Fréttablaðið - 26.04.2014, Page 42
ORKA NÁTTÚRUNNAR
Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is · on@on.is
Umsóknarfrestur
Til og með 10. maí 2014
Farið verður með allar
umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar
Umsækjendur eru
vinsamlegast beðnir að
sækja um starfið á heima-
síðu Capacent Ráðninga,
www.capacent.is. Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Markaðsgreiningar og rannsóknir
• Ytri og innri markaðssetning
• Umsjón með herferðum
• Ábyrgð á samfélagsmiðlum
• Verkefnastjórn
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Háskólapróf á sviði markaðsmála
• Góð þekking og tök á InDesign og Photoshop
• Góð almenn tölvufærni nauðsynleg, þekking á SharePoint er kostur
• Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
• Þekking og reynsla á raforkumarkaðnum kostur
Orka náttúrunnar óskar eftir að ráða öflugan markaðsfræðing í fjölbreytt og krefjandi starf í markaðsdeild. Markaðsdeild ON ber ábyrgð á
öllum markaðsmálum, ímyndarmálum og markaðsgreiningum, auk sölu til heimila. Leitað er eftir hugmyndaríkum einstaklingi með mikla
þjónustulund. Við leitum að umsækjanda sem hefur tileinkað sér sjálfstæð og öguð vinnubrögð og getur sýnt fram á mikla færni í samskipta-
og skipulagsmálum. Framundan eru spennandi verkefni við að byggja upp nýtt vörumerki hjá einu stærsta orkufyrirtæki landsins.
Orka náttúrunnar er annað stærsta
orkufyrirtæki landsins. Fyrirtækið
byggir á mikilli þekkingu og reynslu
í orkuvinnslu. Leiðarljós okkar er að
bjóða rafmagn á samkeppnishæfu
verði til allra landsmanna.
Okkur vantar markaðssnilling - ertu ON?
Hjá okkur er jákvæður starfsandi sem einkennist af liðsheild, uppbyggilegum skoðanaskiptum og virðingu í samskiptum.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur
fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar veita Jóna Björk Sigurjónsdóttir (jona.sigurjonsdottir@capacent.is) og Erik Christianson
Chaillot (erik.chaillot@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum. Við hvetjum jafnt konur og karla til að sækja um starfið.