Fréttablaðið - 03.05.2014, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 03.05.2014, Blaðsíða 78
3. maí 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 46TÍMAMÓT Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar móður, tengdamóður og ömmu, SVANHILDAR ÓLADÓTTUR sjúkraliða, áður til heimilis að Sunnuflöt 36, sem lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold mánudaginn 14. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Svanhildur Pétursdóttir Ingimundur Helgason Gunnar Óli Pétursson Brynja Baldursdóttir og barnabörn. Okkar ástkæri JÓN HERMANNSSON frá Borgarnesi, Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ, andaðist 26. apríl á Landspítalanum í Fossvogi. Hann verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju þriðjudaginn 6. maí kl. 14.00. Indriði Albertsson Helga Sveinbjörnsdóttir Helga Indriðadóttir Margrét Kristín Indriðadóttir Sveinbjörn Indriðason Magnús Indriðason fjölskyldur þeirra og aðrir aðstandendur. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæra MATTHÍASAR BJARNASONAR fyrrv. alþingismanns og ráðherra, Lómasölum 16, Kópavogi. Auður Matthíasdóttir Kristinn Vilhelmsson Hinrik Matthíasson Steinunn Ósk Óskarsdóttir Matthías Kristinsson Liv Anna Gunnell Matthías Hinriksson Kristín Dögg Guðmundsdóttir Sigrún Hanna Hinriksdóttir Kenneth Kure Hansen Kristín Petrína Hinriksdóttir og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát ástvinar okkar, ÞORSTEINS RÍNARS GUÐLAUGSSONAR. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Landspítala. Aðalheiður Birna Gunnarsdóttir Guðrún Jónsdóttir Gylfi Þór Þorsteinsson Hannes Snorri Helgason Jón Karl Helgason Fríða B. Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar foreldra okkar, tengdaforeldra, ömmu og afa, langömmu og langafa, MARGRÉTAR MAGNÚSDÓTTUR OG GUÐMUNDAR SIGURÞÓRSSONAR. Erna Bjargey Guðmundsdóttir Rúnar Vernharðsson Sigurþór Guðmundsson Ólöf Ásta Þorsteinsdóttir Margrét Rúnarsdóttir Berglind Rúnarsdóttir Þráinn Árni Baldvinsson Nanna Björk Rúnarsdóttir Björn Unnar Valsson Auður Ýr Sigurþórsdóttir Veigar Pálsson Guðmundur Sigurþórsson Bryndís Ýr Sigurþórsdóttir og barnabarnabörn. Íslenska þjóðin sat með öndina í háls- inum fyrir framan sjónvarpsskjái sína þann 3. maí árið 1986. Fæstir efuðust um að fyrsta framlag Íslendinga í söngvakeppni evrópskra sjón- varpsstöðva, Gleðibankinn, myndi bera sigur úr býtum í keppninni. Gífurlegur áhugi var á Eurovision-keppninni hér heima og sást varla hræða á ferli á meðan á henni stóð. Víða voru haldin samkvæmi til að fylgjast með sigurgöngu Gleðibankans. Forkeppnin var haldin í sjónvarpinu og bar lag Magnúsar Eiríkssonar sigur úr býtum en hann hafði þá um skeið verið einn vinsælasti dægurlaga- höfundur landsins. Allt var gert til að búa lagið sem glæsi- legast úr garði. Þrír vinsælir söngvarar fluttu lagið, þau Helga Möller, Pálmi Gunn- arsson og Eiríkur Hauksson, og kölluðu sig Icy af því tilefni. Vonbrigði íslensku þjóðar- innar urðu því gífurleg þegar lagið lenti í 16. sæti. Lands- menn voru þó fljótir að ná sér og áfallið virðist ekki hafa haft áhrif á óbilandi trú Íslendinga á að sigur í Eurovision sé rétt handan við hornið. ÞETTA GERÐIST 3. MAÍ 1986 Gleðibankinn keppir í Eurovision Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RANNVEIG ELÍN SIGURTRYGGVADÓTTIR frá Kornsá, lést mánudaginn 28. apríl á Heilbrigðis- stofnuninni á Blönduósi. Útför hennar fer fram frá Blönduóskirkju föstudaginn 9. maí kl. 14.00. Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Heilbrigðisstofnunina á Blönduósi. Jón Tryggvi, Guðmundur Karl, Sigurður Ingi, Kristján og Ingibjörg, tengdabörn og ömmubörn. Fyrsti sunnudagur í maí er alþjóðleg- ur hláturdagur. Hann er haldinn hátíð- legur í um sjötíu löndum, þar með talið á Íslandi. Upphafsmaður hláturjóga- hreyfingarinnar er indverski læknir- inn dr. Madan Kataria. Hann stofnaði fyrsta hláturklúbbinn árið 1995 ásamt konu sinni Madhuri. „Hann trúir því að það sé hægt að efla frið á milli manna í heiminum með því að fólk hlæi saman og gleðjist saman á þessum degi,“ segir Ásta Valdimarsdóttir hláturjógakennari, sem hefur veg og vanda af framkvæmd hláturdagsins hér á landi. Í Reykjavík er haldið upp á daginn með hlátursamkomu í Laugardalnum og hefst hún samkvæmt venju klukkan 13 við gömlu þvottalaugarnar. „Ég byrjaði með þetta fyrir rúmum tíu árum,“ segir Ásta. „Síðustu árin höfum við verið inni í Laugardal. Við byrjuðum á því að hafa þetta hláturgöngu en svo kom í ljós að margir sem mæta eiga erfitt með gang en hafa ákaflega gaman af því að taka þátt í þessu með okkur þannig að við höldum núorðið kyrru fyrir og hlæjum og gerum hláturæfingar.“ Ásta segist vel vita að margir hafi efasemdir um gildi hláturjógans, það hafi hún líka haft sjálf í upphafi. „Ég bjó úti í Noregi um tíma og sá auglýs- ingu um námskeið í hláturjóga í blaði. Mér fannst þetta voðalega asnalegt fyrst og hætti meira að segja við að mæta á fyrsta námskeiðið sem ég skráði mig á. Svo heyrði ég viðtal við konuna sem var með þessi námskeið og það höfðaði sterkt til mín. Ég hætti sjálf að hlæja strax sem krakki vegna þess að hinir krakkarnir hlógu alltaf að því hvernig ég hló. Hobbýið mitt hefur lengi verið að syngja og þegar ég fór í söngnám var mér sagt að ef ég gæti ekki hlegið þá gæti ég aldrei sungið. Þannig að ég sótti aftur um, fór á námskeiðið og hef aldrei séð eftir því.“ Ásta segir hláturjógað sífellt vera að sækja í sig veðrið og nú séu margir jóga- kennarar og íþróttakennarar farnir að benda nemendum sínum á hvað það sé gott og hollt að hlæja. „Þannig að umræð- an í þjóðfélaginu er alltaf að aukast.“ Grundvöllurinn í hláturjóganu er að kalla fram barnslega gleði, að sögn Ástu, og endurupplifa þá tilfinningu barnsins að geta hlegið að öllu. „Það finnst mörg- um það asnalegt að eiga að hlæja eftir pöntun og eiga erfitt með að trúa hversu auðvelt það er. Um leið og sú stemning er komin á að allir ætla sér að hlæja þá gengur það miklu betur og það hefur sýnt sig að um leið og þú ferð að hlæja þá verða alls konar góð viðbrögð í líkam- anum.“ Ásta segir alla velkomna í Laugardal- inn á morgun og að undanfarin ár hafi margir mætt með börnin sín og jafnvel hunda, sem sé virkilega skemmtilegt. „Ég hvet fólk eindregið til að koma og kynna sér þetta,“ segir hún. „Það gæti komið því verulega á óvart hversu mikla vellíðan hláturinn vekur.“ fridrikab@frettabladid.is Hláturinn gleður og efl ir frið á milli manna Alþjóðlegi hláturdagurinn er á morgun. Ásta Valdimarsdóttir hláturjógakennari hefur undanfarin ár boðið fólki að mæta í Laugardalinn og taka þátt í hláturjógasamkomu í tilefni dagsins og á því verður engin breyting í ár. Samkoman hefst við þvottalaugarnar klukkan 13. KENNIR FÓLKI AÐ HLÆJA „Ég hætti sjálf að hlæja strax sem krakki vegna þess að hinir krakkarnir hlógu alltaf að því hvernig ég hló,“ segir Ásta. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Okkar ástkæra systir, INGA VALGERÐUR JÖRGENSEN lést 5. mars í heimabæ sínum Frederiksværk í Danmörku. Útförin fór fram í kyrrþey. Bent Bjarni Jörgensen Per Sören Jörgensen og fjölskyldur. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar STEINUNNAR M. STEPHENSEN. Guðrún M. Stephensen og fjölskylda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.