Fréttablaðið - 06.05.2014, Page 24

Fréttablaðið - 06.05.2014, Page 24
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 6 6. maí 2014 ÞRIÐJUDAGUR 2,01 DÍSILVÉL, MEÐ FORÞJÖPPU 177 HESTÖFL Fjórhjóladrif Eyðsla 5,9 l/100 km í bl. akstri Mengun 155 g/km CO2 Hröðun 8,9 sek. Hámarkshraði 210 km/klst. Verð 7.120.000 kr. Umboð Hekla VOLKSWAGEN PASSAT ALLTRACK VOLKSWAGEN PASSAT ALLTRACK Finnur Thorlacius reynsluekur V olkswagen Passat á sér langa sögu og hefur verið í boði í 40 ár en þessi gerð hans á sér þó öllu styttri sögu, eða frá árinu 2010. Hér er á ferðinni bíll sem að flestu leyti er eins og venju- legur Passat, en stendur hærra á vegi, er fjórhjóla drifinn og hefur fengið útlitsbreytingar sem hæfa bíl sem á að vera fær um að fara meiri vegleysur. Hann er með út- teknum hjólaskálum og hefur að auki fengið aðra fram- og aftur- stuðara sem gerir hann allan kraftalegri og líklegri til átaka. Hann stendur 3 cm hærra frá vegi og er því farinn að nálg- ast veghæð jepplinga. Því má segja að Volkswagen Passat All- track brúi bilið á milli Passat og Tiguan-jepplingsins. Þessum bíl svipar nokkuð til Audi Allroad- bílanna sem til eru bæði af A6- og A4-gerð en stærð hans liggur þó nær A4 Allroad. Þessi bíll er þó öllu ódýrari en þeir báðir og með því að bjóða Alltrack sést að Volkswagen-bílafjölskyldan er að bjóða velkominn þann kaup- endahóp sem hrifinn er af Audi Allroad en hefur ekki alveg efni á svo dýrum bílum. Þar fyrir neðan í verði býður Volkswagen- fjölskyldan upp á Skoda Octavia Scout. Öflug dísilvél með ógnartog Það var alls ekki slæmt að hafa lyklana að Volkswagen Passat Alltrack og vera á leið í sumar- bústað austur fyrir fjall yfir helgi. Bíllinn er afar rúm góður og fór ansi létt með farangur heillar fjölskyldu og eitt reið- hjól að auki sem reyndar var að- eins bútað í sundur og komið fyrir ofan á farangrinum í skott- inu. Ekki var meiningin af fara í miklar vegleysur, en þó á malar- vegi. Á malbikinu þarf sannar- lega að horfa vel á hraðamælinn því með sinni öflugu 177 hestafla dísilvél með forþjöppu er hann afar frískur. Hún togar svo vel að hann er eins og viljugur foli, enda með 380 Nm tog. Hjá Heklu er Passat Alltrack aðeins í boði með þessari öflugu dísilvél, en í Þýskalandi má einnig fá hann með 210 hestafla 2,0 l bensín vél og 140 hestafla 2,0 l dísilvél, sem í grunninn er sama vél og í þeim bíl sem hér er í boði, bara afl- minni. Báðar þessar gerðir má sérpanta hjá Heklu. Þessi líflega 177 hestafla dísilvél er tengd við 6 gíra DSG-sjálfskiptingu og vart þarf að fjölyrða um gæði þeirrar skiptingar frá Volkswagen, hún er ávallt góð. Með þessari vél er eyðsla bílsins aðeins 5,9 l og það sannaðist í reynsluakstrinum, sem að mestu fór fram á þjóðveg- um. Á bílinn var bætt 4.000 krón- um af dísilolíu og eftir bú staðar- ferð í Reykjaskóg og talsvert snatt í bænum að auki stóð elds- neytismælirinn hærra og eyðslu- talan sannreynd. Vel gert þar hjá Volkswagen fyrir stóran bíl. Einföld og vönduð innrétting Innréttingin í Passat Alltrack er hvort tveggja í senn einföld og sérlega vönduð. Hún ber með sér að allt er einstaklega vel smíðað og efnisvalið er sérlega gott. Það er ávallt gaman að sjá þegar einfaldleiki og glæsileiki fara saman og oftast eru einfald- ar lausnir bestar. Lagleg silf- urlituð umgjörð um miðjustokk mælaborðsins aðgreinir Allt- rack frá hefðbundnum Passat og setur sér stakan stíl á innrétt- inguna. Stýrið, sem er bæði hæð- arstillanlegt og aðdraganlegt, er mjög flott og gott að handleika. Hiti er í framsætum sem virkar samstundis. Ágætt hljóðkerfi er í bílnum og átta hátalarar. Pláss fyrir aftursætisfarþega er eins og gera má ráð fyrir í stærri fjöl- skyldubílum og fer einkar vel um þá. Skottrými er 588 lítrar og stækkar í 1.716 lítra ef aftur- sætin eru felld niður. Það er rúm- lega á pari við aðra bíla í þessum flokki. Tími langbakanna er langt í frá liðinn Akstur Passat Alltrack er ansi ljúf- ur og fjórhjóladrifið gerir hann ennþá stöðugri og veitir meiri ör- yggiskennd, ekki síst á möl. Bíllinn er vel búinn aðstoðarkerfum, stöð- ugleikakerfi, læsingu á mismuna- drifi, skrikvörn og fleiri kerfum sem auðvelda ökumanni akstur bílsins enn frekar við erfiðar jafnt sem auðveldari aðstæður. Stöðug- leiki hans á vegi er alveg til fyrir- myndar og þar er hann lítill eftir- bátur dýrari frænda sinna af Audi Allroad-gerð. Fjöðrun bílsins er harðari en í venjulegum Passat til að takast á við meiri hleðslu og erf- iðara undirlag og hún er það vel sett upp að hún gæti átt heima í mun dýrari bíl. Hann er líka ári vel hljóðeinangraður og því verð- ur akstur hans ljúfur og áreynslu- laus. Fyrir vikið er þessi bíll sér- lega heppilegur fyrir fólk á hreyf- ingu, sem fer út fyrir malbikið oftar en meðalmaðurinn og fyrir fólk sem þarf mikið pláss fyrir far- angur. Þeir sem eru að hugleiða kaup á jepplingum, eins og marg- ir gera um þessar mundir, ættu að skoða bíl eins og þennan. Hann er með betri aksturseiginleika og tekur ef eitthvað er meira af far- angri og enn betur fer um aftur- sætisfarþega. Tími langbakanna er langt í frá liðinn, þeir eru ein- staklega notadrjúgir bílar, sérstak- lega ef þeir eru eins vel úr garði gerðir og þessi bíll. Passat Alltrack er þó dýrari en margir þeirra, en hann kostar 7.120.000 en fyrir það fæst vandaður bíll sem hentar vel íslenskum aðstæðum, er fjórhjóla- drifinn og með mikla veghæð. HÁFÆTTUR LANGBAKUR AF Með öfluga en sparneytna dísilvél, gríðarmikið skottpláss, mikla veghæð og fjórhjóladrif er hér kominn frábær ferðabíll. ALL BAJA MTZ RADIALS FEATURES Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.