Fréttablaðið - 03.05.2014, Page 84
3. maí 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 52
„Ég var um síðustu helgi að spila
fjögur verk sem voru öll samin
sérstaklega fyrir mig og byggð á
hljóðum úr strætó og hugmyndum
um strætisvagna, eftir nemend-
ur Atla Ingólfssonar við Listahá-
skólann,“ segir Áshildur Haralds-
dóttir flautuleikari, sem býður í
samstarfi við Strætó upp á hring-
ferð um Vesturbæ Reykjavíkur í
dag klukkan 16. „Fyrir algjöra til-
viljun var ég síðan beðin að spila
annað verk um strætó á morgun og
mér fannst það svo merkilegt að
eftir að hafa spilað á flautu í fjöru-
tíu ár skyldi allt í einu koma vika
þar sem ég er að spila sex lög um
strætó. Þannig að mér fannst lang-
eðlilegast að spila þetta í strætis-
vagni. Strætó lánar bílstjóra og
vagn og þetta verður lítið tónleika-
ferðalag sem fólk getur annað-
hvort setið allan tímann eða hopp-
að inn og út á mismunandi stöðum.
Og það kostar ekkert inn.“
Verkin eru eftir þá Daníel Helga-
son, Hrafnkel Flóka Kaktus Einars-
son, Þorkel Nordal og Örnólf Eldon
Þórsson. Auk þeirra leikur Áshild-
ur eigið verk, „Hugljómun í leið 1“,
og „Viva Strætó“ eftir Skúla Hall-
dórsson, fyrrverandi skrifstofu-
stjóra Strætós sem hefði orðið
hundrað ára í ár. „Skúli var líka
tónskáld og formaður STEFs, var
með píanó á skrifstofunni sinni
hjá Strætó og greip í það þegar
andinn kom yfir hann,“ útskýrir
Áshildur. „Og á sunnudaginn eftir
viku munum við minnast hans með
minningartónleikum í Hannesar-
holti þar sem auk mína koma fram
Ágúst Ólafsson söngvari og Eva
Þyrí Hilmarsdóttir píanóleikari
og við flytjum eingöngu lög eftir
Skúla.“ fridrikab@frettabladid.is
Leikur sex
tónverk um
strætisvagna
Nýstárlegir tónleikar fara fram um borð í strætisvagni
í dag. Þar leikur Áshildur Haraldsdóttir fl autuleikari
sex verk sem öll tengjast strætó og hljóðheimi hans.
ÁSHILDUR HARALDSDÓTTIR Býður fólki í tónleikaferðalag um Vesturbæinn í
strætó. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Tónleikagestir eru boðnir um borð í strætó og stoppað er á ólíkum stöðum
þar sem hvert verk er leikið við nýjar aðstæður. Lagt verður af stað
klukkan 16 frá Lækjargötu við Miðbæjarskóla, gegnt Vonarstrætinu, og
haldið af stað um Vesturbæ Reykjavíkur. Einnig verður hægt að hoppa um
borð á eftirfarandi stöðum:
Lagt verður af stað klukkan 16 í dag frá Lækjargötu, gegnt Vonarstræti.
1. stopp á Hofsvallagötu.
2. stopp á Framnesvegi við Vesturbæjarskóla.
3. stopp á Vesturgötu við enda Bakkastígs.
4. stopp við Túngötu, enda Ægisgötu.
Endastöð á Lækjargötu.
Tilhögun ferðalagsins
VATNSMÝRARHÁTÍÐ
rræna hús ið sunnudagn 4 . ma í kl . 12–16 :
– T ikuð náúru ldss, börnum og v ísdum
Skomkaður
sögustu í Þjóðmj afni
FUGLASKOÐUNvísdiÚ
ikir
Tónltatriði
Lokav iðburður
Bn
nghát íð
Sápukúlur og krít
sirkusatriði
12.00–13.00 Finnska barna-teiknimyndin Sju bröder sýnd með enskum texta í salnum.
12.30–13.30 Fisk í dag með Sveini Kjartanssyni og fleirum við Gróðurhúsið.
12.00–16.00 Hjólafærni frá Dr. Bæk á malarplani við Norræna húsið
12.00–16.00 Skottmarkaður á bílastæði Norræna hússins. Geymt en ekki gleymt dót kemst í nýjar hendur.
12.00–16.00 Vísindasmiðja Háskóla Íslands í Háskólabíói.
12.00–17.00 Kaffiveitingar til sölu á AALTO BISTRO – nýr veitingastaður í Norræna húsinu sem opnar
formlega 10. maí n.k.
12.00–17.00 Bókasafn Norræna hússins býður upp á örbókamarkað, sögustundir og sýningu á verkum
leikskólabarna í Barnahelli (Barnabókasafnið).
12.30–13.00 Klarínettukórinn treður upp í Gróðurhúsinu.
13.00–13.30 Leiðsögn um friðlandið með Fuglafræðingi. Hefst á tröppum Norræna hússins.
13.30–14.30 Djasstónlist við Gróðurhúsið
13.00–14.30 Sirkuskúnstir með Sirkus Íslands, börnin fá að prófa og læra sirkusatriði á grasflötinni við Norræna húsið.
14.00 Álfasögur í Silfurhelli á Þjóðminajsafni Íslands.
14.00–15.00 Upplestar og píanótónlistin úr Amélie kvikmyndinni. Ungskáld lesa úr verkum sínum og ungur
píanóleikari spilar píanótónlist úr Amélie og fleiri verk. Dagskráin fer fram í salnum.
14.30–15.00 Sirkus Íslands með sirkusatriði á grasflöt Norræna hússins.
15.00–16.00 Getur tedrykkja hjálpað okkur að skilja loftslagsbreytingar?
Já, og getur þú aðstoðað okkur? Fer fram við Gróðurhúsið.
15.00–15.30 Dansgjörningur frá Finnlandi í sýningarsal Norræna hússins í sýningu Lista án landamæra.
15.00–16.00 Brasstónlist í Gróðurhúsinu.
Norræna húsið Sturlugata 5 101 Reykjavík Tel. 5517030 www.norraenahusid.is
Vonarstræti
Túngata
Æ
gi
sg
at
a
VesturgataFram
nesve
gur
H
ringbraut
Ho
fsv
alla
gat
a
MENNING