Fréttablaðið - 03.05.2014, Blaðsíða 2
3. maí 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
SKIPULAG „Við viljum að forsvars-
menn framboðanna allra lýsi því
yfir að þeir muni ekki hrófla við
flugvellinum, hvorki neyðarbraut-
inni né öðrum brautum, fyrr en
komin er niðurstaða um hvað eigi
að verða um þá starfsemi sem nú
fer fram og myndi þurfa að fara
annað, þar á meðal sjúkraflugið og
neyðarbrautin.“
Þetta segir Friðrik Pálsson,
annar formanna samtakanna
Hjartað í Vatnsmýrinni sem í gær
fullyrtu á fundi með fréttamönn-
um að meirihlutinn í borgarstjórn
Reykjavíkur virti ekki samkomu-
lag um sáttaferli flugvallarins sem
samið var um í Hörpu í lok októ-
ber 2013.
„Meirihlutinn hefur hafið árás
á flugvöllinn á þrennum vígstöðv-
um samtímis. Hann fer fram með
offorsi og virðir ekki það sáttaferli
sem málið var sett í með stofnun
sérstakrar sáttanefndar borgar-
innar, ríkisins og Icelandair Group.
Nefndin átti að fullkanna alla val-
kosti fyrir innanlandsflug til og
frá Reykjavík. Skilningurinn á
bak við samkomulagið var að ekki
yrði hróflað við vellinum á meðan,“
segir Friðrik.
Hann getur þess að í fyrsta lagi
virðist sem borgin ætli að leyfa
strax byggingar á Hlíðarendasvæð-
inu þótt það liggi ljóst fyrir að það
verði ekki gert nema neyðarbraut-
inni verði lokað.
„Í öðru lagi hafa eigendur Flug-
garða nýlega fengið tilkynningu um
að niðurrif flugskýla og flugskóla
á svæðinu hefjist strax árið 2015
og verði án bóta. Niðurrifið rífur
hjarta kennslu og almannaflugs
upp með rótum og enginn annar
staður er í boði fyrir starfsemina.“
Í þriðja lagi hafi borgin sam-
þykkt skipulag og tilkynnt um
byggð sem rísa á á neyðarbraut
flugvallarins við Skerjafjörð. Frið-
rik segir byggðina munu eyðileggja
neyðarbrautina og hafa alvarleg
áhrif á flugsamgöngur til borgar-
innar í verstu veðrum.
Í fréttatilkynningu frá Reykja-
víkurborg frá því í gær segir
að borgin hafi virt samkomulag
við innanríkisráðuneytið og Ice-
landair um innanlandsflug í einu
og öllu. Nýtt deiliskipulag fyrir
flugvöllinn sé í fullu samræmi við
samkomulagið. Raunar hafi verið
kveðið á um fjölmörg atriði þess í
samkomulaginu.
Jafnframt er fullyrt að uppbygg-
ingaráform Valsmanna á Hlíðar-
enda séu í fullu samræmi við sam-
komulagið.
Bent er á að Isavia hafi það verk-
efni með höndum að finna framtíð-
arstaðsetningu fyrir æfinga- og
kennsluflug.
Formenn Hjartans í Vatns-
mýri benda á að rúmlega 69 þús-
und Íslendingar hafi skrifað undir
áskorun til meirihluta borgar-
stjórnar og Alþingis um að tryggja
flugstarfsemi í Vatnsmýri til fram-
tíðar. Þá vilji 80 prósent lands-
manna og 71 prósent íbúa í Reykja-
vík að völlurinn verði áfram í
Vatnsmýri. ibs@frettabladid.is
Segja sáttaferli um
flugvöllinn ekki virt
Formenn Hjartans í Vatnsmýri segja ráðist á Reykjavíkurflugvöll á þrennum víg-
stöðvum. Vilja yfirlýsingu frá framboðum um að ekki verði hróflað við Reykja-
víkurflugvelli fyrr en niðurstaða er fengin um starfsemina sem nú fer fram.
Á NEYÐAR-
BRAUT
REYKJA-
VÍKURFLUG-
VALLAR
Formenn
samtakanna
Hjartað í
Vatnsmýri
segja meiri-
hluta borgar-
innar fara
fram með
offorsi.
SKOÐUN 12
PÓLITÍSK ÓVISSA OG VEIKLEIKI 12
Þorsteinn Pálsson um andstæðinga evrópskrar
samvinnu og pólitíska óvissu.
FINNUR FREYR STEFÁNSSON
fagnaði innilega í leikslok þegar
íslandsmeistaratitillinn var í höfn.
„Við erum fokking Íslandsmeist-
arar,“ sagði hann af því tilefni við
Guðjón Guðmundsson í beinni
útsendingu Stöðvar 2 Sports.
GHASEM MOHAMADI fór
í mótmælasvelti til að mót-
mæla sinnuleysi íslenskra
stjórnvalda í sinn garð.
Vildi hann frekar deyja á
Íslandi en vera fluttur til
baka til Afganistans.
➜ SVEINBJÖRG BIRNA SVEINBJÖRNSDÓTTIR er nýr oddviti Framsóknarflokks eftir ævintýralegt
brölt við að setja saman lista. Fjórar konur skipa efstu sætin. Sveinbjörg er mikil tungumálakona.
KRISTJÁN JÓHANNSSON, for-
maður Félags flugmálastarfsmanna
ríkisins, var mikið í fréttum vik-
unnar. Verkfall vofði yfir og drög að
lögum á verkfall komin fram. Ekkert
varð þó af verkfalli og því frestað til
22. þessa mánaðar.
BRYNJAR DAGUR STEFÁNSSON sigraði í Ísland Got
Talent með eftirminnilegum danssporum. Áhorfend-
ur vissu ekki hvort sumar hreyfingar hans væru úr
þessum heimi eða öðrum.
Brynjar Dagur er 10 millj-
ónum króna ríkari.
MATUR FRÁ ÖLLUM
HEIMSHORNUM 16
Samtökin SUMAR, Samtök um matseld annarra
ríkja, bjóða til alþjóðlegrar matarhátíðar á KEXi
hosteli um helgina.
MEIRIHLUTI FALLINN Í ÍSA-
FJARÐARBÆ 32
Meirihluti Framsóknarfl okks og Sjálfstæðisfl okks
er fallinn samkvæmt könnun Fréttablaðsins.
VILJUM VIÐ VERA HERÚLAR? 36
Illugi Jökulsson heldur áfram að rekja sögu
Herúla og þeirrar kenningar að þessi dularfulla
þjóð hafi endað hér á Íslandi.
STJÓRNMÁL Nýtt frjálslynt stjórn-
málaafl á Íslandi hefur boðað
komu sína með opnun heimasíðu á
netfanginu viðreisnin.is. Þar gefst
fólki kostur á að skrá sig styðji það
undirbúning og stofnun slíks afls.
Ábyrgðarmenn síðunnar eru
Benedikt Jóhannesson, Ellisif
Tinna Víðisdóttir og Hanna Katr-
ín Friðriksson.
Benedikt sagði í samtali við
Fréttablaðið að ólíklegt væri að
það hefði áhrif á stofnun þessa
nýja afls ef ríkisstjórnin ákvæði
að draga til baka þingsályktun-
artillöguna um að draga til baka
umsókn í Evrópusambandið,
en hann var meðal þeirra sem
afhentu Alþingi undirskriftir gegn
ályktuninni í gær.
„Hann [flokkurinn] er ekki bara
tengdur þessu eina máli, ýmislegt
fleira hefur komið til og það er
kannski þannig að það er virkileg
þörf fyrir framboð sem er svona
frjálslynt og hefur þessi almennu
stefnumál um frelsi á markaði,
haftalaust þjóðfélag og ég held
að við munum uppfylla þá þörf að
minnsta kosti að stórum hluta,“
sagði Benedikt. - fbj
Nýr hægrisinnaður flokkur opnar skráningarsíðu fyrir stuðningsmenn:
Boða stofnun frjálslynds afls
FLOKKUR Nýr flokkur verður ekki eins
máls flokkur segir Benedikt Jóhannes-
son. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Réttlátt samfélag Vel skilgreindur
réttur allra til góðrar menntunar
og heilbrigðisþjónustu og gróska
í menningarlífi. Lífskjör á Íslandi
svipuð og í nágrannalöndum.
Jafnvægi Stöðugt efnahagslíf
og fjölbreytt atvinnutækifæri.
Verðmætasköpun með hugviti og
skynsamlegri nýtingu auðlinda nú
og til framtíðar. Hallalaus fjárlög
og skuldir ríkisins lækkaðar.
Viðskiptafrelsi Markaðslausnir
þar sem við á, gjaldeyrishöft felld
niður, engar samkeppnishindranir.
Frelsi, jafnrétti, lýðræði og jafn
atkvæðisréttur fyrir alla.
Vestræn samvinna Samninga-
viðræðum við Evrópusambandið
lokið með hagstæðasta hætti fyrir
Íslendinga og samningur borinn
undir þjóðina.
➜ Markmið aflsins:
SKOÐUN 12
STRÆTÓLÖG Í STRÆTÓ 52
Áshildur Haraldsdóttir býður í tónleikaferðalag.
FJÖGURRA STJÖRNU
BARNASÝNINGAR 53
Gagnrýni um sýningar á Fetta bretta og Óður og Flexa
reyna að fl júga .
LAY LOW HITAR UPP FYRIR TÚR 56
Tónleikar á Café Rosenberg í kvöld.
M
YN
D
/H
JA
RT
AÐ
Í
VA
TN
SM
ÝR
I
69.782
Íslendingar skrifuðu undir
áskorun til borgarstjórnar og
Alþingis um að halda
fl ugvellinum í Vatnsmýrinni.
UNDIRSKRIFTIR AFHENTAR 4
Forsvarsmenn Já Ísland afh entu forseta Alþingis
tæplega 54 þúsund undirskrift ir gegn þingsálykt-
unartillögu um að draga til baka aðildarumsókn
að Evrópusambandinu.
VILL GÖNG Í STAÐ
LANDEYJAHAFNAR 6
Meirihluti Framsóknarfl okks og Sjálfstæðis-
fl okks er fallinn samkvæmt könnun Frétta-
blaðsins.
ÁTÖKIN Í ÚKRAÍNU HARÐNA 8
Úkraínustjórn segir fj ölda uppreisnarmanna
hafa fallið í átökum við her landsins í austan-
verðri Úkraínu. Tvær þyrlur stjórnarhersins voru
skotnar niður.
KERFIÐ ÚRRÆÐALAUST 10
Faðir konu sem var ein í íbúð við Iðufell í
Breiðholti þar sem eldur kom upp segir kerfi ð
úrræðalaust gagnvart geðsjúkum.
FRÉTTIR 2➜10
HELGIN 16➜42
SPORT 64
MENNING 52➜57
FIMM Í FRÉTTUM NÝR ODDVITI OG MÓTMÆLASVELTI
SEGLAGERÐIN ÆGIR
Þar sem ferðalagið byrjar
FERÐAVAGNAR
Þegar þú
vilt gæði
MÆTTI Í GEGNSÆJUM BOL 58
Leikarinn Corey Feldman stal senunni þegar
iHeartRadio-tónlistarverðlaunin voru veitt.
FRUMFLYTUR LAG MEÐ
MALTNESKRI EUROVISION-
STJÖRNU 61
Valgeir Magnússon er umboðsmaður söng-
konunnar Chiara Siracusa.
ÁSGEIR TRAUSTI TIL
BANDARÍKJANNA 62
Fer í sitt fyrsta tónleikaferðalag eft ir að hann
samdi við Columbia.
LÍFIÐ 56➜70
ÞEIR UNGU SKILA TITLUNUM 64
Aðeins einn af 33 Íslandsmeistaraþjálfurum í
körfubolta karla frá 1984 hefur verið yfi r fertugu.
KR VERÐUR MEISTARI 64
Íþróttadeild Fréttablaðsins og Vísis spáir KR
sigri í Pepsi-deild karla í sumar.