Fréttablaðið - 26.04.2014, Page 49

Fréttablaðið - 26.04.2014, Page 49
Vegna námsleyfis er staða framkvæmdastjóra Akureyrarstofu laus til umsóknar frá 15. ágúst 2014. Starfið veitist frá 31. júlí 2015. Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum. Starfssvið: Akureyrarstofa er skrifstofa atvinnu-, ferða-, menningar-, markaðs- og kynningarmála hjá Akureyrarbæ. Á Akureyrarstofu starfa verk- efnisstjórar saman í teymi, hver með ábyrgð á afmörkuðum sviðum í starfseminni. Framkvæmdastjóri er yfirmaður þeirra og forstöðu- manna þeirra menningarstofnana sem reknar eru af Akureyrarbæ. Rekstur Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna á Akureyri heyrir einnig undir starfsemina. Akureyrarstofa er tengiliður við stofnanir sem fjármagnaðar eru af miklu leyti af Akureyrarbæ og tengjast málaflokkum hennar: Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, Leikfélag Akureyrar, Markaðsskrif- stofa Norðurlands, Menningarfélagið Hof, Minjasafnið á Akureyri og Sinfóníuhljómsveit Stjórn Akureyrarstofu er nefndin sem fer með málaflokkana og er framkvæmdastjóri Akureyrarstofu jafnframt framkvæmdastjóri hennar. Hann undirbýr fundi hennar og fylgir ákvörðunum hen- nar eftir.Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu Akureyrarbæjar www.akureyri.is þar sem sótt er um rafrænt Umsóknarfrestur er til 10. maí 2014 Framkvæmdastjóri Akureyrarstofu Upplýsingafulltrúi » umhverfismál á mannamáli Ef þú hefur reynslu af fjölmiðlum og áhuga á umhverfismálum þá gætum við verið með starf fyrir þig. Umhverfisstofnun hefur markað sér stefnu í upplýsingmálum sem grundvallast á miklu gagnsæi og metnaði fyrir að taka virkan þátt í opinberri umræðu um umhverfismál. Ítarlegri upplýsingar um starfið og hæfniskröfur til þess er að finna á starfatorg.is og umhverfisstofnun.is/storf_i_bodi/ Umsóknarfrestur er til og með 12. maí 2014. Umsóknir skulu sendar til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík eða á netfangið umhverfisstofnun@umhverfisstofnun.is Akureyri - Egilsstaðir - Hella - Ísafjörður Mývatn - Patreksfjörður - Reykjavík Snæfellsnes - Vestmannaeyjar FAGMENNSKA SAMVINNA FRAMSÝNI VIRÐING ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á íslenskum verktakamarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa um 400 manns, víðsvegar um landið sem og erlendis. ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki sem var stofnað árið 1970 og hefur annast ýmis verkefni, svo sem virkjanir, stór- iðjuver, hafnargerð, vega- og brúagerð auk flugvalla. Ennfremur húsbyggingar fyrir opinberar stofnanir, sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklinga. Upplýsingar um starfið eru veittar á skrifstofu ÍSTAKS, Bugðufljóti 19, 270 Mosfellsbæ og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00. Sækja skal um starfið á www.istak.is – undir „Starfsumsókn“. TRÉSMIÐIR ÍSTAK óskar eftir að ráða trésmiði til starfa. Viðkomandi þurfa að geta hafið störf fljótlega. TÆKJASTJÓRNENDUR ÍSTAK óskar eftir að ráða vana tækjastjórnendur til starfa við fram- kvæmdir hér á landi. Um er að ræða stjórnun á gröfum, jarðýtum, vörubílum með krana auk annarra tilfallandi verkefna. Viðkomandi þurfa að geta hafið störf fljótlega. Innréttingasmiður Innréttingasmiður eða maður vanur vinnu á trésmíðaverkstæði Óskast til starfa sem fyrst. Mikill fjölbreytileiki verkefna.Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem hefur frumkvæði, góða samstarfshæfileika og hæfni til að geta unnið sjálfstætt Áhugasamir sendi inn umsóknir á gussi@vogn.is HæfniskröfurHelstu verkefni og ábyrgð islandsstofa@islandsstofa.is ragnheidur@islandsstofa.is Spennandi starfsnám - V E R K S T Æ Ð I Ð - Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 METNAÐARFULLIR BIFVÉLAVIRKJAR ÓSKAST Við leitum að bifvélavirkjum, bæði til starfa í tæknimálum og eins við almennar viðgerðir. Starfsumhverfi, gæðakerfi og endurmenntun er samkvæmt stöðlum Volkswagen Group. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingum sem hafa ánægju af störfum sínum. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. – 30 ára • stofnað 1984 –

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.