Fréttablaðið - 03.05.2014, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 03.05.2014, Blaðsíða 26
3. maí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26 Erfiðar heimilisaðstæður höfðu einkennt sambúð hjónanna í Kötlufelli 11 um nokkurt skeið þegar árið 1981 gekk í garð. Eiginmaðurinn drakk stíft og börnin tvö, fimm og sex ára, upplifðu óregluna nær daglega í janúarmánuði þetta örlagaríka ár. Konan skemmti sér einnig talsvert og sagði vinkon- um sínum að ef eiginmaðurinn færi ekki að drekka, myndi hún kaupa flösku fyrir hann sjálf, svo hann færi að drekka, til þess að hún kæmist út til að skemmta sér. Linda Hilmarsdóttir, 14 ára barnfóstra, var því nær dagleg- ur gestur á heimili hjónanna og gætti barnanna. Morðhótun og bensín á svölunum Sunnudaginn 25. september 1981 hélt drykkja mannsins áfram í hádeginu. Hann kastaði af sér þvagi í eldhúsvaskinn og ataði íbúðina út. Hjónin rifust vegna ástandsins og varð barnfóstran vör við að konan hótaði manninum lífláti ef hann færi ekki í meðferð. Tveimur dögum áður hafði heim- ilisbíllinn orðið bensínlaus í næstu götu og hafði eiginmaðurinn náð í bensín á brúsa til að setja á bílinn. Þegar hann hugðist setja bensín- ið á bílinn hafði bílinn verið fjar- lægður af lögreglunni. Að lokum endaði bensínbrúsinn á svölum íbúðarinnar. Kveikti hann í sér út frá reykingum? Síðdegis þennan sama sunnudag hélt konan með börnin í næsta hús því hún vildi lofa þeim að horfa á Stundina okkar í lit. Þremur korterum síðar þegar hún sneri aftur heim til sín var íbúðin orðin full af reyk. Hún fór upp á næstu hæð og bað um hjálp því kviknað væri í íbúð sinni og eiginmaðurinn inni. Hún gaf þá skýringu að þegar hún hafi yfir- gefið íbúðina hefði maðurinn setið á rúmstokknum talsvert ölvaður með logandi vindling í hendi. Taldi hún líklegt að hann hefði kveikt í sér út frá reyking- unum. Slökkviliðið kom fljótlega á staðinn, slökkti eldinn, og fann þar manninn látinn í eldhúsinu. Úrskurðuð í gæsluvarðhald Rannsóknarlögreglan tók við rannsókn málsins og í fyrstu voru eldsupptök ókunn. Þegar hald- inn var fundur með aðstandend- um hins látna, seinna um kvöld- ið, kom í ljós að hann hafði aldrei reykt. Þá vöknuðu grunsemdir um að eitthvað saknæmt kynni að hafa átt sér stað. Konan neitaði aðild að málinu en þremur dögum eftir brunann fór rannsóknarlög- reglan fram á gæsluvarðhald yfir henni þar sem framburður vitna og gögn málsins bentu til þess að hún ætti aðild að brunanum. Í þinghaldinu neitaði hún ásökunun- um og sagðist vera saklaus. Þrátt fyrir það var hún úrskurðuð í gæsluvarðhald og tveimur dögum síðar játaði hún að hafa kveikt í manninum þar sem hann lá sof- andi í hjónarúminu. Hún notaði til þess bensínbrúsann á svölunum og nýtti tækifærið meðan börnin biðu hennar á stigaganginum. Reyndi að eitra fyrir manninn Konan sagði rannsóknarlögregl- unni frá ofdrykkju mannsins og aðspurð um ástæðuna, svar- aði hún því til að hún væri hrif- in af öðrum manni sem hún hefði kynnst nokkrum árum áður. Hefði komið til tals milli þeirra hvort hægt væri að fyrirkoma eigin- manninum og í eitt skipti hefði konan sett asetón út í áfengis- blöndu hans í þeim tilgangi að eitra fyrir hann. Tilraunin mis- heppnaðist en konan sagðist eftir þetta hafa verið ákveðin í að bana eiginmanni sínum. 16 ára dómur í Sakadómi Reykjavíkur Í dómnum yfir konunni kemur fram að þau hjónin hafi verið í Hvítasunnusöfnuðinum og hafi skilnaðir ekki fengist auðveldlega þar. Þrátt fyrir erfiðar heimilis- aðstæður og mikla drykkju eigin- mannsins þóttu engar refsilækk- unarástæður koma til greina í Sakadómi Reykjavíkur. Því var konan dæmd til 16 ára fangelsis- vistar. Hæstiréttur mildaði dóminn í 14 ár. Í Íslenskum ástríðuglæpum á Stöð 2 á sunnudagskvöld verður fjallað um mál hjónanna og rætt við barnfóstru þeirra, rannsókn- arlögreglumann og önnur vitni. Að auki verður rætti við Sigþrúði Guðmundsdóttur, framkvæmda- stýru Kvennaathvarfsins, en málið í Kötlufelli árið 1981 var ein ástæða þess að athvarfið var stofnað. Rúmið sem brann í Breiðholti Í september árið 1981 kvað Sakadómur Reykjavíkur upp 16 ára fangelsisdóm yfir 27 ára tveggja barna móður úr Breiðholti. Það er einn þyngsti dómur sem kona hefur fengið á Íslandi. Konan hafði hugsað um það í nokk- urn tíma að fyrirkoma manni sínum og þegar hún lét loks verða af því var verknaðurinn miskunnarlaus. 24. janúar 1981 Mikil drykkja á heimili hjónanna í Kötlufelli. 25. janúar 1981 Maðurinn ferst í eldsvoða í Kötlufelli í Breiðholti. Eldsupptök ókunn. 27. janúar 1981 Verulegt misræmi í framburði konunnar annars vegar og vitna. 28. janúar 1981 Farið fram á gæslu- varðhald yfir konunni. Hún neitar sök. 30. janúar 1981 Konan játar að hafa banað eigin- manni sínum. 23. september 1981 Konan dæmd í 16 ára fangelsi í Sakadómi Reykjavíkur. 14. mars 1983 Konan dæmd í 14 ára fangelsi í Hæstarétti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.