Fréttablaðið - 06.05.2014, Blaðsíða 4
6. maí 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
51 togari var gerður út frá Ís-landi við lok síðasta árs
og hefur þeim fækkað um níu frá
árinu 2008 þegar 60 togarar voru
skráðir hér á landi.
Opnum bátum fjölgaði hins vegar
úr 700 í 862 á sama tímabili og vél-
skipum hafði fjölgað úr 700 í 783.
HEILBRIGÐISMÁL Bæjarráð Akur-
eyrar telur að rekstur Heilsu-
gæslustöðvarinnar á Akureyri
eigi heima í höndum bæjarins,
eins og verið hefur undanfarin
17 ár. Á fundi sínum nýverið tók
ráðið undir bókun félagsmálaráðs
bæjarins þessa efnis.
Félagsmálaráð lagði til að
bæjar stjóra yrði falið að ganga til
viðræðna við velferðarráðuneytið
um nýjan samning og undir það
tekur bæjarráð. Þá skorar bærinn
á Alþingi að taka fjárveitingar til
heilsugæslunnar til gagngerrar
endurskoðunar hið fyrsta. - bj
Bæjarráð Akureyrar ályktar:
Vilja sjálfir reka
heilsugæsluna
VIÐSKIPTI Fríverslunarsamningur
EFTA og Kanada, viðskipti og fjár-
festingar voru til umræðu á fundi í
Reykjavík í gær. Þá var rætt hvort
ástæða væri til að hefja við ræður
um að endurskoða og víkka út
samninginn svo hann taki einnig
til þjónustuviðskipta, opinberra
innkaupa og hugverkaverndar.
Fastafulltrúi Íslands gagnvart
EFTA, Martin Eyjólfsson sendi-
herra, leiðir viðræðurnar fyrir
hönd EFTA. Fundum verður fram-
haldið í dag. - fb
Fulltrúar EFTA á ferð:
Ræddu saman
um viðskipti
NEYTENDUR Neytendastofu hefur
borist tilkynning frá Toyota á
Íslandi um innköllun á 1.480
Yaris-bifreiðum vegna bilunar í
festingu í mælaborði fyrir stýris-
súlu. Um er að ræða bifreiðar
framleiddar á tímabilinu 2005 til
2009, að því er segir í frétt á vef
Neytendastofu.
Þar segir að ef stýrishjóli sé
endurtekið snúið harkalega í botn
til hægri eða vinstri geti suður á
festingu fyrir stýrissúluna brotn-
að frá burðarbita í mælaborði.
Toyota mun senda bréf vegna
þessarar innköllunar til hlutað-
eigandi bifreiðaeigenda. - ibs
Umboð Toyota á Íslandi:
Innkalla nær
1.500 Yarisa
ORKUMÁL Rennsli í miðlunar-
lón Landsvirkjunar er tekið að
aukast og því hefur fyrirtækið
dregið úr skerðingu á afhend-
ingu orku til stórnotenda. Gripið
var til skerðingarinnar vegna
slæmrar stöðu í lónunum í lok
febrúar.
Í byrjun maí var dregið um
helming úr skerðingu til stórnot-
enda, og vonir standa til þess að
hægt verði að veita alla umbeðna
orku fyrir lok mánaðarins, að
því er fram kemur á vef Lands-
virkjunar. Spár gera ráð fyrir
því að rennsli í miðlunarlón muni
aukast áfram á næstunni. - bj
Rennsli í miðlunarlón eykst:
Stórnotendur
fá meiri orku
MENNINGARMÁL Skagfirðingar
munu ekki þiggja 140 ára gamla
íbúðarhúsið að Hraunum í Fljót-
um ef bæjaryfirvöld staðfesta
ákvörðun menningarnefndar
sveitarfélagsins.
„Með tilvísun í forstöðumann
Byggðasafns Skagfirðinga telur
nefndin ekki rétt að þiggja húsið
til varðveislu þar sem sveitarfé-
lagið á nú þegar hús sömu gerðar,
það er Áshúsið í Glaumbæ, enda
væri verulega kostnaðarsamt
að flytja og endurbyggja húsið á
nýjum stað,“ segir menningar-
nefndin. Hraunahúsið þykir hafa
mikið varðveislugildi en eigendur
þess vilja losna við það af jörð
sinni. - gar
Skagfirðingar hafna húsi:
Þykir of dýrt að
gera Hraun upp
HRAUN Innan steypunnar leynist
timburhús. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÓR HJALTALÍN
ORKA Stórnotendur geta átt von á því
að ákveðið hlutfall af þeirri orku sem
þeir kaupa skerðist ef lítið vatn er í
miðlunarlónum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SJÁVARÚTVEGUR Á milli 750 og 770
skip voru á sjó í gær þegar mest
var, samkvæmt upplýsingum frá
Vaktstöð siglinga. Þar af voru tæp-
lega 400 strandveiðibátar. Það mun
þó ekki vera mikið miðað við oft
áður, en mest hafa um þúsund skip
verið á sjó í einu.
Í gær höfðu Fiskistofu borist um
430 umsóknir um strandveiðileyfi,
en á fyrsta degi veiða í fyrra voru
þær 465. Fyrir daginn í gær höfðu
380 leyfi verið virkjuð og því ljóst
að ekki komust allir af stað sem
vildu.
Umsóknir á svæði A eru 199, á
svæði B eru þær 79, á svæði C eru
þær 56 og á svæði D eru þær 94.
Eldur kom upp í stýrishúsi
strandveiðibáts á Breiðafirði í
gærmorgun. Einn maður var um
borð og gekk honum vel að slökkva
eldinn, en báturinn var þó vélar-
vana og þurfti að draga hann
í land. Ekkert annað alvarlegt
atvik kom upp í gær, samkvæmt
Vaktstofunni, en þó urðu einstaka
bilanir.
Fréttablaðið hafði samband
við nokkra hafnarverði hring-
inn í kring um landið til að kanna
hvernig veiðar hefðu gengið. Vel
gekk á vestanverðu landinu og
virðist sem mörgum hafi tekist
að fá skammtinn, sem er 650 kíló
talið í þorskígildum.
„Það er nóg að gera hérna í
Ólafsvík,“ segir Þórður Björns-
son hafnarvörður. Um 35 bátar
reru frá Ólafsvík í gær. „Það var
ágætis fiskirí og flestir komu með
skammtinn. Þetta er alveg ljóm-
andi og það er bara gaman að
þessu,“ segir Þórður.
„Þetta er bara fínt og það hefur
öllum gengið vel almennt,“ segir
Heiðar Hermannsson, hafnar-
vörður í Bolungarvík. Hann
segir um 27 til 30 báta hafa róið
þaðan. Hann segir flesta hafa náð
skammtinum og fiskurinn hafi
verið fínn. „Þetta er bara í fínu
lagi og það gengur bara vel.“
Á Húsavík gengu veiðar ekki
vel í gær og af þeim sex bátum
sem reru þaðan fékk enginn yfir
200 kíló. „Þetta var frekar dap-
urt fyrsta daginn, en það mesta
sem náðist voru 195 kíló,“ segir
Hjálmar Hjálmarsson, hafnar-
vörður á Húsavík. Hann segir að
bátum sem róið sé frá Húsavík eigi
eftir að fjölga en einhverjir, sem
enn séu á grásleppuveiðum, ætli á
strandveiðar.
Tólf til fimmtán fóru til veiða
frá Djúpavogi. „Það gekk vel og
flestir þeirra náðu um það bil
skammtinum,“ segir Stefán Guð-
mundsson hafnarvörður. Frá
Hornafirði fór enginn á sjó í gær
vegna brælu. samuel@frettabladid.is
Færri bátar héldu til
veiða að þessu sinni
Fyrsti dagur strandveiða þetta sumarið var í gær og fór mikill fjöldi báta á sjó af
því tilefni. Um 430 umsóknir um strandveiðileyfi höfðu borist Fiskistofu. Veiðarnar
virðast hafa farið vel af stað þó að bræla hafi verið við sunnanvert landið.
HALDIÐ TIL VEIÐA Fjöldi báta var á sjó í gær, en þó fækkar þeim á milli ára. Veiðar
gengu vel víða um land, en þó ekki á Húsavík og bræla var við sunnanvert landið.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
NOREGUR Kínverski fjárfestir-
inn Huang Nubo beinir nú sjónum
sínum að Noregi þar sem hann
hefur hug á að fjárfesta fyrir 660
milljónir norskra króna, eða tæpa
12 milljarða íslenskra króna, næstu
fimm til tíu árin. Samkvæmt frétt
AFP-fréttastofunnar tekur Huang
fram að hann hafi ekki hætt við
áform sín á Íslandi. Framvindan sé
hæg en hann geti beðið.
Eins og áður neitar Huang því
að áætlanir hans séu af pólitískum
toga en hann segir þó að auðvitað
kanni hann hvaða
afstöðu land sem
hann vill fjár-
festa í hafi til
Kína. Sam skiptin
milli norskra
og kínverskra
stjórnvalda hafa
verið stirð undan-
farin ár. Kín-
versk yfirvöld eru þó ánægð með að
norska stjórnin skuli hafa neitað að
taka á móti Dalai Lama þegar hann
kemur til Óslóar í þessari viku.
Huang segir að hefði norska
stjórnin tekið á móti Dalai Lama
hefði það komið niður á áætlunum
hans um fjárfestingar. Kínversk
stjórnvöld hefðu þá ekki getað sam-
þykkt slíkan samning.
Í fyrra gerði hann samning við
listasöfnin í Bergen um 9,5 millj-
óna norskra króna, rúmlega 180
milljóna íslenskra króna, framlag
gegn því að þau skiluðu sjö hvítum
marmarastyttum sem hurfu frá
Kína þegar greipar voru látnar sópa
um kínverska höll á nítjándu öld. - ibs
Kínverski fjárfestirinn Huang Nubo beinir sjónum sínum að Noregi:
Ekki hættur við á Íslandi
HUANG NUBO
Það var ágætis fiskirí
og flestir komu með
skammtinn. Þetta er alveg
ljómandi og það er bara
gaman að þessu.
Þórður Björnsson,
hafnarvörður í Ólafsvík
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Elísabet Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
ÚRKOMULÍTIÐ Einkar milt og rólegt veður áfram á landinu næstu daga. Dálítil væta
sunnan og austan til í dag og eystra á morgun, en annars úrkomulítið og bjart veður.
10°
6
m/s
11°
5
m/s
12°
7
m/s
10°
13
m/s
3-8 m/s.
5-10 m/s.
Gildistími korta er um hádegi
19°
32°
7°
17°
17°
10°
23°
12°
12°
22°
17°
25°
25°
19°
22°
21°
14°
22°
10°
7
m/s
8°
8
m/s
9°
7
m/s
8°
10
m/s
9°
6
m/s
14°
6
m/s
5°
7
m/s
15°
11°
10°
6°
10°
9°
8°
5°
10°
5°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
FIMMTUDAGUR
Á MORGUN