Fréttablaðið - 03.05.2014, Qupperneq 78
3. maí 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 46TÍMAMÓT
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar
móður, tengdamóður og ömmu,
SVANHILDAR ÓLADÓTTUR
sjúkraliða,
áður til heimilis að Sunnuflöt 36,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold
mánudaginn 14. apríl. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Svanhildur Pétursdóttir Ingimundur Helgason
Gunnar Óli Pétursson Brynja Baldursdóttir
og barnabörn.
Okkar ástkæri
JÓN HERMANNSSON
frá Borgarnesi,
Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ,
andaðist 26. apríl á Landspítalanum í
Fossvogi. Hann verður jarðsunginn frá
Borgarneskirkju þriðjudaginn 6. maí kl. 14.00.
Indriði Albertsson Helga Sveinbjörnsdóttir
Helga Indriðadóttir Margrét Kristín Indriðadóttir
Sveinbjörn Indriðason Magnús Indriðason
fjölskyldur þeirra og aðrir aðstandendur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug vegna andláts
og útfarar okkar ástkæra
MATTHÍASAR BJARNASONAR
fyrrv. alþingismanns og ráðherra,
Lómasölum 16, Kópavogi.
Auður Matthíasdóttir Kristinn Vilhelmsson
Hinrik Matthíasson Steinunn Ósk Óskarsdóttir
Matthías Kristinsson Liv Anna Gunnell
Matthías Hinriksson Kristín Dögg Guðmundsdóttir
Sigrún Hanna Hinriksdóttir Kenneth Kure Hansen
Kristín Petrína Hinriksdóttir
og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra
sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát ástvinar okkar,
ÞORSTEINS RÍNARS
GUÐLAUGSSONAR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Landspítala.
Aðalheiður Birna Gunnarsdóttir
Guðrún Jónsdóttir
Gylfi Þór Þorsteinsson
Hannes Snorri Helgason
Jón Karl Helgason Fríða B. Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til
allra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug
vegna andláts og
útfarar foreldra okkar,
tengdaforeldra, ömmu
og afa, langömmu og
langafa,
MARGRÉTAR MAGNÚSDÓTTUR OG
GUÐMUNDAR SIGURÞÓRSSONAR.
Erna Bjargey Guðmundsdóttir Rúnar Vernharðsson
Sigurþór Guðmundsson Ólöf Ásta Þorsteinsdóttir
Margrét Rúnarsdóttir
Berglind Rúnarsdóttir Þráinn Árni Baldvinsson
Nanna Björk Rúnarsdóttir Björn Unnar Valsson
Auður Ýr Sigurþórsdóttir Veigar Pálsson
Guðmundur Sigurþórsson
Bryndís Ýr Sigurþórsdóttir
og barnabarnabörn.
Íslenska þjóðin sat með öndina í háls-
inum fyrir framan sjónvarpsskjái sína
þann 3. maí árið 1986.
Fæstir efuðust um að fyrsta framlag
Íslendinga í söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva, Gleðibankinn, myndi bera
sigur úr býtum í keppninni. Gífurlegur
áhugi var á Eurovision-keppninni hér
heima og sást varla hræða á ferli á
meðan á henni stóð. Víða voru haldin
samkvæmi til að fylgjast með sigurgöngu
Gleðibankans.
Forkeppnin var haldin í sjónvarpinu og
bar lag Magnúsar Eiríkssonar
sigur úr býtum en hann
hafði þá um skeið verið
einn vinsælasti dægurlaga-
höfundur landsins. Allt
var gert til að búa
lagið sem glæsi-
legast úr garði.
Þrír vinsælir
söngvarar fluttu
lagið, þau
Helga Möller,
Pálmi Gunn-
arsson og Eiríkur Hauksson, og
kölluðu sig Icy af því tilefni.
Vonbrigði íslensku þjóðar-
innar urðu því gífurleg þegar
lagið lenti í 16. sæti. Lands-
menn voru þó fljótir
að ná sér og áfallið
virðist ekki hafa haft
áhrif á óbilandi trú
Íslendinga á að
sigur í Eurovision
sé rétt handan við
hornið.
ÞETTA GERÐIST 3. MAÍ 1986
Gleðibankinn keppir í Eurovision
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
RANNVEIG ELÍN
SIGURTRYGGVADÓTTIR
frá Kornsá,
lést mánudaginn 28. apríl á Heilbrigðis-
stofnuninni á Blönduósi. Útför hennar fer fram frá Blönduóskirkju
föstudaginn 9. maí kl. 14.00. Blóm og kransar afþökkuð en þeim
sem vildu minnast hennar er bent á Heilbrigðisstofnunina
á Blönduósi.
Jón Tryggvi, Guðmundur Karl, Sigurður Ingi, Kristján og
Ingibjörg, tengdabörn og ömmubörn.
Fyrsti sunnudagur í maí er alþjóðleg-
ur hláturdagur. Hann er haldinn hátíð-
legur í um sjötíu löndum, þar með talið
á Íslandi. Upphafsmaður hláturjóga-
hreyfingarinnar er indverski læknir-
inn dr. Madan Kataria. Hann stofnaði
fyrsta hláturklúbbinn árið 1995 ásamt
konu sinni Madhuri. „Hann trúir því að
það sé hægt að efla frið á milli manna í
heiminum með því að fólk hlæi saman
og gleðjist saman á þessum degi,“ segir
Ásta Valdimarsdóttir hláturjógakennari,
sem hefur veg og vanda af framkvæmd
hláturdagsins hér á landi.
Í Reykjavík er haldið upp á daginn
með hlátursamkomu í Laugardalnum og
hefst hún samkvæmt venju klukkan 13
við gömlu þvottalaugarnar. „Ég byrjaði
með þetta fyrir rúmum tíu árum,“ segir
Ásta. „Síðustu árin höfum við verið inni
í Laugardal. Við byrjuðum á því að hafa
þetta hláturgöngu en svo kom í ljós að
margir sem mæta eiga erfitt með gang
en hafa ákaflega gaman af því að taka
þátt í þessu með okkur þannig að við
höldum núorðið kyrru fyrir og hlæjum
og gerum hláturæfingar.“
Ásta segist vel vita að margir hafi
efasemdir um gildi hláturjógans, það
hafi hún líka haft sjálf í upphafi. „Ég
bjó úti í Noregi um tíma og sá auglýs-
ingu um námskeið í hláturjóga í blaði.
Mér fannst þetta voðalega asnalegt fyrst
og hætti meira að segja við að mæta á
fyrsta námskeiðið sem ég skráði mig
á. Svo heyrði ég viðtal við konuna sem
var með þessi námskeið og það höfðaði
sterkt til mín. Ég hætti sjálf að hlæja
strax sem krakki vegna þess að hinir
krakkarnir hlógu alltaf að því hvernig
ég hló. Hobbýið mitt hefur lengi verið
að syngja og þegar ég fór í söngnám var
mér sagt að ef ég gæti ekki hlegið þá
gæti ég aldrei sungið. Þannig að ég sótti
aftur um, fór á námskeiðið og hef aldrei
séð eftir því.“
Ásta segir hláturjógað sífellt vera að
sækja í sig veðrið og nú séu margir jóga-
kennarar og íþróttakennarar farnir að
benda nemendum sínum á hvað það sé
gott og hollt að hlæja. „Þannig að umræð-
an í þjóðfélaginu er alltaf að aukast.“
Grundvöllurinn í hláturjóganu er að
kalla fram barnslega gleði, að sögn Ástu,
og endurupplifa þá tilfinningu barnsins
að geta hlegið að öllu. „Það finnst mörg-
um það asnalegt að eiga að hlæja eftir
pöntun og eiga erfitt með að trúa hversu
auðvelt það er. Um leið og sú stemning
er komin á að allir ætla sér að hlæja þá
gengur það miklu betur og það hefur
sýnt sig að um leið og þú ferð að hlæja
þá verða alls konar góð viðbrögð í líkam-
anum.“
Ásta segir alla velkomna í Laugardal-
inn á morgun og að undanfarin ár hafi
margir mætt með börnin sín og jafnvel
hunda, sem sé virkilega skemmtilegt. „Ég
hvet fólk eindregið til að koma og kynna
sér þetta,“ segir hún. „Það gæti komið því
verulega á óvart hversu mikla vellíðan
hláturinn vekur.“ fridrikab@frettabladid.is
Hláturinn gleður og
efl ir frið á milli manna
Alþjóðlegi hláturdagurinn er á morgun. Ásta Valdimarsdóttir hláturjógakennari hefur
undanfarin ár boðið fólki að mæta í Laugardalinn og taka þátt í hláturjógasamkomu í tilefni
dagsins og á því verður engin breyting í ár. Samkoman hefst við þvottalaugarnar klukkan 13.
KENNIR FÓLKI AÐ HLÆJA „Ég hætti sjálf að hlæja strax sem krakki vegna þess að hinir
krakkarnir hlógu alltaf að því hvernig ég hló,“ segir Ásta. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Okkar ástkæra systir,
INGA VALGERÐUR JÖRGENSEN
lést 5. mars í heimabæ sínum Frederiksværk
í Danmörku. Útförin fór fram í kyrrþey.
Bent Bjarni Jörgensen
Per Sören Jörgensen
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug vegna andláts og útfarar
STEINUNNAR M. STEPHENSEN.
Guðrún M. Stephensen og fjölskylda.