Fréttablaðið - 03.05.2014, Síða 10
3. maí 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
CLIO DÍSIL SJÁLFSKIPTUR
3,7 L/100 KM*
CO2 ÚTBLÁSTUR 95 GRÖMM
ÞÚ TANKAR SJALDNAR Á RENAULT
FRÍTT Í STÆÐI Á
MIÐBORGARSVÆÐINU
RENAULT CLIO DÍSIL SJÁLFSKIPTUR – VERÐ 3.090.000 KR.
Renault Clio er einn vinsælasti bílIinn á Íslandi. Þegar fallegt útlit, ríkulegur staðalbúnaður, úrval
sparneytinna bensín- og dísilvéla, hagstætt verð og einstök ný „Dual Clutch“ sjálfskipting smellur
saman er ástæðan augljós. Komdu og reynsluaktu nýjum Renault Clio.
www.renault.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
2
3
0
2
FERÐAMENNSKA „Við fögnum því alltaf þegar
úthlutun á sér stað og að það sé verið að leggja
í framkvæmdir bæði til uppbyggingar og til
nýsköpunar,“ segir Helga Árnadóttir, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustu.
Ferðamálastofa hefur úthlutað 244 milljónum
króna til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða.
Fimmtíu verkefni fengu styrk og fór sá hæsti
til Skaftafells, eða tæpar 30 milljónir króna.
Rúmum tíu milljónum var úthlutað til smíði nýs
stiga við Gullfoss og fimmtán milljónum til end-
urbóta við Goðafoss, auk fleiri úthlutana. „Það
er mjög mikilvægt að það komi fram að af þess-
um 244 milljónum eru um sextíu prósent fram-
lag gistináttagjaldsins,“ segir Helga aðspurð.
Hún tekur fram að úthlutunin sé ótengd
áætlun Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, sem ætlar núna á
vor- og sumarmánuðum að leggja til sérstaka
fjármuni til verndar þeim svæðum sem eru
hvað verst sett. Spurð nánar út í úthlutunina og
hvernig fjármununum var dreift á milli verk-
efna, segist Helga ekki þekkja úthlutunarregl-
urnar nákvæmlega. „En við fögnum allri upp-
byggingu og ég treysti þeirri stjórn, sem þarna
situr, fyrir því að hafa farið faglega yfir allar
umsóknir og metið þær út frá eðlilegum for-
sendum.“ - fb
Ferðamálastofa hefur úthlutað 244 milljónum króna til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða:
Meirihlutinn kemur frá gistináttagjaldi
GULLFOSS Rúmum tíu milljónum króna verður varið
í nýjan stiga við Gullfoss. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SVEITARSTJÓRNIR „Óskipulögð
gjaldtaka eins og nú er boðuð
skaðar orðspor Íslands erlend-
is og er nú úr takti við þá ímynd
sem ferðaþjónustuaðilar hafa lagt
mikla vinnu í að kynna,“ segir
bæjarstjórn Norðurþings. Tekið
er undir áhyggjur Markaðsstofu
Norðurlands og sveitarstjórnar
Skútustaðhrepps af fyrirhugaðri
gjaldtöku á ferðamannastöðum í
Skútustaðahreppi. Er þar átt við
Dettifoss og Námaskarð.
„Mikilvægt er að standa saman
um leið sem byggir á áframhald-
andi opnu aðgengi að náttúruperl-
um og sjálfbærri uppbyggingu á
ferðamannastöðum,“ bókaði bæj-
arstjórnin. - gar
Bæjarstjórn andvíg gjaldi:
Ekki í takt við
ímynd landsins
SAMFÉLAGSMÁL Ný stjórn lands-
nefndar UN Women á Íslandi
var kjörin á aðalfundi félagsins í
fyrradag. Guðrún Ögmundsdótt-
ir hagfræðingur var endurkjörin
formaður.
Starfsemi landsnefndarinn-
ar hefur vaxið ört og hafa aldrei
fleiri styrkt samtökin með mán-
aðarlegu framlagi. Framlög til
verkefna erlendis hækkuðu um 40
prósent milli 2012 og 2013.
Fimm stjórnarmenn sitja áfram,
en fimm til viðbótar voru kjörn-
ir í stjórnina: Arna Gerður Bang,
Karen Áslaug Vignisdóttir, Þórður
Snær Júlíusson, Vilborg Ólafsdótt-
ir og Magnús Orri Schram. - fb
Ný stjórn UN Women kjörin:
Guðrún endur-
kjörin formaður
LÖGREGLUMÁL Kveikt var í fjöl-
býlishúsi við Iðufell í Breiðholti
seint á fimmtudagskvöld.
Eigandi íbúðarinnar er Halldór
Gunnarsson í Holti, en dóttir hans
hefur búið þar og var ein í íbúðinni
þegar eldurinn kviknaði. Hún hefur
um árabil þjáðst af geðsjúkdómi.
Í viðtali við Stöð 2 í gær sagð-
ist Halldór ekki lengur geta orða
bundist vegna úrræðaleysis, sem
aðstandendur geðsjúkra standa
frammi fyrir: „Það er þannig að
kerfið virðist ekki geta komið þeim
til bjargar sem bæði glíma við geð-
sjúkdóma og áfengisfíkn,“ segir
Halldór.
Samkvæmt upplýsingum frá
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
var mikill eldur í íbúðinni þegar
reykkafarar mættu á staðinn og
þurftu þeir að hörfa frá vegna hit-
ans. Brunavarnarmálum virðist
hafa verið ábótavant í stigagangin-
um. Það var íbúi á efstu hæð blokk-
arinnar, sem er fjögurra hæða, sem
tilkynnti um svartan reyk á stiga-
ganginum en íbúðin sem kviknaði í
er á annarri hæð. Að sögn slökkvi-
liðsins hefði reykskynjari átt að
vera fyrir löngu farinn í gang í
íbúðinni og á stigaganginum áður
en íbúinn á efstu hæð varð var við
reykinn.
Dóttir Halldórs var í svefnher-
berginu þegar slökkviliðsmenn
komu og björguðu henni út um
glugga. Hún var flutt á slysadeild
ásamt tveimur öðrum íbúum blokk-
arinnar. Annar þeirra var fljótlega
útskrifaður. Samkvæmt upplýsing-
um frá Landspítalanum fékk ekkert
þeirra alvarlega reykeitrun. Eftirlit
þurfti þó að hafa með dóttur Hall-
dórs fram að hádegi í gær, þegar
hún var útskrifuð. - fb
Konu um fertugt var bjargað út um glugga á annarri hæð í fjölbýlishúsi í Breiðholtinu:
Kerfið úrræðalaust gagnvart geðsjúkum
FJÖLBÝLISHÚSIÐ Eldur kviknaði í fjölbýlishúsinu laust fyrir miðnætti á fimmtu-
dagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL