Fréttablaðið - 03.05.2014, Qupperneq 89
LAUGARDAGUR 3. maí 2014 | MENNING | 57
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér
nánari upplýsingar um prófið og dæmi um
prófspurningar sem finna má á heimasíðu
Læknadeildar, www.laeknadeild.hi.is
HEILBRIGÐISVÍSINDASVIÐ
Inntökupróf í Læknadeild HÍ
Læknisfræði og sjúkraþjálfun
Inntökupróf í Læknadeild Háskóla Íslands fyrir nám í læknisfræði og sjúkraþjálfun
verður haldið í Reykjavík miðvikudaginn 11. og fimmtudaginn 12. júní 2014.
Nánari upplýsingar verða sendar próftakendum eftir að skráningu er lokið.
Þátttakendur þurfa að skrá sig sérstaklega í inntökuprófið og er skráning opin
til og með 20. maí 2014. Skráning fer fram á netinu, www.laeknadeild.hi.is
Próftökugjald er 20.000 kr.
Þegar inntökuprófið er þreytt skal nemandinn hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sam-
bærilegu prófi og skilað inn staðfestingu því til sönnunar. Umsóknin telst því ekki gild
fyrr en staðfest afrit af stúdentsprófsskírteini eða rafrænt stúdentsprófsskírteini úr Innu
hefur borist skrifstofu Nemendaskrár Háskóla Íslands, Háskólatorgi, Sæmundargötu 4,
101 Reykjavík.
Skráning í inntökuprófið getur farið fram þótt nemandi hafi ekki lokið stúdentsprófi en
þá skal skila staðfestingu til Nemendaskrár Háskóla Íslands um að stúdentsprófi verði
lokið áður en inntökupróf hefst. Staðfesting þarf að berast eigi síðar en 20. maí 2014.
Inntökuprófið er eitt próf sem tekur tvo
daga, með þremur tveggja tíma próflotum
hvorn daginn, eða 12 klst. alls. Niðurstaða
prófsins birtist í einni einkunn sem verður
reiknuð með tveimur aukastöfum. Reiknað
er með að niðurstaða liggi fyrir ekki síðar
en um miðjan júlí.
Árið 2014 fá 48 nemendur í læknisfræði og
35 í sjúkraþjálfun rétt til náms í Læknadeild
Háskóla Íslands og skulu þeir hafa skráð sig
hjá Nemendaskrá fyrir 1. ágúst. Þeir sem ekki
öðlast rétt til náms í Læknadeild, eiga þess
kost að skrá sig, innan sömu tímamarka, í
aðrar deildir gegn greiðslu skrásetningar-
gjalds skv. reglum Háskóla Íslands.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
SUNNUDAGUR 04. MAÍ 2014
Tónleikar
16.00 Síðustu tónleikarnir í tónleikaröð-
inni Klassík í Salnum. Þá munu sópran-
söngkonan Sigrún Pálmadóttir og píanó-
leikarinn Sibylle Wagner flytja efnisskrá
með sönglögum eftir Clöru Schumann og
canzonettum eftir Joseph Haydn.
17.00 Tónleikarnir Enn syngur Vornóttin
verða fluttir í Bústaðakirkju. Fram koma
Söngfuglar og Glæðurnar. Flutt verða létt
og skemmtileg sönglög. Stjórnandi og
undirleikari er Ásta Haraldsdóttir. Fiðlu-
leikari er Eva Hauksdóttir. Aðgangseyrir
er 1.500 krónur en ókeypis fyrir börn 12
ára og yngri.
17.00 Vortónleikar Kammerkór Mos-
fellsbæjar í Háteigskirkju. Flutt verður
fjölbreytt tónlist eftir afar ólík tónskáld
frá ýmsum tímum, þar má nefna hið
alþekkta lag Sigur Rósar, Vöku, í útsetn-
ingu kórstjórans, Símonar H. Ívarssonar.
Aðgangseyrir er 2.000 krónur.
17.00 Listvinafélag Hallgrímskirkju stend-
ur fyrir tónleikum í Hallgrímskirkju undir yfirskriftinni Að Jesú æðsta ein móðir
glæsta þar sem sönghópurinn Hljómeyki flytur verk eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson
ásamt hljóðfæraleikurum og Hildigunni Einarsdóttur mezzosópran. Stjórnandi er
Marta Guðrún Halldórsdóttir.
Listasmiðja
14.00 Steinamálun í Ársafni undir leiðsögn Auðar Ingu Ingvarsdóttur.
Fræðsla
11.00 Fjölskrúðugt fuglalífið í Laugardal skoðað á göngu um garðinn í samstarfi
við Fuglavernd. Um leiðsögn sjá Hannes Þór Hafsteinsson náttúrufræðingur og
Aron Leví Beck fuglarannsóknarmaður. Gangan hefst við aðalinngang garðsins.
Sýningar
14.00 Afmæli Pandóru. Látbragðsleikur Lauru Roure í Borgarbókasafni, Tryggva-
götu 15.
Kvikmyndir
20.00 BDSM á Íslandi, í samvinnu við Bíó Paradís, standa fyrir lítilli kvikmyndahá-
tíð eða BDSM-bíókvöldi. Sýndar verða 6 stuttmyndir sem fjalla um BDSM, erótískt
blæti, draumóra, og transfólk. Í raun mætti segja að þær gefi innsýn í jaðarmenn-
ingu óhefðbundins kynlífs og kynvitundar. Þetta er í fyrsta skipti sem BDSM á
Íslandi heldur slíkt bíókvöld en Fetish Film Festival bauð félaginu tækifæri til að
sýna nokkrar myndir frá hátíðinni.
Listahátíð
12.00 Vatnsmýrarhátíðin er haldin að frumkvæði Norræna hússins í samstarfi við
Háskóla Íslands og Þjóðminjasafnið. Flest atriði hátíðarinnar fara fram utandyra
við Norræna húsið. Skóflur og fötur á staðnum til að setja í sandkassa, krítar og
sápukúlur og svo er tilvalið fyrir gesti að taka með sér flugdreka því við Norræna
húsið blæs hann oft kröftulega. Dr. Bæk verður á staðnum til að yfirfara hjólin og
athuga hvort þau séu nú ekki tilbúin í sumarið.
12.00 Skottmarkaður á bílastæði Norræna hússins. Geymt en ekki gleymt dót
kemst í nýjar hendur. Viðburðurinn er hluti af dagskrá Vatnsmýrarhátíðarinnar.
13.00 Sirkuskúnstir með Sirkus Íslands, börnin fá að prófa og læra sirkusatriði á
grasflötinni við Norræna húsið. Viðburðurinn er hluti af dagskrá Vatnsmýrarhá-
tíðarinnar.
Bókmenntir
15.00 Örleifur og hvalurinn. Ljóðið um Örleif og hvalinn eftir Julian Tuwin verður
flutt á pólsku og íslensku kl. 15.00 í Borgarbókasafni, Tryggvagötu 15.
16.00 Dagskrá í MÍR-salnum, Hverfisgötu 105, þar sem kynnt verður glæný útgáfa á
þýðingum Áslaugar Agnarsdóttur, sviðstjóra við Landsbókasafnið, Háskólabókasafn,
á skáldsögum Lév Tolstojs sem byggja að miklu leyti á minningum frá uppvaxtar-
árum skáldsins. Áslaug flytur skýringar og les upp ásamt Hjalta Rögnvaldssyni
leikara. Aðgangur öllum heimill.
Dansleikir
20.00 Dansað verður i félagsheimili eldri borgara i Stangarhyl 4 í Reykjavík. Dans-
hljómsveitin Klassík leikur fyrir dansi. Aðgangseyrir er 1.500 kr fyrir félagsmenn en
1.800 fyrir gesti. Allir velkomnir.
Listamannaspjall
15.00 Björn Roth, sýningarstjóri, sonur og samstarfsmaður Dieters Roth, spjallar
við gesti um sýninguna Hnallþóra í sólinni í Hafnarborg í Hafnarfirði. Hnallþóra í
sólinni er sýning á úrvali prent- og bókverka eftir Dieter Roth.
Dans
15.00 Dansgjörningur frá Finnlandi í sýningarsal Norræna hússins í sýningu Lista
án landamæra.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni
á visir.is.
Save the Children á Íslandi