Fréttablaðið - 03.05.2014, Síða 8
3. maí 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM
GARÐHÚSGÖGNUM
OG SESSUM*
20%
*GILDIR EKKI MEÐ ÖÐRUM TILBOÐUM
TILBOÐIN GILDA AÐEINS FRAM Á SUNNUDAG 4. MAÍ
www.rumfatalagerinn.is
MENNTUN Almenn ánægja er á
meðal foreldra í Reykjanesbæ
með nám og kennslu barna í
grunnskólum bæjarins.
Þetta kemur fram í Skólavog-
inni, mælitæki þar sem safnað er
saman upplýsingum um grunn-
skólastarf.
Reykjanesbær var í fjórða sæti
á þessum mælikvarða af þeim 27
sveitarfélögum sem tóku þátt í
foreldrakönnuninni í ár. - ibs
Foreldrar í Reykjanesbæ:
Ánægja með
kennslu barna
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarráð Hvera-
gerðis fordæmir að Heilbrigðis-
eftirlit Suðurlands gefi Hellisheið-
arvirkjun jákvæða umsögn um
tímabundna undanþágu frá hert-
um ákvæðum um styrk brenni-
steinsvetnis í andrúmslofti.
„Sambærilegar stofnanir á
höfuðborgarsvæðinu hafa ítrekað
mótmælt þeirri mengun sem nú
berst yfir höfuðborgarsvæðið,“
segir bæjarráðið sem kveðst furða
sig á því að forsvarsmenn Orku-
veitu Reykjavíkur skuli ekki fyrir
löngu hafa nýtt sér þær lausnir til
mengunarvarna sem vitað sé að
virki. - gar
Gagnrýna heilbrigðiseftirlit:
Fordæma veitta
undanþágu
HELLISHEIÐARVIRKJUN Reyna á að
draga úr mengun af brennisteinsvetni.
ÚKRAÍNA, AP Uppreisnarmenn í
austanverðri Úkraínu skutu niður
tvær þyrlur stjórnarhersins í gær,
eftir að stjórnarherinn í Úkraínu
hóf fyrstu stórsókn sína gegn
þeim.
Úkraínustjórn fullyrti síðan að
stjórnarherinn hefði fellt eða sært
fjölda uppreisnarmanna. Stjórnin
skýrði einnig frá því að tveir her-
menn úr stjórnarhernum hefðu
látið lífið.
Rússlandsstjórn sagði atburði
gærdagsins greinilegt merki þess
að tveggja vikna gamalt friðar-
samkomulag, sem gert var í Genf,
sé að engu orðið.
Angela Merkel Þýskalands-
kanslari heimsótti Barack Obama
Bandaríkjaforseta í gær, og sögð-
ust þau reiðubúin til þess að herða
enn frekar refsiaðgerðir gegn
Rússum, bæði rússneskum ráða-
mönnum og rússnesku efnahags-
lífi.
Til átaka kom eldsnemma í
gærmorgun skammt frá borginni
Slovjansk, þar sem aðskilnaðar-
sinnar höfðu náð stjórnarbygg-
ingum á sitt vald rétt eins og í
mörgum fleiri borgum í austur-
hluta landsins.
Stjórnarherinn mætti harðri
mótspyrnu frá aðskilnaðarsinnum,
en undir kvöld fullyrti Oleksander
Túrtsjínov Úkraínuforseti að her-
inn væri búinn að ná á sitt vald
öllum þeim eftirlitsstöðvum, sem
uppreisnarmenn höfðu komið sér
upp í kringum borgina. Stjórnar-
hernum hafði samt síðdegis í gær
ekki tekist að ná stjórnarbygg-
ingunum úr höndum aðskilnaðar-
sinna.
„Öryggissveitir okkar eru að
berjast við málaliða erlendra ríkja,
hryðjuverkamenn og glæpamenn,“
sagði Túrtsjínov, sem ítrekað
hefur sakað rússnesk stjórnvöld
um að styðja aðskilnaðarsinna og
kynda undir ólguna í austurhluta
landsins.
Einnig kom til átaka í gær milli
stjórnarhersins og aðskilnaðar-
sinna í hafnarborginni Odessa við
Svartahafið, en til þessa hefur upp-
reisn úkraínskra aðskilnaðarsinna
lítt látið á sér kræla þar í borg. Í
átökunum þar í gær kviknaði í
byggingu með þeim afleiðingum
að rúmlega 30 manns brunnu inni.
Friðarsamningurinn, sem gerð-
ur var í Genf í síðasta mánuði,
snerist um að uppreisnarmenn létu
af hendi þær stjórnarbyggingar,
sem þeir hafa lagt undir sig, gegn
því að Úkraínustjórn léti eiga sig
að ráðast gegn þeim með hervaldi.
Aðskilnaðarsinnar hafa í engu
orðið við þessu, en Rússar hafa
skorað á Úkraínustjórn að beita
ekki hervaldi gegn aðskilnaðar-
sinnum. Á hinn bóginn saka Rúss-
ar Úkraínustjórn um að hafa notað
hryðjuverkamenn úr samtökum
öfgaþjóðernissinna til hernaðar-
aðgerða gegn aðskilnaðarsinnum.
gudsteinn@frettabladid.is
Átökin harðna í Úkraínu
Úkraínustjórn segir herlið sitt hafa fellt fjölda uppreisnarmanna í austanverðu landinu, en aðskilnaðarsinnar
skutu niður tvær þyrlur stjórnarhersins. Tugir manna einnig látnir vegna bruna í kjölfar átaka í hafnarborg-
inni Odessa við Svartahaf. Rússlandsstjórn segir hálfs mánaðar gamalt friðarsamkomulag að engu orðið.
STJÓRNARHERINN Í SLOVJANSK Úkraínskir hermenn í Slovjansk við eina af þeim
eftirlitsstöðvum uppreisnarmanna sem stjórnarherinn náði á sitt vald í gær.
NORDICPHOTOS/AFP
ANGELA MERKEL OG BARACK OBAMA Kanslari Þýskalands heimsótti Bandaríkja-
forseta í Washington í gær, meðal annars til að ræða ástandið í Úkraínu.
Öryggissveitir
okkar eru að berjast við
málaliða erlendra ríkja,
hryðjuverkamenn og
glæpamenn.
Oleksander Túrtsjínov,
forseti Úkraínu,