRNU-
ÞJÁLFARINN
Þjálfarinn
Willum leiddi
sína menn í Val
til sigurs í Ís-
landsmótinu
árið 2007. Þar
fögnuðu þeir
Guðmundur
Benediktsson
saman en þeir
eru nú sam-
einaðir á ný í
Breiðabliki.
MYND/VILHELM
Speglar frá 5.000
Skrifstofuhillur frá 9.900
Rúm 153-193cm frá 69.000
Borðstofuborð frá 47.500
Sófaborð frá 7.500
Púðar frá 2.900
Stólar frá 2.000
Borðstofuskenkar frá 77.000
Bar skápar frá 89.000
Púðaver frá 1.000
LAGERHREINSUN
Íslenskir sófar
Fyrir íslensk heimili
• Gerð (fleiri en 900 mismunandi útfærslur)
• Stærð (engin takmörk)
• Áklæði (yfir 3000 tegundir)
Þú velur
og draumasófinn þinn er klár
Basel
Við ætlum að rýma fyrir nýjum vörum og
bjóðum allt að 50% afslátt
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
laugard. 11-16
Rín
SÓFAR Í ÖLLUM STÆRÐUM
Helgartilboð
kaffidrykkur og ástarpungur
500kr.
opið til 22 alla daga.