Fréttablaðið - 03.05.2014, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 03.05.2014, Blaðsíða 18
3. maí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 18 ÞAKIN TJÖLDUM Flóttamenn- irnir gera sér húsnæði úr gömlum auglýsinga- plakötum. Fór að gráta. Þetta var of mikið. Fyrsta kvöldið á Hotel Akl. Það heyrði það enginn. Ég var eini gest-urinn, og eini starfsmað-urinn — eigandinn — var staddur á neðri hæðinni, langt frá herbergi sex. Það sem hafði trufl- að mig svona mikið, fyrsta daginn í Beqaa-dalnum, voru öll börnin sem ég hafði mætt, brotabrot af þeirri milljón flóttamanna frá Sýrlandi, nú í Líbanon, þessu litla fjögurra milljóna manna landi. Og hinum megin við hæðina, í austri, lá Sýr- land; þaðan bárust lágstemmdar drunur inn í herbergið mitt. Þar geisar stríð. Þrjár milljónir manna hafa nú þegar flúið Sýrland síðan borgara- stríðið hófst fyrir þremur árum. Að minnsta kosti fimm milljónir eru á vergangi innan landsins, en fyrir tveimur árum var íbúatalan 22 milljónir. Þetta ástand er ekki í lagi. Og það lagast ekkert. Allir sem ég hitti sögðu að þetta ástand muni vara í tíu, jafnvel fimmtán ár. Eins og borgarastríðið í Líbanon, sem nú er lokið fyrir löngu. Eftir fimmtán ár verður Najwa, litla nýfædda stelpan sem ég hitti með bróður hennar og mömmu fyrsta kvöldið, að fara í mennta- skóla. Staðreyndin er bara sú að hér í Beqaa-dalnum er engin framtíð, engin skólaganga, ekkert. Og pabbinn? Einn af 206 þúsund sem misst hafa lífið, eða kannski einn af 130 þúsund sem hafa horf- ið, mun aldrei sjá eða hitta dóttur sína. Þetta jafngildir íslenskri þjóð, sem hefur dáið, eða gufað upp, í Sýr- landi á þremur árum. Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóð- anna og Rauði krossinn gera lítil kraftaverk á hverjum degi. En það dugar skammt; slíkur er fjöldinn. Beqaa-dalurinn, fæðukista Líb- anons, er allur þakinn tjöldum sýr- lenskra flóttamanna. Einfaldri tré- grind er klambrað saman, síðan er plast strekkt yfir og heft fast — oft gamlar útrunnar risaauglýsingar. Að lokum eru lögð gömul sumar- dekk á þakið sem farg. Framtaks- samir setja smá steypuskán á gólfið til að gera það þrifalegra; moldargólf er bæði skítugt og rakt. Þarna, á fimm komma fimm fer- metrum, býr fólk. Heilu og hálfu fjölskyldurnar sem eiga ekkert nema lífið sjálft, og stundum einar buxur eða tvenn pils til skiptanna. Klósettum er komið upp, báru- járnstunnum með þaki og gati í illa steyptu gólfinu, síðan ganga rör út út úr þeim. Rör sem ná ekki lengra en hundrað sentímetra, þar sem kúkur, piss og ólykt taka vel á móti gestum og gangandi. Lík- lega er á annað hundrað manns um hvert klósett en aldrei sá ég biðröð. Rennandi vatn, ekkert. En tanka þar sem fólk getur sótt vatn til matargerðar og þrifnaðar er að finna með jöfnu millibili í tjaldbúð- unum. En þrátt fyrir allt kom það mér mest á óvart hve fólk var hreinlegt, æðrulaust, kurteist og stolt. Þarna hitti ég kristna, drúsa, alavíta, sjíta og súnnía, trúin var ekki að trufla. Allir lögðust á árar við að hjálpa næsta manni að koma upp tjaldi, bústað, finna mat. Og börnin léku sér í einhvers konar brennó, felu- leik eða stríðsleik. Pang! Dauður. Þarna deyrð þú í þykjustunni. Hér heldurðu því eina sem þú átt: líf- inu. Hér er það öruggt. Hvernig gat þetta gerst í Sýrlandi? Hjá þessari umburðarlyndu, vel- menntuðu fjölmenningarþjóð. Með Damaskus, heillandi heimsborg, sem höfuðborg. Óskiljanlegt. ALLT TIL ANDSKOTANS Í lok mars var tíst um milljónasta flóttamanninn frá Sýrlandi sem varð kveikjan að ferðalagi ljósmyndarans Páls Stefánssonar til Líbanons og Sýrlands. „Að láta gott af sér leiða, vekja athygli á þessum harmleik, og jafnframt styðja við bakið á Rauða krossinum,“ segir Páll, sem hefur starfað sem ljósmyndari í þrjátíu ár og er ritstjóri tímaritsins Iceland Review. Hér deilir hann ferðinni í máli og myndum. PÁLL STEFÁNSSON LJÓSMYNDARI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.