Fréttablaðið - 06.05.2014, Qupperneq 8
6. maí 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8
STJÓRNSÝSLA Dráttur á málsmeð-
ferð landlæknis vegna bótakröfu
móður vegna læknamistaka sem
kostuðu son hennar lífið varð til
þess að ríkislögmaður hafnaði
bótakröfu móðurinnar. Umboðs-
maður Alþingis telur að ekkert
í lögum komi í veg fyrir að heil-
brigðisráðherra bæti konunni
sonar missinn.
Ríkislögmaður hafnaði bóta-
kröfunni á þeim grundvelli að hún
væri of seint komin, réttur móður-
innar til bóta væri fyrndur. Sonur
konunnar lést árið 2001 og bóta-
kröfunni var hafnað árið 2012.
Móðirin sendi umboðsmanni
Alþingis erindi vegna máls-
ins og kvartaði undan töfum á
afgreiðslu málsins hjá landlækni
og afgreiðslu ríkislögmanns.
Umboðsmaður hefur ekki lokið
umfjöllun um málið en bendir
móðurinni á að krefja heilbrigðis-
ráðuneytið um bætur.
Í ákvörðun ríkislögmanns
segir að engu breyti þó land-
læknir hafi verið með málið til
skoðunar lengi. Þá segir í svari
velferðarráðuneytisins við fyrir-
spurn umboðsmanns að álits-
gerð landlæknisembættisins sé
ekki forsenda fyrir bótakröfu og
umfjöllun embættisins rjúfi ekki
fyrningu.
Umboðsmaður Alþingis hefur
í kjölfarið skrifað heilbrigðisráð-
herra og ríkislögmanni bréf þar
sem komið er á framfæri ábend-
ingum vegna málsins, þótt mál-
inu sé ekki formlega lokið hjá
umboðsmanni.
Í bréfi sínu bendir umboðs-
maður Alþingis á að ákvörð-
unarvald um bætur liggi hjá
heilbrigðisráðuneytinu, ekki
ríkis lögmanni. Þá bendir umboðs-
maður Alþingis á að þó að þau
sjónarmið séu uppi að krafan sé
fyrnd sé ekkert í lögum sem banni
ráðuneytinu að taka ákvörðun um
að rétta hlut móðurinnar vegna
sonarmissisins „telji [ráðuneytið]
á annað borð að stjórnvöld hafi
valdið henni tjóni með bótaskyldri
háttsemi“. - bj
Móður drengs sem lést á Landspítalanum synjað um bætur vegna sonarmissis þar sem landlæknir var lengi að fjalla um málið:
Má greiða bætur þrátt fyrir drátt segir umboðsmaður
LANDSPÍTALINN Sonur konu sem
krefur ríkið um bætur lést á Landspítal-
anum árið 2001. Bótakröfu hennar var
hafnað árið 2012. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sturtusett
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
NAPOLI
hitastýrt
sturtusett
29.990
Reykjavík - Reykjanesbæ
Lærðu að spíra og gerja bæði fræ og grænmeti,
rækta hveitigras, búa til kornsafa og súrkál og
nota probiotics í ostagerð.
Lærðu á lifandi fæði og hráfæði með Eddu!
Sýnikennsla og smakk verður á staðnum
og allar uppskriftir fylgja.
HEILSUHÚSIÐ LÁGMÚLA 5
KL. 18.30 – 20.30
Nánari upplýsingar og skráning á
edda@47.is eða í síma 615 3375
EDDA
MAGNÚSDÓTTIR
Edda Magnúsdóttir er MS mat-
vælafræðingur og hráfæðikennari
frá Living Light Culinary Arts
Institute 2011. Hún hefur diploma
frá Ann Wigmore stofnuninni
og hefur sótt námskeið hjá
Victoríu Boutenko sem kallast
LifeRetreat.
miðvikudagur
14. maí
6.900 kr.
Ársfundur
Vina Vatnajökuls -
hollvinasamtaka Vatnajökulsþjóðgarðs
Ársfundur Vina Vatnajökuls verður
haldinn, mánudaginn 12. maí 2014 kl. 16:00
á hótel Natura, Nauthólsvegi 52, Reykjavík.
Fundarefni venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
SVÍÞJÓÐ Meðal þeirra 50 sveitar-
félaga í Svíþjóð sem tóku á móti
fæstum flóttamönnum miðað
við íbúafjölda voru 39 undir
stjórn borgara-
legra flokka
en aðeins tvö
undir stjórn
vinstrimanna,
samkvæmt
könnun sænska
ríkissjónvarps-
ins.
Haft er eftir
Fredrik Rein-
feldt forsætis-
ráðherra að flóttamenn hafi
frjálst val um búsetu. Það kunni
að vera skýring.
Það að auki er oft sagður hús-
næðisskortur í sveitarfélögum
undir stjórn hægri manna við
stórar borgir. - ibs
Hafa frjálst val um búsetu:
Færri í „bláum“
sveitarfélögum
FREDRIK
REINFELDT
TÆKNI Advania undirbýr nú bygg-
ingu 2.500 fermetra gagnavers á
Fitjum í Reykjanesbæ. Fyrirtækið
rekur nú þegar gagnaver í Hafnar-
firði, en rekstur þess mun haldast
óbreyttur.
„Undirbúningur er nú þegar
hafinn og ef vel gengur með fram-
kvæmdir og öflun viðskiptavina
mun fyrsti áfangi verða tekinn í
notkun í ár. Fitjar eru mjög hentugt
svæði fyrir gagnaversstarfsemi
og aðgengi að orku er gott. Fyrir
okkur sem rekum gagnaver skipt-
ir mestu máli að hafa gott aðgengi
að orku og svölu lofti sem hjálpar
til við að kæla tölvubúnað á um-
hverfis vænan og hagkvæman hátt,“
segir Eyjólfur Magnús Kristinsson,
framkvæmdastjóri Rekstrarlausna
Advania.
Í tilkynningu frá fyrir tækinu
segir að 80 alþjóðlegir aðilar nýti
nú þjónustu gagnavers Advania.
Gestur G. Gestsson forstjóri
segir það forgangsmál hjá fyrir-
tækjum um allan heim að draga úr
útblæstri gróðurhúsalofttegunda.
Með nýja gagnaverinu geti fyrir-
tækið boðið græna orku og fyrirsjá-
anlegan orkukostnað til langs tíma.
„Það er einnig ánægjuefni að geta
stuðlað að uppbyggingu atvinnu-
lífsins í Reykjanesbæ með þessari
framkvæmd,“ segir Gestur. - skó
Nýtt gagnaver Advania í Reykjanesbæ fyrirhugað:
Undirbúningur hafinn
GAGNAVER Ef framkvæmdir ganga vel
verður fyrsti áfangi tekinn í notkun í ár.
MYND/AÐSEND
VIÐSKIPTI Nýir fjárfestar eru á
leið inn í eigendahóp fjölmiðla- og
fjarskiptafyrirtækisins 365, sem
á meðal annars og rekur Frétta-
blaðið, Stöð 2, Vísi og Bylgjuna.
Fjárfestar hafa samþykkt að
auka hlutaféð um tæplega einn
milljarð króna. Meira en helm-
ingurinn mun koma frá nýjum
fjárfestum en þar að auki munu
núverandi eigendur leggja til nýtt
fé. Hlutafjáraukningunni verður
að hálfu varið í að greiða niður
skuldir en að öðru leyti til að
styrkja rekstur og vöxt.
Á sama tíma var tilkynnt að
Sævar Freyr Þráinsson, fyrr-
verandi forstjóri Símans, hefði
verið ráðinn aðstoðarforstjóri
365. Honum er falið að vinna
að stefnumörkun og framtíðar-
sýn, ekki síst á fjarskiptamark-
aði þar sem 365 hefur haslað sér
völl á undanförnum misserum.
Ari Edwald, forstjóri 365, segir
að með ráðningunni á Sævari
sé fyrirtækið að fá mann með
mikla reynslu af rekstri og fag-
legri stjórnun. „365 hefur verið
að vaxa á fjarskiptamarkaði og
það er stórt skref að fá til liðs
við okkur mann sem gjör þekkir
markaðinn og veit betur en
flestir hvað þarf til að ná árangri
í fjarskiptarekstri,“ segir Ari.
Sævar var forstjóri Símans
í rúm sex ár þar til í febrúar á
þessu ári þegar Orri Hauksson
tók við. Hann segir mörg spenn-
andi verkefni fram undan. „Mark-
mið okkar er að fjarskipta- og
efnisþjónusta 365 hafi sérstöðu
sem viðskiptavinir muni njóta.
Mitt verkefni verður að ná fram
markmiðum um vöxt og aukna
arðsemi í rekstri 365. Við ætlum
að veita viðskiptavinum okkar
framúrskarandi og hagkvæma
þjónustu og nýta vel þau vaxtar-
tækifæri sem félagið hefur.“
Eftir að hlutafjáraukningunni
lýkur í júní verður eiginfjárhlut-
fall 365 ríflega 40% og skuldir um
2,3 milljarðar króna, sem er innan
við tvöfaldur árlegur rekstrar-
hagnaður félagsins. Samhliða
hafa náðst samningar við við-
skiptabanka félagsins um endur-
fjármögnun á lánum, sem felur í
sér lengri niðurgreiðslu feril en
verið hefur. andri@frettabladid.is
SÆVAR FREYR
ÞRÁINSSON
ARI
EDWALD
STOÐIRNAR STYRKTAR Helmingur hlutafjáraukningarinnar fer í að borga niður skuldir. Hinn helmingurinn fer í að styrkja
reksturinn og vöxt félagsins, ekki síst á fjarskiptamarkaði þar sem 365 hefur gert sig gildandi að undanförnu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Nýir fjárfestar í 365
Hlutafé 365 aukið um tæplega milljarð króna. Á bak við aukninguna eru núverandi
eigendur og nýir fjárfestar. Tilkynnt um ráðningu Sævars Freys Þráinssonar í stól
aðstoðarforstjóra. Honum er ætlað að halda utan um vöxt á fjarskiptamarkaði.