Fréttablaðið - 06.05.2014, Qupperneq 24
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
6 6. maí 2014 ÞRIÐJUDAGUR
2,01 DÍSILVÉL, MEÐ
FORÞJÖPPU 177 HESTÖFL
Fjórhjóladrif
Eyðsla 5,9 l/100 km
í bl. akstri
Mengun 155 g/km CO2
Hröðun 8,9 sek.
Hámarkshraði 210 km/klst.
Verð 7.120.000 kr.
Umboð Hekla
VOLKSWAGEN
PASSAT ALLTRACK
VOLKSWAGEN PASSAT ALLTRACK
Finnur Thorlacius reynsluekur
V
olkswagen Passat á sér
langa sögu og hefur
verið í boði í 40 ár en
þessi gerð hans á sér
þó öllu styttri sögu,
eða frá árinu 2010. Hér
er á ferðinni bíll sem
að flestu leyti er eins og venju-
legur Passat, en stendur hærra á
vegi, er fjórhjóla drifinn og hefur
fengið útlitsbreytingar sem hæfa
bíl sem á að vera fær um að fara
meiri vegleysur. Hann er með út-
teknum hjólaskálum og hefur að
auki fengið aðra fram- og aftur-
stuðara sem gerir hann allan
kraftalegri og líklegri til átaka.
Hann stendur 3 cm hærra frá
vegi og er því farinn að nálg-
ast veghæð jepplinga. Því má
segja að Volkswagen Passat All-
track brúi bilið á milli Passat og
Tiguan-jepplingsins. Þessum bíl
svipar nokkuð til Audi Allroad-
bílanna sem til eru bæði af A6-
og A4-gerð en stærð hans liggur
þó nær A4 Allroad. Þessi bíll er
þó öllu ódýrari en þeir báðir og
með því að bjóða Alltrack sést að
Volkswagen-bílafjölskyldan er
að bjóða velkominn þann kaup-
endahóp sem hrifinn er af Audi
Allroad en hefur ekki alveg efni
á svo dýrum bílum. Þar fyrir
neðan í verði býður Volkswagen-
fjölskyldan upp á Skoda Octavia
Scout.
Öflug dísilvél með ógnartog
Það var alls ekki slæmt að hafa
lyklana að Volkswagen Passat
Alltrack og vera á leið í sumar-
bústað austur fyrir fjall yfir
helgi. Bíllinn er afar rúm góður
og fór ansi létt með farangur
heillar fjölskyldu og eitt reið-
hjól að auki sem reyndar var að-
eins bútað í sundur og komið
fyrir ofan á farangrinum í skott-
inu. Ekki var meiningin af fara í
miklar vegleysur, en þó á malar-
vegi. Á malbikinu þarf sannar-
lega að horfa vel á hraðamælinn
því með sinni öflugu 177 hestafla
dísilvél með forþjöppu er hann
afar frískur. Hún togar svo vel
að hann er eins og viljugur foli,
enda með 380 Nm tog. Hjá Heklu
er Passat Alltrack aðeins í boði
með þessari öflugu dísilvél, en
í Þýskalandi má einnig fá hann
með 210 hestafla 2,0 l bensín vél
og 140 hestafla 2,0 l dísilvél, sem
í grunninn er sama vél og í þeim
bíl sem hér er í boði, bara afl-
minni. Báðar þessar gerðir má
sérpanta hjá Heklu. Þessi líflega
177 hestafla dísilvél er tengd við
6 gíra DSG-sjálfskiptingu og vart
þarf að fjölyrða um gæði þeirrar
skiptingar frá Volkswagen, hún
er ávallt góð. Með þessari vél er
eyðsla bílsins aðeins 5,9 l og það
sannaðist í reynsluakstrinum,
sem að mestu fór fram á þjóðveg-
um. Á bílinn var bætt 4.000 krón-
um af dísilolíu og eftir bú staðar-
ferð í Reykjaskóg og talsvert
snatt í bænum að auki stóð elds-
neytismælirinn hærra og eyðslu-
talan sannreynd. Vel gert þar hjá
Volkswagen fyrir stóran bíl.
Einföld og vönduð innrétting
Innréttingin í Passat Alltrack
er hvort tveggja í senn einföld
og sérlega vönduð. Hún ber með
sér að allt er einstaklega vel
smíðað og efnisvalið er sérlega
gott. Það er ávallt gaman að sjá
þegar einfaldleiki og glæsileiki
fara saman og oftast eru einfald-
ar lausnir bestar. Lagleg silf-
urlituð umgjörð um miðjustokk
mælaborðsins aðgreinir Allt-
rack frá hefðbundnum Passat og
setur sér stakan stíl á innrétt-
inguna. Stýrið, sem er bæði hæð-
arstillanlegt og aðdraganlegt, er
mjög flott og gott að handleika.
Hiti er í framsætum sem virkar
samstundis. Ágætt hljóðkerfi er
í bílnum og átta hátalarar. Pláss
fyrir aftursætisfarþega er eins
og gera má ráð fyrir í stærri fjöl-
skyldubílum og fer einkar vel
um þá. Skottrými er 588 lítrar
og stækkar í 1.716 lítra ef aftur-
sætin eru felld niður. Það er rúm-
lega á pari við aðra bíla í þessum
flokki.
Tími langbakanna er langt í frá liðinn
Akstur Passat Alltrack er ansi ljúf-
ur og fjórhjóladrifið gerir hann
ennþá stöðugri og veitir meiri ör-
yggiskennd, ekki síst á möl. Bíllinn
er vel búinn aðstoðarkerfum, stöð-
ugleikakerfi, læsingu á mismuna-
drifi, skrikvörn og fleiri kerfum
sem auðvelda ökumanni akstur
bílsins enn frekar við erfiðar jafnt
sem auðveldari aðstæður. Stöðug-
leiki hans á vegi er alveg til fyrir-
myndar og þar er hann lítill eftir-
bátur dýrari frænda sinna af Audi
Allroad-gerð. Fjöðrun bílsins er
harðari en í venjulegum Passat til
að takast á við meiri hleðslu og erf-
iðara undirlag og hún er það vel
sett upp að hún gæti átt heima í
mun dýrari bíl. Hann er líka ári
vel hljóðeinangraður og því verð-
ur akstur hans ljúfur og áreynslu-
laus. Fyrir vikið er þessi bíll sér-
lega heppilegur fyrir fólk á hreyf-
ingu, sem fer út fyrir malbikið
oftar en meðalmaðurinn og fyrir
fólk sem þarf mikið pláss fyrir far-
angur. Þeir sem eru að hugleiða
kaup á jepplingum, eins og marg-
ir gera um þessar mundir, ættu
að skoða bíl eins og þennan. Hann
er með betri aksturseiginleika og
tekur ef eitthvað er meira af far-
angri og enn betur fer um aftur-
sætisfarþega. Tími langbakanna
er langt í frá liðinn, þeir eru ein-
staklega notadrjúgir bílar, sérstak-
lega ef þeir eru eins vel úr garði
gerðir og þessi bíll. Passat Alltrack
er þó dýrari en margir þeirra, en
hann kostar 7.120.000 en fyrir það
fæst vandaður bíll sem hentar vel
íslenskum aðstæðum, er fjórhjóla-
drifinn og með mikla veghæð.
HÁFÆTTUR LANGBAKUR AF
Með öfluga en sparneytna dísilvél, gríðarmikið skottpláss,
mikla veghæð og fjórhjóladrif er hér kominn frábær ferðabíll.
ALL BAJA MTZ RADIALS FEATURES
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA