Fréttablaðið - 06.05.2014, Side 1
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Þriðjudagur
12
SINFÓ, ASHKENAZY OG ÓLAFUR KJARTAN
Vladimir Ashkenazy stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands á tón-
leikum í Eldborg, Hörpu, á fimmtudag, 8. maí, kl. 19.30. Barí-
tónsöngvarann Ólafur Kjartan Sigurðarson túlkar magnaðan
ljóðaflokk, Söngvar og dansar dauðans eftir Mússorgskíj.
Á efnisskránni er einnig 1. sinfónía Brahms og Dauðraeyjan
eftir Rakhmanínov.
H rönn Harðardóttir, 30 ára við-skiptafræðinemi, sýndi fádæma dugnað og seiglu í sjónvarpsþátt-unum Biggest Loser Ísland á dögunum og endaði í þriðja sæti keppninnar. Hún missti alls 49,6 kíló í keppninni. Á tímabili virtist sem eitthvað stæði í vegi fyrir þyngdartapi Hrannar og lék grunur á að um fæðuóþol væri að ræða. En fæðu óþol er þekkt fyrir að geta tafið fyrir þyngdartapi. Allir keppendur geng-ust í kjölfarið á þessu undir fæðuóþols-próf frá Food Detective.
ÓÞOL FYRIR 30 FÆÐUTEGUNDUMEftir mælinguna kom í ljós að margir keppendur höfðu óþol fyrir ákveðnum
fæðutegundum en Hrönn kom lang-verst út og mældist með óþol fyrir 30
fæðutegundum. Í kjölfarið breytti hún
mataræðinu og byrjaði vigtin fljótlega
að gefa sig, sem endaði með þessum líka frábæra árangri!
Í SKÝJUNUM MEÐ ÁRANGURINNÞegar keppninni var lokið tók Hrönn aftur fæðuóþolsprófið og kom í ljós að
líkaminn hafði sigrast að nokkru leyti á
vandamálinu. Þó reyndust átta fæðuteg-
undir enn valda talsverðum einkennuog hefur Hrön þ
LÉTTIST UM 49,6 KÍLÓGENGUR VEL KYNNIR Food Detective-fæðuóþolsprófið sem meðal annars
hjálpaði Hrönn Harðardóttur, einum keppanda Biggest Loser Ísland, að halda
áfram að léttast eftir að hún tók út úr mataræðinu þær fæðutegundir sem hún
mældist með óþol fyrir og gátu mögulega staðið í vegi fyrir frekara þyngdar-
tapi hjá henni.
Hundaskóli Heimsenda Hunda Grunn-Hlýðni byrjar 7 maí. Fyrir alla hunda frá 4 mánaða aldri Uppl í sima 897 1992
Nýtt námskeið hefst 26. september
Nýtt námskeið hefst 17. apríl
Næs a námskeið hefst 12. júní
Næsta námskeið hefst 2. a ríl 2014
Næsta námskeið hefst 7 .mai 2014
ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2014
BÍLAR
2 SÉRBLÖÐ
Bílar | Fólk
Sími: 512 5000
6. maí 2014
105. tölublað 14. árgangur
LÍFIÐ Róbert Elmarsson og Guðjón
Geir Geirsson slá í gegn með fata-
hönnun sinni Inklaw. 30
SPORT Keflvíkingurinn Hörður
Sveinsson kólnaði ekkert niður þrátt
fyrir kaldan vetur. 26
FLJÓTLEGT OG ÞÆGILEGT
ht.is
ÞVOTTAVÉLAR
Álfasalan
hefst á
morgun!
SKOÐUN Teitur Guðmundsson læknir
veltir fyrir sér merkingu orða og
skrifar um baktal og þursabit. 13
10-50%
AFSLÁTTUR
ht.is
WHIRLPOOL
DAGAR
TÓNLIST Fyrra undanúrslitakvöld
Eurovision fer fram í Kaupmanna-
höfn í kvöld og er framlag Íslend-
inga, hljómsveitin Pollapönk,
númer fimm í röðinni. Tíu lönd
komast áfram í úrslit sem verða
laugardagskvöldið 10. maí.
„Stemningin er fín. Við erum
aðeins búnir að fínpússa atriðið og
það er smá viðbót sem er skemmti-
leg,“ segir Valgeir Magnússon
sem er með Eurovision-hópnum
í Kaupmannahöfn. General prufa
var haldin í gærkvöldi og nóg
hefur verið að gera hjá Pollapönk-
urum í alls kyns teitum og
á blaðamannafund-
um. Valgeir segir
að Pollapönkar-
ar ætli að nota
daginn í dag til
að hlaða batt-
eríin. „Þetta
leiðir sig ein-
hvern veginn sjálft áfram og sá
tími sem er óráðstafaður er mest
notaður til að hvíla sig, hlusta á
tónlist og eitthvað slíkt.“
Með blaðinu í
dag fylgir kosn-
ingaseðill þar
sem lesend -
ur geta spáð um
hvaða lönd komast
áfram.
- lkg / sjá síðu 24
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva hefst með fyrri úrslitakeppni:
Atriðið fínpússað með viðbót
Bolungarvík 10° A 6
Akureyri 9° A 6
Egilsstaðir 9° SSA 7
Kirkjubæjarkl. 10° SA 7
Reykjavík 12° A 7
VÆTA SA-TIL Í dag verða austan 5-10
m/s og dálítil væta einkum SA-til en
yfirleitt þurrt fyrir norðan. Hiti 5-15 stig,
mildast inn til landsins NV-til. 4
STJÓRNMÁL Frambjóðendur í efstu
sætum á fyrri lista Framsókn-
arflokksins til komandi borgar-
stjórnar kosninga voru beðnir um
að skrifa undir sjálfsskuldar ábyrgð
fyrir lántöku í tengslum við kosn-
ingabaráttuna.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins var sjálfsskuldar ábyrgðin
mismikil eftir sætum en ætlast var
til þess að oddviti listans gengist
undir hæstu ábyrgðina eða um átta
og hálfa milljón króna. Annað sæti
listans átti að gangast undir ábyrgð
upp á fimm og hálfa milljón, það
þriðja upp á þrjár og hálfa milljón
og næstu tvö sæti upp á eina og
hálfa milljón króna hvort. Beiðni
um sjálfsskuldarábyrgð kom fram
á fundi frambjóðenda og kjör-
nefndar Framsóknarflokksins
fljótlega eftir að raðað var á lista
en var slegin út af borðinu af fram-
bjóðendum. Enginn í efstu sætum
listans var tilbúinn að skrifa undir
sjálfsskuldarábyrgð.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins stóð fjárhagur framboðs
Framsóknarflokksins veikum
fótum. Guðrún Bryndís Karlsdóttir,
sem sat á lista Framsóknar í Reykja-
vík, segir að margar hug myndir
hafi verið uppi um fjármögnun
framboðsins. „Ein þeirra leiða var
að fjársterkir einstaklingar myndu
styrkja framboðið um meira en 400
þúsund en styrkirnir yrðu skráðir
sem kaup á happdrættismiðum.“
Fréttablaðið hefur ekki heimildir
fyrir því að þessar hugmyndir
hafi orðið að veruleika. Samkvæmt
lögum um fjármál stjórnmálasam-
taka er flokkum óheimilt að taka á
móti fjárframlögum yfir 400 þús-
und krónum.
Þorsteinn Magnússon, gjald-
keri kjördæmaráðs Framsóknar-
flokksins í Reykjavík, segist ekki
vita nákvæmlega hvaða fjár öfl-
unar hugmyndir hafi verið ræddar.
Hann fullyrðir hins vegar að ekkert
happdrætti hafi verið haldið og að
öll framlög sem þegin hafi verið
séu vel innan þeirra marka sem lög
kveða á um.
Þórir Ingþórsson, formaður kjör-
dæmaráðsins, vill ekki staðfesta að
frambjóðendur hafi verið beðnir um
að ganga í fjárhagslegar ábyrgðir
fyrir framboðið. „Ég get staðfest
að kosningabaráttan er ekki fjár-
mögnuð með lántöku,“ segir hann.
Samkvæmt skoðanakönnunum síð-
astliðinna vikna nær Framsókn-
arflokkurinn ekki inn manni í
borgar stjórn en flokkurinn þurrk-
aðist út úr borgarstjórn í síðustu
kosningum. snaeros@frettabladid.is
Frambjóðendur beðnir að
undirrita sjálfsskuldarábyrgð
Mörgum hugmyndum var velt upp til að fjármagna framboð Framsóknarflokksins í borginni áður en listinn var
sameinaður flugvallarvinum. Frambjóðendur í efstu sætum voru ekki tilbúnir að skuldsetja sig fyrir listann.
Ég get staðfest að
kosningabaráttan er ekki
fjármögnuð með lántöku.
Þórir Ingþórsson, formaður
kjördæmisráðs Framsóknar í Reykjavík.
TÍU TÍMAR Á SJÓ Theódór Ólafsson kom með rúman skammt að landi í Hafnarfirði, fyrsta dag strandveiða. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Úrgangur eins og
frá stórri borg
Formaður N-Atlantshafslaxasjóðsins
segir fyrirhugaðar breytingar á lögum
um fiskeldi skaða lífríkið og ímynd
Íslands. 10
Fær ólíklega hljómgrunn Mis-
heppnaðar tilraunir hafa verið gerðar
með framboð kristilegra flokka hér
á landi. 2
Forsetafrú sökuð um hótanir
Leiðtogi Boko Haram hefur viður-
kennt að samtökin standi á bak við
rán á hundruðum stúlkna í Nígeríu
um miðjan apríl. 6
Aðstoðarforstjóri ráðinn Auka á
hlutafé 365 um nærri milljarð króna
og nýir fjárfestar á leið í eigenda-
hópinn. Sævar Freyr Þráinsson nýr
aðstoðarforstjóri. 8
SJÁVARÚTVEGUR „Það er alveg
dásamlegt að fá að djöflast í
þessu. Strandveiðin er alveg frá-
bær,“ segir Theódór Ólafsson
sjómaður. Hann landaði í Hafnar-
fjarðarhöfn í gær eftir vel heppn-
aðan veiðidag.
„Ég var með 790 kíló, sem er
aðeins yfir skammtinum. Það
getur verið erfitt að átta sig á
þessu upp á kíló,“ segir Theódór,
sem hefur stundað strandveiðar
á hverju sumri frá því þær voru
settar á. Hann veiðir einnig grá-
sleppu á vorin.
„Ég lagði af stað klukkan fimm
í nótt og var í landi klukkan þrjú.
Hann gaf sig í morgunsárið og var
tregari eftir hádegi. Það er þó víða
fiskur hérna á flóanum.“ Hann
segir veðrið í Faxaflóanum hafa
verið æðislegt og segist ætla að
rífa sig af stað aftur nú í morgun-
sárið. - skó
Með skammtinn að landi:
„Dásamlegt að
djöflast í þessu“