Fréttablaðið - 03.05.2014, Side 88

Fréttablaðið - 03.05.2014, Side 88
3. maí 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 56 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? LAUGARDAGUR 03. MAÍ 2014 Tónleikar 14.00 Sunnudagaskólinn syngur. Litháíski sunndagaskólinn kemur fram undir stjórn Renötu Pratusyte í Borgarbókasafni, Tryggvagötu 15. 16.00 Kirkjukór Lágafellssóknar verður með dagskrá um Halldór Laxness í tali og tónum í Akureyrarkirkju. Einsöngvarar verða Margrét Árnadóttir og Ívar Helgason og er aðgangur ókeypis. 21.00 Straumur heldur sinn fyrsta sumarfögnuð í samstarfi við Joe & the Juice og S.U.M.A.R.(Samtök um matseld annarra ríkja) á Kexi Hosteli. Kanadíska hljómsveit Phédre kemur þar fram ásamt samlanda sínum Ken Park og hinum íslensku Nolo. Aðgangur er ókeypis. Fræðsla 12.00 Hvað býr í Heimunum og Vogunum? Bókmenntaganga fyrir börn og fjöl- skyldur þeirra. Gangan leggur upp frá Sólheimasafni, Sólheimum 27. 14.00 Í tilefni af frímerkjasýningunni Merkileg merki í Gerðubergi er börnum og fylgdarmönnum þeirra boðið að koma og kynnast leyndardómum frímerkja í spennandi listsmiðju. 14.00 Náttúran vaknar. Náttúruganga um Laugardalinn. Gangan leggur upp frá Sólheimasafni, Sólheimum 27. Sýningar 15.00 Opnun sýningar á álfabókum Guðlaugs Arasonar í Borgarbókasafni, Tryggvagötu 15. 15.00 List án landamæra í Norræna húsinu. Sýningin er sett saman úr mörgum listgreinum og er samvinnuverkefni finnskra og íslenskra listamanna. Innsetning Karls og Rósu, Völundarhús, er hjarta sýningarinnar. Danshópurinn Kaaos Comp- any mun verða með gjörning á opnuninni. Þar dansa saman fatlaðir og ófatlaðir dansarar. 16.00 Afmæli Pandóru. Látbragðsleikur Lauru Roure í Borgarbókasafni, Tryggva- götu 15. 20.00 Ragnheiður Gestsdóttir opnar sýningu á nýjum verkum í Kunstschlager við Rauðarárstíg. Sýningin ber titilinn Mikli hvellur - algjör smellur, en þar vísar Ragnheiður í hugmyndir manna um uppruna heimsins eins og við þekkjum hann. Öll eiga verkin á sýningunni það sameiginlegt að vísa í ákveðið sjónar- horn eða hugmyndafræði sem mennirnir meira og minna hafa sameinast um á ákveðnum tímabilum sögunnar. Kvikmyndir 16.00 Stuttmyndapakki fyrir börn á öllum aldri. Um er að ræða tólf teiknimynd- ir frá átta löndum. Tíu myndir eru án tals, ein með örlitlu ensku tali og ein á spænsku með íslenskum texta. Dagskráin er alls 84 mín og hentar öllum aldurs- hópum. Á svæðinu verða kúrudýr þeirra Andra og Eddu á vappinu í Bíó Paradís til að heilsa upp á börnin. Bókmenntir 15.00 Sýningin Álfabækur verður opnuð í Borgarbókasafni, Tryggvagötu 15, og er það Guðlaugur Arason bóklistamaður sem er höfundur verkanna á sýning- unni. Guðlaugur er þekktur fyrir ritstörf sín en að þessu sinni notar hann bækur annarra höfunda. Sýningin ber nafn með rentu því þar gefur á að líta örsmáar bækur sem nánast þarf stækkunargler til að skoða. Boðið verður upp á kaffi og álfakleinur. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is. „Við ákváðum með mjög stutt- um fyrirvara að halda þessa tón- leika,“ segir Lovísa Elísabet Sig- rúnardóttir um tónleika sína á Café Rosenberg í kvöld. „Það var bara akkúrat laust þetta kvöld og við erum að fara út að spila á næstunni þannig að þetta er svona ágætis upp- hitun fyrir það,“ segir Lovísa sem kemur vanalega fram undir sviðs nafninu Lay Low. „Það er langt síðan ég hélt svona alvöru tónleika í Reykjavík, ég hef svona verið að taka eitt og eitt lag hér og þar,“ segir Lovísa sem kemur fram ásamt hljómsveit sinni. „Það er skemmtilegt fyrir okkur að hittast og spila saman, fólk veit vanalega ekki hvort ég muni koma fram ein eða með hljómsveit,“ segir Lovísa og hlær. „En yfirleitt er hljómsveitin með.“ Lovísa flutti síðasta haust í Ölfus sem er staðsett á milli Hveragerðis og Þorlákshafnar ásamt sambýliskonu sinni. „Mér hefur alltaf liðið vel í rólegheitum og við kunnum mjög vel við okkur hérna,“ segir Lov- ísa. „Við fílum að vera með mikið pláss, ég er með svo mikið af tón- listardóti og trommusett sem tekur mikið pláss. Þá er svo erfitt að búa í litlu rými í bænum þegar maður getur fengið stærra rými á sama verði,“ segir Lovísa. Tónlistarkonan segist vera að koma sér í gírinn fyrir vorið og sumarið en tónlistarmyndband við lagið hennar Our Convers- ations kom út á dögunum. „Við erum svona að vekja athygli á því og bara hafa gaman, það er alltaf gaman að spila.“ segir Lovísa. Eins og áður hefur komið fram þá eru tónleikarnir á Rosenberg klukkan hálftíu og hvetur Lov- ísa áhugasama um að tryggja sér miða á midi.is. „Þetta er ekk- ert rosalega stór staður, annars getur fólk sem kaupir ekki miða fyrir fram komið yfir og kíkt á stöðuna og séð hvort það sé ekki eins og einn laus stóll.“ Rólegheit á Café Rosenberg Tónlistarkonan Lay Low blæs til tónleika á Café Rosenberg í kvöld en hún er að setja sig í gírinn fyrir vorið og sumarið þar sem hún mun spila á Bretlandseyjum. Nýtt tónlistarmyndband kom út á dögunum. GIGG Í KVÖLD Lay Low kemur fram á Café Rosenberg í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Mér hefur alltaf liðið vel í rólegheitum og við kunnum mjög vel við okkur hérna.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.