Fréttablaðið - 03.05.2014, Blaðsíða 6
3. maí 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
Það liggur fyrir frá Samgöngustofu að Landeyjahöfn
verður ekkert betri en hún er í dag þótt þar verði gerðar
breytingar og byggðir nýir varnargarðar.
Árni Johnsen, fyrrverandi alþingismaður.
STJÓRNSÝSLA „Stjórnvöld geta ekki
komið í veg fyrir að Persónuvernd
taki ákvörðun í tilteknum málum
sem til meðferðar eru hjá stofnun-
inni með því að svara ekki fyrir-
spurnum hennar eða óskum um
skýringar,“ segir Persónuvernd
sem hefur synjað kröfu mennta-
málaráðuneytisins um endurupp-
töku á máli sem snerti persónu-
leikapróf í framhaldsskólum.
Þann 13. mars síðastliðinn tók
Persónuvernd ákvörðun í máli sem
hófst með erindi eins skólameist-
ara í fjölbrautarskóla sem benti á
að menntamálaráðuneytið hefði
kynnt kröfur um að nemendur sem
lykju framhaldsskólaprófi fengju
prófskírteini með upplýsingum um
almenna þekkingu, leikni og hæfni
viðkomandi. Skólameistarinn taldi
þetta verða erfitt án þess að safna
viðkvæmum persónuupplýsingum.
Persónuvernd sagði lög um
framhaldsskóla ekki fela í sér
heimild til vinnslu persónuupp-
lýsinga um annað en námsmat og
vitnisburð þeirra nemenda.
Menntamálaráðuneytið krafðist
endurupptöku.
„Hér virðist vera um einhvern
misskilning að ræða af hálfu stofn-
unarinnar,“ segir ráðuneytið sem
„gerir alvarlegar athugasemdir“
við þá greiningu sem fram kemur
í forsendum úrskurðar stjórnar
Persónuverndar.
„Ráðuneytið hefur ekki enn
þá gefið út neinar fyrirmyndir
eða eyðublöð um hvað tilgreina
skuli í umsögn framhaldsskóla
um almenna þekkingu, leikni og
hæfni á prófskírteinum nemanda.
Afgreiðsla stjórnar Persónuvernd-
ar byggist að þessu leyti á einhliða
málflutningi skólameistarans.“
Persónuvernd hafnar því að hafa
misskilið málið og ásökunum ráðu-
neytisins vegna þess að ákvörðun
hafi verið tekin án þess að það
kæmi sjónarmiðum sínum að.
Ráðuneytið hafi endurtekið feng-
ið fresti til þess.
- gar
Stjórnvöld geta ekki hindrað ákvarðanir með því að hunsa Persónuvernd:
Hafna endurupptöku skólamáls
ATVINNUMÁL
150 milljónir í ungmenni
Verja á um 150 milljónum króna úr
Atvinnuleysistryggingasjóði til átaks
sem tryggja á 390 námsmönnum, átján
ára og eldri, störf í sumar hjá ríki og
sveitarfélögum.
SVEITARSTJÓRNIR Hjálmar Hjálm-
arsson, bæjarfulltrúi Næst besta
flokksins, lagði til í bæjarráði
Kópavogs að mynd af honum yrði
birt forsíðu heimasíðu bæjarins.
„Kópavogur er eina sveitarfé-
lagið sem birtir mynd af bæj-
arstjóra á forsíðu. Ég tel ekki
eðlilegt að heimasíða bæjarins
sé vettvangur auglýsinga fyrir
frambjóðendur Sjálfstæðisflokks-
ins,“ bókaði Hjálmar.
Ármann Kr. Ólafsson bæjar-
stjóri sagði enga breytingu hafa
verið gerða á formi heimasíðunn-
ar þegar hann tók við sem bæjar-
stjóri.
Tillaga Hjálmars féll á jöfnum
atkvæðum því enginn greiddi
atkvæði með og enginn á móti.
Sjálfur er Hjálmar aðeins
áheyrnarfulltrúi í bæjarráði og
gat því ekki greitt atkvæði. - gar
Óvenjuleg krafa í bæjarráði:
Vill fá mynd af
sér á forsíðuna
HJÁLMAR HJÁLMARSSON Tillaga
áheyrnarfulltrúans fékk ekkert atkvæði.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SAMGÖNGUR Árni Johnsen, fyrr-
verandi alþingismaður og áhuga-
maður um samgöngur milli lands
og Eyja, hélt borgarafund í gær-
kvöld á Kaffi Kró í Vestmannaeyj-
um, um samgöngumál. Á fundinum
kom hann með tillögu að skjótri og
markvissri lausn í samgöngumálum
eyjarskeggja.
„Óvænta tillagan er sú að það eigi
að hætta við smíði nýs skips sem
sigla á milli lands og Eyja, leggja
Landeyjahöfn af og einhenda sér í
það verkefni að gera jarðgöng milli
lands og Eyja á fjórum árum. Það
er hægt,“ sagði Árni í samtali við
Fréttablaðið.
„Þetta er miklu ódýrari kostur,
mun spara milljarða á um þrjátíu
árum og óvissan er úti,“ segir Árni.
„Hvernig heldur þú að það yrði ef
Ártúnsbrekkan yrði lokuð átta tíma
á dag varanlega?“ spyr Árni og telur
þessa hugmynd sína þá einu sem
myndi tryggja ódýrar og varanleg-
ar samgöngur milli lands og Eyja.
„Það liggur fyrir frá Samgöngu-
stofu að Landeyjahöfn verður ekk-
ert betri en hún er í dag þótt þar
verði gerðar breytingar og byggðir
nýir varnargarðar. Mér er sagt hjá
Samgöngustofu að þar beri mönn-
um ekki saman um það hvort eigi að
hanna skipið og smíða það eða smíða
líkan og prufa það við aðstæður sem
eru í Landeyjahöfn. Þetta nýja skip
mun kosta um sex milljarða auk
rekstrarkostnaðar, bæði á ferju og
höfnum. Jarðgöngin munu afskrif-
ast á endanum og kosta um 20 til 25
milljarða samkvæmt mínum heim-
ildum.“
Hugmyndir um göng milli lands
og Eyja eru alls ekki nýjar af nál-
inni og hafa skotið upp kollinum
með vissu millibili síðustu ár. Árni
bar upp þingsályktunartillögu um
göng milli lands Eyja, fyrst árið
1987. Þessi óvænta hugmynd Árna
hefur áður verið viðruð. Í lok árs
2003 var haldinn fundur hjá áhuga-
félagi í Vestmannaeyjum sem kall-
ast Ægisdyr. Þar komu einmitt fram
þær hugmyndir að framlag ríkis-
ins sem fer í rekstur Herjólfs færi í
göngin í staðinn.
Þann 6. apríl 2003 birtist aðsend
grein Árna Johnsen í Morgun-
blaðinu um samgöngur milli lands
og Eyja. Þar sagði hann: „Ég er ekki
í nokkrum vafa um það að næsta
skref í stórbættum samgöngum
milli lands og Eyja verður annað-
hvort ferjuhöfn á Bakkafjöru eða
jarðgöng, en hvort tveggja er fýsi-
legt kostnaðarlega.“
sveinn@frettabladid.is
Árni Johnsen vill
loka Landeyjahöfn
Árni Johnsen, fyrrverandi alþingismaður, vill hætta við smíði nýrrar ferju fyrir
Eyjamenn og loka Landeyjahöfn. „Göng ódýrasti kosturinn í stöðunni,“ segir Árni.
VILL GÖNG Hugmyndir um jarðgöng til Vestmannaeyja eru ekki nýjar af nálinni, en
Árni Johnsen talaði fyrir þeim á fundi í Eyjum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
Hvernig verður stangveiðin í sumar ?
Ársfundur Veiðimálastofnunar 2014
Verður haldinn þriðjudaginn 6. maí 2014
í sal Veiðimálastofnunar 3. hæð á Keldnaholti (Árleyni 22)
Dagskrá:
14:00 Fundur settur
Yfirlit um starfsemi Veiðimálastofnunar
Sigurður Guðjónsson
14:20 Staða Atlantshafslaxins hér á landi og annars staðar
Guðni Guðbergsson
14:40 Kaffihlé
15:10 Framleiðsla í íslenskum ám
Jón S. Ólafsson
15:30 Áhrif hita á smádýr í ferskvatni, rannsóknir í Hengladölum
Elísabet R. Hannesdóttir
Allt áhugafólk velkomið
UMHVERFISMÁL Bæjarráð Hvera-
gerðisbæjar fordæmir að Heil-
brigðiseftirlit Suðurlands(HES)
skuli gefa jákvæða umsögn um
tímabundna undanþágu frá hertum
ákvæðum um styrk brennisteins-
vetnis í andrúmslofti. Undanþág-
an var samþykkt 22. apríl. Á fundi
bæjarráðs Hveragerðisbæjar þann
30. apríl síðastliðinn var umsögnin
rædd og eftirfarandi fært til bókar:
„Bæjarráð Hveragerðisbæjar
furðar sig á því að forsvarsmenn
Orkuveitu Reykjavíkur skuli ekki
fyrir löngu hafa nýtt sér þær lausn-
ir til mengunarvarna sem vitað er
að virka og hafa verið nýttar ann-
ars staðar. Vonandi mun tilrauna-
verkefni um niðurdælingu gefa góða
raun en á meðan eru íbúar austustu
byggða höfuðborgarsvæðisins og
íbúar fyrir austan fjall leiksoppar
tilraunaverkefnis sem heitir Hellis-
heiðarvirkjun en berlega hefur
komið í ljós að þar var farið af stað
meira af kappi en forsjá.“
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjar-
stjóri Hveragerðisbæjar, undrast
málavexti. „Okkur finnst mjög sér-
kennilegt að eftirlitsstofnun, sem
á að gæta þess að aðstæður fólks
og umhverfi sé eins og best verð-
ur á kosið, fari fram með þessum
hætti. Okkur finnst freklega verið
að ganga á rétt íbúa ef undanþága
verður veitt frá reglugerðinni sem
sett var, ekki bara hér heldur einn-
ig á höfuðborgarsvæðinu. Það er
óskiljanlegt að rekstraraðili Orku-
veitunnar, sem er Reykjavíkurborg,
skuli ekki bera hag íbúa sinna betur
fyrir brjósti en þetta.“ - gar
Bæjarráð Hveragerðisbæjar harðort í garð Heilbrigðiseftirlits Suðurlands vegna brennisteinsmengunar:
Íbúar sagðir leiksoppar tilraunaverkefnis
BRENNISTEINN Mengun frá Hellis-
heiðarvirkjun má tímabundið vera yfir
viðmiðunarmörkum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
AFGANISTAN, AP Allt að tvö þúsund
manns er saknað í þorpinu Hobo
Barak í norðaustanverðu Afgan-
istan, en aurskriða féll á þorpið í
gær. Um þrjú hundruð hús grófust
undir skriðunni, en það er um það
bil þriðjungur allra húsa þar.
Þorpið er afar afskekkt og biðu
menn í ofvæni eftir búnaði og
aðstoð við að leita í rústunum að
fólki, sem enn kynni að vera á lífi.
„Við höfum ekki nóg af skófl-
um. Við þurfum fleiri vélar,“ segir
Shal Waliullah Adeeb, ríkisstjóri í
Badakhshan-héraði. - gb
Aurskriða í Afganistan:
Tvö þúsund
manns saknað
SÝRLAND, AP Samkomulag tókst
milli Sýrlandsstjórnar og uppreisn-
armanna um tveggja sólarhringa
vopnahlé í borginni Homs, svo
hundruð uppreisnarmanna gætu
komist óáreittir út úr borginni.
Sýrlandsstjórn nær þar með
völdum í Homs á ný, en þar var
lengi vel höfuðvígi uppreisnarinnar
gegn Bashar al Assad forseta og
stjórn hans.
Stórir hlutar borgarinnar eru
rústir einar eftir hörð átök og
linnulitlar sprengjuárásir stjórnar-
hersins síðustu misserin. - gb
Vopnahlé í Homs:
Uppreisnarher
fer frá Homs
1. Hvað heitir borgarstjórinn í Tor-
onto, sem nú er kominn í meðferð?
2. Hvers konar verksmiðju vill Hval-
fjarðarsveit fá á Grundartanga?
3. Hve mikið fór kostnaðurinn við
gerð Kárahnjúkavirkjunar fram úr
áætlun?
SVÖR:
UPPREISNARMENN Í HOMS Eitt höfuð-
vígi uppreisnarinnar fallið. FRÉTTABLAÐIÐ/APA
ILLUGI GUNNARSSON MENNTAMÁLARÁÐHERRA Menntamálaráðuneytið telur
Persónuvernd hafa tekið ákvörðun í framhaldsskólamáli án þess að kynna sér það
til hlítar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1. Rob Ford. 2. Sólarkísilverksmiðju.
3. 50 prósent.