Fréttablaðið - 03.05.2014, Blaðsíða 4
3. maí 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
1,3 MILLJÓNIR
gesta komu í tónlistarhúsið
Hörpu í fyrra.
milljörðum króna
nam netverslun Ís-
lendinga á síðasta ári.
3
8,4 MILLJARÐA
afgangi skilaði
Reykjavíkurborg
árið 2013.
8,4
13 sinnum
hefur Ókeypis mynda-
sögudagurinn verið
haldinn í versluninni
Nexus.
styrk frá mennta- og menningar-
málaráðuneyti fá Forritarar fram-
tíðarinnar. Skólar og sveitarfélög
geta sótt um styrki úr sjóðnum.
2 milljóna króna 84 þúsund refir
voru drepnir á Íslandi frá 1995 til 2012.
Kostnaðurinn við veiðarnar var um 1,6
milljarðar reiknað á verðlagi ársins í ár.
STJÓRNSÝSLA Stjórnmálaflokkar
og stjórnmálasamtök hafa enn
ekki óskað eftir því við forsætis-
ráðuneytið að fá afrit af kjör-
skrárstofnum vegna komandi
sveitarstjórnarkosninga eins og
tíðkast hefur í áratugi.
Eins og fram hefur komið telur
Persónuvernd vafa leika á að
heimilt sé að afhenda slíkum aðil-
um kjörskrárstofna sem flokkarn-
ir hafa notað í starfi sínu. „Berist
slíkt erindi verður við afgreiðslu
þess af hálfu stjórnvalda tekin
afstaða til álitaefna sem uppi eru
varðandi afhendingu umræddra
gagna,“ segir í svari forsætisráðu-
neytisins við fyrirspurn Frétta-
blaðsins. - gar
Enginn beðið um kjörskrár:
Taka afstöðu ef
beiðnin kemur
SKÓLAMÁL Vegna mikillar andstöðu
á Fáskrúðsfirði hafa bæjaryfirvöld
í Fjarðabyggð hætt við fyrirhugað-
an samrekstur leik- og grunnskóla
bæjarins. Ætlunin var að gera til-
raun í eitt ár á meðan leikskóla-
stjórinn er í leyfi.
Foreldrafélag leikskólans og
starfsmenn beggja skólanna mót-
mæltu, auk þess sem athugasemdir
bárust frá Félagi leikskólakennara
og Félagi stjórnenda í leikskólum.
Spara átti 3,3 milljónir með sam-
rekstrinum. „Mikil andstaða for-
eldra og starfsfólks bæði leik- og
grunnskóla er hins vegar til staðar
og ótti við skerta þjónustu,“ bókaði
fræðslunefnd Fjarðabyggðar. - gar
Vildu spara 3,3 milljónir:
Samrekstur út
úr myndinni
LEIÐRÉTT
Rangt var farið með kostnaðinn við
gerð Kárahnjúkavirkjunar í töflu sem
fylgdi frétt í Fréttablaðinu í gær. Rétt
upphæð var 2,3 milljarðar dollara, eins
og fram kom í texta greinarinnar.
27.04.2014 ➜ 2.05.2013
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
ALÞINGI „Krafan er einföld og hún
er mjög skýr. Hún gengur út á það
að þingsályktunartillagan verði
dregin til baka og það verði boðað
til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort
halda eigi áfram eða ekki,“ sagði
Jón Steindór Valdimarsson, formað-
ur Já Ísland, við afhendingu undir-
skriftarlista til Alþingis í gær. Þar
var skorað á þingmenn að leggja til
hliðar tillögu til þingsályktunar um
að draga til baka umsókn Íslands um
aðild að Evrópusambandinu og boða
til þjóðaratkvæðagreiðslu.
Alls skrifuðu 53.555 kosninga-
bærir einstaklingar undir áskor-
unina, eða 22,1 prósent atkvæðis-
bærra manna. Árið 2010 skoruðu
alls 56.089 manns á forseta Íslands
að synja Icesave-lögunum staðfest-
ingar. Jón Steindór sagði í ávarpi
sínu að söfnunin hefði staðið yfir í
63 daga, sem væri táknrænt þar sem
63 þingmenn sætu á Alþingi.
Jón sagði enn fremur að ekki væri
hægt að gera miklar málamiðlanir
á kröfunni líkt og Gunnar Bragi
Sveinsson utanríkisráðherra hefði
boðað.
Einar K. Guðfinnsson, forseti
Alþingis, veitti áskoruninni viðtöku
ásamt þingflokksformönnum allra
flokka.
„Ég held að það sé öllum lands-
mönnum ljóst að þessi slitatillaga
er mjög slæm og það er gríðarlega
mikil andstaða við hana. Það er best
fyrir alla stjórnmálaflokka að koma
þessu máli upp úr skotgröfum og
leggja það einfaldlega í dóm þjóð-
arinnar í atkvæðagreiðslu,“ sagði
Helgi Hjörvar, þingflokksformað-
ur Samfylkingarinnar, í samtali við
Fréttablaðið.
Jón Steindór sagði aðspurður að
hann teldi fullvíst að undirskriftirn-
ar myndu hafa áhrif á áform ríkis-
stjórnarinnar í þessu máli. Söfnun-
in hefði þegar haft áhrif á meðferð
málsins og tímann sem farið hefði í
afgreiðslu þess. „Þetta hefur síðan
vakið viðbrögð á Austurvelli, það
eru búnir að vera samstöðu- og
mótmælafundir og við höldum því
áfram á morgun ásamt því að það er
kannski nýtt stjórnmálaafl í mótun.
Allt eru þetta afleiðingar af þess-
ari ákvörðun ríkisstjórnarinnar að
leggja fram þessa þingsályktunar-
tillögu með þessum hætti og vinnu-
brögðin í kringum hana.“
Guðlaugur Þór Þórðarson, vara-
formaður þingflokks sjálfstæðis-
manna, sagði mikilvægt að ræða
efnislega um hvað felist í því að
ganga í Evrópusambandið í þessu til-
liti. „Ef við ætlum að sækja um aðild
að Evrópusambandinu er það auðvit-
að gert af því að við viljum ganga
inn í Evrópusambandið.“
Hann sagði öll viðbrögð almenn-
ings, líkt og undirskriftalistann,
koma inn í umræðu um þetta mál hjá
ríkisstjórnarflokkunum. Aðspurð-
ur um hvort næðist að klára þessa
umræðu fyrir þinglok sagði Guð-
laugur Þór það hæpið. „Það er ansi
knappur tími núna en það breytir
því ekki að við verðum að taka þessa
umræðu. En það segir sig sjálft að
það er erfitt að koma því við að klára
þetta núna ef menn ætluðu sér það,“
sagði Guðlaugur.
Benedikt Jóhannesson, formað-
ur félagsins Sjálfstæðir Evrópu-
menn og einn forvígismanna nýs
hægrisinnaðs stjórnmálaafls sem
er í bígerð, sagði mörgum innan
meirihlutans hafa komið á óvart
þessi miklu viðbrögð almennings
við þingsályktunartillögunni. „Mér
hefur heyrst að þeir vilji taka til-
lit til hans, það á náttúrulega ekki
við um alla, en mjög marga,“ sagði
Benedikt.
Gunnar Bragi Sveinsson utan-
ríkisráðherra svaraði ekki ítrekuð-
um óskum Fréttablaðsins um viðtal
vegna málsins í gær. Í samtali við
RÚV sagði hann:
„Ég sjálfur hef ekki trú á að und-
irskriftalistinn sem slíkur geri það
að verkum að tillagan verði dregin
til baka. En ég hef alltaf sagt að ef
það er hægt að finna leið til þess að
hlusta á þá sem hafa skrifað undir
listann eða þá sem hafa tjáð sig um
þetta mál og um leið að ná fram á
einhvern hátt markmiðum stjórn-
valda þá hef ég ekki útilokað breyt-
ingar á málinu. En málið verður ekki
dregið til baka, það er alveg ljóst.“
Hann sagði ennfremur, í samtali
við RÚV: „Ég vil ítreka það að ég er
opinn fyrir hugmyndum ef það er
hægt að ná einhverri lendingu sem
gerir það samt að verkum að ríkis-
stjórnin nær að sjálfsögðu sínu fram
um að sækja ekki um aðild að Evr-
ópusambandinu.“
Ekki náðist í Bjarna Benedikts-
son, fjármálaráðherra og formann
Sjálfstæðisflokksins, vegna málsins
í gær. fanney@frettabladid.is
Telja víst að undirskriftir
muni hafa áhrif á þingmenn
Forsvarsmenn Já Ísland afhentu Alþingi tæplega 54 þúsund undirskriftir gegn þingsályktunartillögu um að
draga til baka aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segist opinn
fyrir hugmyndum svo fremi sem ríkisstjórnin nái því fram að ekki verði sótt um aðild að Evrópusambandinu.
ÁSKORUN Alls skrifuðu 22,1 prósent kosningabærra manna undir áskorunina.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
53.555
kosningabærir Íslendingar
skrifuðu undir áskorun um
að stjórnvöld hætti við að
draga aðildarumsókn Íslands
að ESB til baka.
Vordís Eiríksdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
HELGARVEÐRIÐ Vætusamt á S- og V-landi í dag en síðan má búast við að úrkoma
falli í öllum landshlutum á morgun. Hiti 4-12 stig næstu daga og mildast V-lands.
Fremur hæg SA-læg átt N- og A-lands en heldur stífari með S-ströndinni.
5°
8
m/s
8°
9
m/s
8°
11
m/s
7°
18
m/s
Víða hæg
breyti-
leg , en
5-12m/s
SV-land.
Fremur
hæg N-
lands en
allhvass
við S-
ströndina.
Gildistími korta er um hádegi
19°
22°
14°
15°
17°
11°
10°
12°
12°
23°
14°
19°
22°
22°
22°
13°
13°
15°
5°
9
m/s
6°
6
m/s
7°
5
m/s
8°
9
m/s
8°
5
m/s
9°
5
m/s
2°
7
m/s
10°
9°
7°
7°
7°
7°
5°
5°
8°
5°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
MÁNUDAGUR
Á MORGUN