Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.04.2014, Qupperneq 86

Fréttablaðið - 26.04.2014, Qupperneq 86
26. apríl 2014 LAUGARDAGUR| SPORT | 1. sæti ??? 2. sæti ??? 3. sæti ??? 4. sæti ??? 5. sæti ??? 6. sæti ??? 8. sæti ÞÓR 8. sæti Fram 9. sæti Keflavík 10. sæti Víkingur 11. sæti Fylkir 12. sæti Fjölnir 54 Þrátt fyrir skrautlegt sumar að ýmsu leyti í fyrra hélt Þór sæti sínu í Pepsi-deildinni nokkuð örugglega og leikur því annað árið í röð á meðal þeirra bestu. Akureyri hefur beðið lengi eftir því að eiga aftur stöðugt úrvalsdeildarfélag og ættu Þórsarar hæglega að geta hangið áfram á meðal þeirra bestu. Þórsarar voru mikið í sviðsljósinu í fyrra, þökk sé skrautlegum varnarleik og stundum enn skrautlegri markvörslu, en unnið hefur verið í þessum tveimur þáttum í vetur. Strákarnir úr þorpinu mæta með samheldið lið til leiks sem á ekki að þurfa að vera í neinni fallbaráttu. Frábær framherji sem fór fyrir Þórsliðinu á síðasta tímabili. Hann skoraði fimm mörk í níu leikjum í 1. deildinni 2012 og sýndi það svart á hvítu í fyrra að hann er einn af bestu framherjum úrvalsdeildarinnar þegar hann skoraði tíu mörk í 18 leikjum. Chuck er sterkur, fljótur, góður með boltann og getur bæði komið sér í góðar stöður í teignum og einnig búið til færin sín sjálfur með mikilli baráttu og auðvitað miklum hæfileikum. Sándor Matus (KA) Þórður Birgisson (KF) Hjörtur Geir Heimisson (Magna) Arnþór Hermannsson (Völsungi) FYLGSTU MEÐ ÞESSUM Jónas Björgvin Sigurbergsson Fæddur 1994 og spilaði níu leiki með Þórsliðinu á síðasta tímabili. Hann mun vafalítið fá stærra hlut- verk með Þórsurum í sumar. Jónas getur bæði leikið á kantinum og inni á miðjunni en hann er góður á boltann, með fína yfirsýn, góðar sendingar og getur lagt upp færi. Páll Viðar Gíslason er 44 ára og á sínu fimmta ári með Þórsliðið. Hann tók við því í byrjun tímabils 2010 og hefur gert fína hluti með það síðan. SPORT GENGIÐ SÍÐUSTU SEX TÍMABIL > 2008 (B-deild, 8. sæti) - 2009 (B-deild, 6. sæti) - 2010 (B-deild, 2. sæti) - 2011 (11. sæti) - 2012 (B-deild, 1. sæti) - 2013 (8. sæti) Íslandsmeistarar: Aldrei (3. sæti 1985 og 1992) / Bikarmeistarar: Aldrei (úrslit 2011) ➜ EINKUNNASPJALDIÐ VÖRNIN ★★★★★ SÓKNIN ★★★★★ ÞJÁLFARINN ★★★★★ BREIDDIN ★★★★★ LIÐSTYRKURINN ★★★★★ HEFÐIN ★★★★★ Þór hafnar í 8. sæti ➜ Lykilmaðurinn ➜ Þjálfarinn ➜ Nýju andlitin TÖLURNAR Í FYRRA Mörk skoruð 8. sæti (1,41 í leik) Mörk á sig 10. sæti (2,00 í leik) Stig heimavelli 10. sæti (10 af 30,3%) Stig á útivelli 7. sæti (14 af 42,4%) HEFST 4. MAÍ SPÁ FRÉTTABLAÐSINS HANDBOLTI „Þetta er allt að smella og við að toppa sem lið á réttum tíma,“ segir Ágúst Elí Björgvins- son, markvörður FH í Olís-deild karla í handbolta, en liðið er einum sigri frá því að sópa deildar- og bikarmeisturum Hauka í sumarfrí í undanúrslitum deildarinnar. FH rétt slefaði inn í úrslita- keppnina en liðið vann þrjá af síð- ustu fjórum leikjum sínum í deild- inni eftir að hafa tapað sex af sjö þar á undan. Með tilkomu Krist- jáns Arasonar hefur liðið spilað eftir getu og er búið að vinna besta lið tímabilsins í tvígang. FH-ing- um leiðist heldur ekkert að vera að eyðileggja tímabilið fyrir erki- fjendum sínum. Æðislegt að spila í þessu liði Sá leikmaður sem hefur komið mest á óvart í einvíginu til þessa er markvörðurinn Ágúst Elí sem er með samanlagt 45 prósent hlut- fallsmarkvörslu í fyrstu tveimur leikjunum. Hann er að springa út nú þegar ljósin skína sem skærast en til viðmiðunar var hann aðeins með 28 prósent hlutfallsmark- vörslu í síðustu tveimur leikjum liðsins í deildinni sem báðir voru sigurleikir. „Það er alveg æðislegt að spila í þessu liði núna. Fyrir svona mán- uði var það dapurt en við hertum okkur bara saman. Hausinn komst í lag hjá okkur og þetta small í gang. Við höfum alltaf búið yfir þessum gæðum en nú erum við að sýna þau,“ segir markvörðurinn ungi sem er aðeins 19 ára gamall. Hann þakkar frábærum varn- arleik liðsins fyrstu tvo sigrana. „Varnarvinnan er búin að vera þvílík. Ísak (Rafnsson) er búinn að vera frábær. Ég hef farið með honum upp alla yngri flokkana en aldrei séð hann í þessum ham. Samvinna varnar- og markmanns hefur verið frábær og það gerir manni auðveldara um vik. Ég er aðallega bara að verja úr dauða- færum.“ Frábært tækifæri Ef allt væri eðlilegt væri Ágúst Elí vafalítið ekki að spila mikið í þess- ari úrslitakeppni enda hóf hann tímabilið sem varamaður Daníels Freys Andréssonar sem var besti markvörður Íslandsmótsins þegar hann meiddist illa um miðbik móts. Eins manns dauði er annars brauð í hörðum heimi íþróttanna og er Ágúst nú að nýta tækifærið til fulls. „Þetta er alveg frábært tæki- færi sem ég hef fengið. Ég gat bara ekki fengið betri séns. Einar Andri þjálfari sagði við mig strax að það væri enginn að ætlast til neins af mér og því þyrfti ég ekki að setja neina pressu á sjálfan mig. Fyrr í vetur ætlaði ég bara að reyna að gera gott úr þessum vetri og ná mér í smá reynslu og hjálpa Danna en svo fékk ég þetta frábæra tæki- færi og nú er allt í blóma hjá lið- inu. Þetta er búið að vera ótrúlega gaman,“ segir Ágúst Elí. Góður sunnudagur FH getur afgreitt einvígið við deildarmeistara Hauka á Ásvöllum á sunnudaginn þegar liðin mætast þriðja sinni og það er takmarkið. „Við ætlum að klára þetta en það verður erfitt,“ segir Ágúst Elí. „Það yrði ekki amalegur sunnu- dagur að sjá Liverpool vinna Chelsea og sópa svo Haukunum í sumarfrí. Við erum samt ekki búnir að vinna neitt og verðum að halda okkur á jörðinni.“ tom@frettabladid.is Óvænt hetja FH-inga Ágúst Elí Björgvinsson hefur farið á kostum í fyrstu tveimur leikjum FH í úrslita- keppninni. Fékk óvænt tækifæri í vetur vegna meiðsla Daníels Andréssonar. TRAUSTUR Ágúst Elí Björgvinsson ver eins og berserkur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Við stöndum fyrir réttlæti - Ekkert um okkur án okkar Námssjóður Sigríðar Jónsdóttur - styrkumsókn 2014 Stjórn Námssjóðs Sigríðar Jónsdót tur auglýsir hér með ef tir umsóknum um styrk úr sjóðnum. Umsóknarfrestur er til 19. maí næstkomandi. Umsóknareyðublað á heimasíðu ÖBÍ www.obi.is/thinn-rettur/styrkir/styrkumsokn-namssjod-sj/ Eyðublöð fást einnig á skrifstofu ÖBÍ. Kvit tun/-anir vegna námskostnaðar þurfa að fylgja umsókn. Styrkir eru veit tir til: • öryrkja til hagnýts náms, bóklegs eða verklegs, svo og til náms í hvers konar listgreinum. • einstaklinga sem vilja hæfa sig til starfa í þágu þroskahef tra. Styrkjunum verður úthlutað 11. júní 2014. Allar nánari upplýsingar gefa Anna Guðrún Sigurðardóttir eða Guðríður Ólafsdóttir í síma 530 6700. Stjórn Námssjóðs Sigríðar Jónsdóttur Lærðu að búa til smyrsl með Önnu Rósu grasalækni HEILSUHÚSIÐ LÁGMÚLA 5 KL. 19:30 – 21:30 Á námskeiðinu fjallar Anna Rósa um algengar lækningajurtir sem notaðar eru í smyrsl. Sýnikennsla verður á staðnum, námsgögn og uppskrift fylgja og allir fá smyrsl með sér heim. Nánari upplýsingar og skráning á annarosa@annarosa.is eða í síma 662 8328. ANNA RÓSA GRASALÆKNIR starfar við ráðgjöf sem grasalæknir, framleiðir vinsælar vörur úr jurtum, skrifar bækur og hefur haldið fjölda námskeiða um lækningajurtir. mánudagur 5. maí 6.900 kr. FÓTBOLTI Liverpool getur lætt um níu puttum á enska meistara- titilinn ef liðinu tekst að leggja Chelsea á morgun. Liverpool er með fimm stiga forskot á Chelsea og getur því gert út um meistara- vonir Jose Mourinho og lærisveina hans í leiknum. Mourinho hóf sálfræðistríð- ið fyrir leikinn í vikunni er hann sagðist vilja hvíla alla byrjunar- liðsmenn sína. „Bíðið fram að leik. Þá fáið þið að vita liðið hjá mér,“ sagði Mourinho í gær. Brendan Rodgers, stjóri Liver- pool, er pollrólegur. „Ég hef aldrei sofið betur. Sama hvað gerist þá getum við verið ánægðir með frábært tímabil. Fólk talar um pressu en það er engin pressa á okkur,“ sagði Rodgers. Leikurinn hefst klukkan 13.05 á morgun. - hbg Engin pressa á okkur Stjóri Liverpool sefur eins og barn fyrir leikinn stóra. ÓSTÖÐVANDI Suarez hefur skorað grimmt í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY HANDBOLTI „Það á ekki af mér að ganga. Ég fékk heiftarlegt gall- steinakast á skírdag og átti að fara beint í aðgerð. Ég afþakkaði það pent,“ segir Hrafnhildur Skúla- dóttir, lykilleikmaður í liði Vals, en hún ætlar að reyna að harka af sér og klára úrslitakeppnina. „Ég hef bara ekki tíma í þetta núna. Ég er að reyna að klára úrslitakeppnina. Ég var svo hepp- in að skurðlæknirinn var fótbolta- stelpa og hún skildi mig því vel.“ Hrafnhildur hefur þurft að breyta mataræði sínu út af veik- indunum. „Ég var hálf heiladauð til þess að byrja með. Smám saman hefur orkan komið og mér líður ágæt- lega. Það er ekkert hægt að meiða mig með því að kýla mig í mag- ann. Ég er bjartsýn á að geta klár- að mótið þó svo heilinn gangi á fitunni og þetta sé ekki það besta sem sé hægt að gera.“ Hrafnhildur hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir þetta tímabil og þessi mikli harðjaxl og afrekskona neitar að játa sig sigr- aða. „Þetta er síðasta tímabilið mitt og ég vil ekki enda ferilinn svona. Þetta verður að hafast. Ég hefði aldrei fyrirgefið sjálfri mér ef ég hefði ekki látið á þetta reyna. Ég reyndi þá að minnsta kosti.“ - hbg Afþakkaði aðgerðina Hrafnhildur fékk gallsteinakast en fór ekki í aðgerð. HARÐJAXL Það er sársaukafullt að fá gallsteinakast og ekki allir sem afþakka aðgerð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.