Fréttablaðið - 03.05.2014, Qupperneq 41
atvinna Allar atvinnuauglýsingar vikunnar á visir.isSÖLUFULLTRÚAR Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
Heilsugæslulæknir
við Heilsugæsluna í Grafarvogi
Heilsugæslulæknir
Laust er til umsóknar starf heilsugæslulæknis við Heilsugæsluna
í Grafarvogi frá 1. júní 2014 eða eftir nánara samkomulagi.
Um 100% starf er að ræða, ótímabundið.
Á heilsugæslustöðinni eru starfandi sérfræðingar í heimilis-
lækningum ásamt barnalækni, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum,
sálfræðingi, iðjuþjálfa, félagsráðgjafa og riturum.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef
Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfssvið heilsugæslulækna er m.a.:
• Almennar lækningar
• Heilsuvernd
• Vaktþjónusta
• Kennsla nema
Hæfnikröfur
•Krafist er að umsækjendur hafi sérfræðimenntun
í heimilislækningum.
•Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð.
•Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og reynsla
af teymisvinnu.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra
og viðkomandi stéttarfélags.
Stéttarfélag er Læknafélag Íslands.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð
er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram
kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um læknis-
menntun, læknisstörf, vísinda- og rannsóknarstörf. Gögn sem
ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur,
mannauðsstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka
16, 109 Reykjavík.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og
viðtölum við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
við ráðningu í starfið.
Sækja skal um starfið rafrænt á vefsíðu Heilsugæslunnar
(www.heilsugaeslan.is) undir “laus störf“ eða á Starfatorgi
(www.starfatorg.is).
Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 19.05.2014
Nánari upplýsingar veitir:
Guðmundur Björgvinsson, staðgengill yfirlæknis Heilsugæslunnar
í Grafarvogi - gudmundur.bjorgvinsson@heilsugaeslan.is
s. 585-7600
HH Grafarvogi lækningar
Spönginni 35
112 Reykjavík
Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta - Framþróun
Vélstjóri
Dögun ehf. leitar yfirvélstjóra á rækjuskipið RÖST SK-17.
Leitað er að vélstjóra með a.m.k. VS-III réttindi og með
reynslu til sjós, helst sem yfirvélstjóri. Viðkomandi þarf
að geta hafið störf sem fyrst.
Áhugasamir vinsamlegast sendið umsóknir, með upp-
lýsingum um menntun og fyrri störf, með tölvupósti til:
hjalmar@dogun.is og olafur@dogun.is.
Nánari upplýsingar veita Hjálmar Vilhjálmsson og
Ólafur Óskarsson í síma 588-7666.
Dögun ehf. var stofnað árið 1983. Fyrirtækið stundar rækju-
vinnslu og útgerð, og er með aðsetur á Sauðárkróki.
Kraftmikill sölumaður óskast til starfa
Við leitum að öflugum einstaklingi í sóknarsölu hjá vaxandi fyrirtæki.
Skipulagshæfileikar og metnaður til að ná árangri í starfi eru skilyrði fyrir ráðningu.
Starfssvið
Eiginleikar og hæfniskröfur
Umsóknarfrestur er til 12. maí 2014.
Ert þú sóknarmaður?
Eirberg ehf. er innflutnings- og þjónustufyrirtæki sem
hefur á að skipa fagmenntuðu starfsfólki. Markmið okkar
eru að efla heilsu og auka lífsgæði, auðvelda störf og
daglegt líf, stuðla að vinnuvernd og hagræði.
Stefna ÁTVR er að vera framúrskarandi þjónustufyrirtæki
og þekkt fyrir samfélagslega ábyrgð. Fyrirtækið vill að
vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur þar sem þjónusta
og samskipti einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð.
Starfsmaður í reikningshald
ÁTVR óskar að ráða starfsmann í reikningshald
Helstu verkefni og ábyrgð
• Bókun fjárhagsreikninga
• Afstemmingar og uppgjör
• Miðlun upplýsinga úr fjárhagskerfi
• Umsjón með uppáskriftakerfi
• Samskipti við viðskiptavini og birgja
Hæfnikröfur
• Menntun á sviði viðskiptafræði
• Reynsla af bókhaldi skilyrði
• Þekking á Dynamics NAV bókhaldskerfi kostur
• Góð kunnátta á Excel
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Nákvæm vinnubrögð og skipulagshæfni
• Samstarfs- og samskiptahæfni
• Jákvæðni og rík þjónustulund
Gildi ÁTVR eru LIPURÐ - ÞEKKING - ÁBYRGÐ. Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af þessum gildum.
Nánari upplýsingar veita
Elísabet Sverrisdóttir, elisabet@hagvangur.is
Inga Steinunn Arnardóttir, inga@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 16. maí nk.
Umsóknir óskast fylltar út á heimasíðu Vínbúðanna, vinbudin.is